Read 2 Korintubréf Chapter 11 Online
Read 2 Korintubréf Chapter 11 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 2 Korintubréf in the New Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of 2 Korintubréf and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
2 Korintubréf 11
Kafli 11
1. Ó að þér vilduð umbera dálitla fávisku hjá mér! Jú, vissulega umberið þér mig.
2. Ég vakti yfir yður með afbrýði Guðs, því að ég hef fastnað yður einum manni, Kristi, og vil leiða fram fyrir hann hreina mey.
3. En ég er hræddur um, að eins og höggormurinn tældi Evu með flærð sinni, svo kunni og hugsanir yðar að spillast og leiðast burt frá einlægri og hreinni tryggð við Krist.
4. Því að ef einhver kemur og prédikar annan Jesú en vér höfum prédikað, eða þér fáið annan anda en þér hafið fengið, eða annað fagnaðarerindi en þér hafið tekið á móti, þá umberið þér það mætavel.
5. Ég álít mig þó ekki í neinu standa hinum stórmiklu postulum að baki.
6. Þótt mig bresti mælsku, brestur mig samt ekki þekkingu og vér höfum á allan hátt birt yður hana í öllum greinum.
7. Eða drýgði ég synd, er ég lítillækkaði sjálfan mig til þess að þér mættuð upphafnir verða og boðaði yður ókeypis fagnaðarerindi Guðs?
8. Aðra söfnuði rúði ég og tók mála af þeim til þess að geta þjónað yður, og er ég var hjá yður og leið þröng, varð ég þó ekki neinum til byrði,
9. því að úr skorti mínum bættu bræðurnir, er komu frá Makedóníu. Og í öllu varaðist ég að verða yður til þyngsla og mun varast.
10. Svo sannarlega sem sannleiki Krists er í mér, skal þessi hrósun um mig ekki verða þögguð niður í héruðum Akkeu.
11. Hvers vegna? Er það af því að ég elska yður ekki? Nei, Guð veit að ég gjöri það.
12. En það, sem ég gjöri, mun ég og gjöra til þess að svipta þá tækifærinu, sem færis leita til þess að vera jafnokar vorir í því, sem þeir stæra sig af.
13. Því að slíkir menn eru falspostular, svikulir verkamenn, er taka á sig mynd postula Krists.
14. Og ekki er það undur, því að Satan sjálfur tekur á sig ljósengilsmynd.
15. Það er því ekki mikið, þótt þjónar hans taki á sig mynd réttlætisþjóna. Afdrif þeirra munu verða samkvæmt verkum þeirra.
16. Enn segi ég: Ekki álíti neinn mig fávísan. En þó svo væri, þá takið samt við mér sem fávísum, til þess að ég geti líka hrósað mér dálítið.
17. Það sem ég tala nú, þegar ég tek upp á að hrósa mér, tala ég ekki að hætti Drottins, heldur eins og í heimsku.
18. Með því að margir hrósa sér af sínum mannlegu afrekum, vil ég einnig hrósa mér svo,
19. því að fúslega umberið þér hina fávísu, svo vitrir sem þér eruð.
20. Þér umberið það, þótt einhver hneppi yður í ánauð, þótt einhver eti yður upp, þótt einhver hremmi yður, þótt einhver lítilsvirði yður, þótt einhver slái yður í andlitið.
21. Ég segi það mér til minnkunar, að í þessu höfum vér sýnt oss veika. En þar sem aðrir láta drýgindalega, – ég tala fávíslega -, þar gjöri ég það líka.
22. Eru þeir Hebrear? Ég líka. Eru þeir Ísraelítar? Ég líka. Eru þeir Abrahams niðjar? Ég líka.
23. Eru þeir þjónar Krists? – Nú tala ég eins og vitfirringur! – Ég fremur. Meira hef ég unnið, oftar verið í fangelsi, fleiri högg þolað og oft dauðans hættu.
24. Af Gyðingum hef ég fimm sinnum fengið höggin þrjátíu og níu,
25. þrisvar verið húðstrýktur, einu sinni verið grýttur, þrisvar beðið skipbrot, verið sólarhring í sjó.
26. Ég hef verið á sífelldum ferðalögum, komist í hann krappan í ám, lent í háska af völdum ræningja, í háska af völdum samlanda og af völdum heiðingja, í háska í borgum og í óbyggðum, á sjó og meðal falsbræðra.
27. Ég hef stritað og erfiðað, átt margar svefnlausar nætur, verið hungraður og þyrstur og iðulega fastað, og ég hef verið kaldur og klæðlaus.
28. Og ofan á allt annað bætist það, sem mæðir á mér hvern dag, áhyggjan fyrir öllum söfnuðunum.
29. Hver er sjúkur, án þess að ég sé sjúkur? Hver hrasar, án þess að ég líði?
30. Ef ég á að hrósa mér, vil ég hrósa mér af veikleika mínum.
31. Guð og faðir Drottins Jesú, hann sem blessaður er að eilífu, veit að ég lýg ekki.
32. Í Damaskus setti landshöfðingi Areta konungs vörð um borgina til þess að handtaka mig.
33. En gegnum glugga var ég látinn síga út fyrir múrinn í körfu og slapp þannig úr höndum hans.
About 2 Korintubréf Chapter 11
Read 2 Korintubréf Chapter 11 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 2 Korintubréf in the New Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: 2 Korintubréf
Chapter: 11
Testament: New Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading 2 Korintubréf. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading 2 Korintubréf Chapter 11 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is 2 Korintubréf Chapter 11?
2 Korintubréf Chapter 11 is part of the Book of 2 Korintubréf in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete 2 Korintubréf Chapter 11 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from 2-korintubref
- 2 Korintubréf Chapter 7
- 2 Korintubréf Chapter 10
- 2 Korintubréf Chapter 8
- 2 Korintubréf Chapter 4
- 2 Korintubréf Chapter 9
- 2 Korintubréf Chapter 6
- 2 Korintubréf Chapter 5
Explore More from Nýja Testamentið
- 2 Korintubréf Chapter 13
- Matteus Chapter 26
- Markús Chapter 2
- Matteus Chapter 15
- 1 Þessaloníkubréf Chapter 4
- Matteus Chapter 24
- 2 Korintubréf Chapter 2