Kólussubréfið Chapter 3

For English

Read Kólussubréfið Chapter 3 Online

Read Kólussubréfið Chapter 3 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Kólussubréfið in the New Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Kólussubréfið and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Kólussubréfið 3

Kafli 3

1. Fyrst þér því eruð uppvaktir með Kristi, þá keppist eftir því, sem er hið efra, þar sem Kristur situr við hægri hönd Guðs.

2. Hugsið um það, sem er hið efra, en ekki um það, sem á jörðinni er.

3. Því að þér eruð dánir og líf yðar er fólgið með Kristi í Guði.

4. Þegar Kristur, sem er líf yðar, opinberast, þá munuð þér og ásamt honum opinberast í dýrð.

5. Deyðið því hið jarðneska í fari yðar: Hórdóm, saurlifnað, losta, vonda fýsn og ágirnd, sem ekki er annað en skurðgoðadýrkun.

6. Af þessu kemur reiði Guðs [yfir þá, sem hlýða honum ekki].

7. Meðal þeirra voruð og þér áður, þegar þér lifðuð í þessum syndum.

8. En nú skuluð þér segja skilið við allt þetta: Reiði, bræði, vonsku, lastmæli, svívirðilegt orðbragð.

9. Ljúgið ekki hver að öðrum, því þér hafið afklæðst hinum gamla manni með gjörðum hans

10. og íklæðst hinum nýja, sem endurnýjast til fullkominnar þekkingar og verður þannig mynd skapara síns.

11. Þar er ekki grískur maður eða Gyðingur, umskorinn eða óumskorinn, útlendingur, Skýti, þræll eða frjáls maður, þar er Kristur allt og í öllum.

12. Íklæðist því eins og Guðs útvaldir, heilagir og elskaðir, hjartans meðaumkun, góðvild, auðmýkt, hógværð og langlyndi.

13. Umberið hver annan og fyrirgefið hver öðrum, ef einhver hefur sök á hendur öðrum. Eins og Drottinn hefur fyrirgefið yður, svo skuluð þér og gjöra.

14. En íklæðist yfir allt þetta elskunni, sem er band algjörleikans.

15. Látið frið Krists ríkja í hjörtum yðar, því að til friðar voruð þér kallaðir sem limir í einum líkama. Verðið þakklátir.

16. Látið orð Krists búa ríkulega hjá yður með allri speki. Fræðið og áminnið hver annan með sálmum, lofsöngum og andlegum ljóðum og syngið Guði sætlega lof í hjörtum yðar.

17. Hvað sem þér gjörið í orði eða verki, gjörið það allt í nafni Drottins Jesú og þakkið Guði föður fyrir hann.

18. Þér konur, verið undirgefnar mönnum yðar, eins og sómir þeim, er Drottni heyra til.

19. Þér menn, elskið eiginkonur yðar og verið ekki beiskir við þær.

20. Þér börn, verið hlýðin foreldrum yðar í öllu, því að það fer þeim vel, sem Drottni heyra til.

21. Þér feður, verið ekki vondir við börn yðar, svo að þau verði ekki ístöðulaus.

22. Þér þrælar, verið hlýðnir í öllu jarðneskum drottnum yðar, ekki með augnaþjónustu, eins og þeir er mönnum vilja þóknast, heldur í einlægni hjartans og í ótta Drottins.

23. Hvað sem þér gjörið, þá vinnið af heilum huga, eins og Drottinn ætti í hlut, en ekki menn.

24. Þér vitið og sjálfir, að Drottinn mun veita yður arfleifðina að launum. Þér þjónið Drottni Kristi.

25. Sá, sem rangt gjörir, skal fá það endurgoldið, sem hann gjörði rangt, og þar er ekki manngreinarálit.

About Kólussubréfið Chapter 3

Read Kólussubréfið Chapter 3 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Kólussubréfið in the New Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Kólussubréfið
Chapter: 3
Testament: New Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Kólussubréfið. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Kólussubréfið Chapter 3 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Kólussubréfið Chapter 3?

Kólussubréfið Chapter 3 is part of the Book of Kólussubréfið in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Kólussubréfið Chapter 3 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Kolussubrefid

  1. Kólussubréfið Chapter 4
  2. Kólussubréfið Chapter 1
  3. Kólussubréfið Chapter 2

Explore More from Nýja Testamentið

  1. Jóhannes Chapter 7
  2. Matteus Chapter 17
  3. Postulasagan Chapter 11
  4. Matteus Chapter 28
  5. Lúkas Chapter 20
  6. Markús Chapter 5
  7. Postulasagan Chapter 4

Related Chapters & Readings

  1. Jósúabók Chapter 16
  2. Amos Chapter 4
  3. Postulasagan Chapter 6
  4. Jesaja Chapter 22
  5. Sálmarnir Chapter 19
  6. Harmljóðin Chapter 3
  7. Hósea Chapter 10
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *