5 Mósebók Chapter 14

For English

Read 5 Mósebók Chapter 14 Online

Read 5 Mósebók Chapter 14 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 5 Mósebók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of 5 Mósebók and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

5 Mósebók 14

Kafli 14

1. Þér eruð börn Drottins, Guðs yðar. Þér skuluð eigi rista skinnsprettur á yður né raka yður krúnu eftir framliðinn mann.

2. Því að þú ert Drottni Guði þínum helgaður lýður, og þig hefir Drottinn kjörið til að vera eignarlýður hans umfram allar þjóðir, sem á jörðinni eru.

3. Þú skalt ekki eta neitt viðbjóðslegt.

4. Þessi eru þau ferfætt dýr, sem þér megið eta: naut, sauðfé og geitfé,

5. hirtir, skógargeitur, dáhirtir, steingeitur, fjallageitur, antílópur og gemsur.

6. Öll ferfætt dýr, sem hafa klaufir, og þær alklofnar, og jórtra, megið þér eta.

7. Af þeim sem jórtra, og af þeim sem alklofnar klaufir hafa, megið þér þó ekki þessi eta: Úlfaldann, hérann og stökkhérann, því að þeir jórtra að sönnu, en hafa eigi klaufir; þeir séu yður óhreinir, –

8. og svínið, því að það hefir að sönnu klaufir, en jórtrar ekki; það sé yður óhreint. Kjöt þeirra skuluð þér ekki eta, og hræ þeirra skuluð þér ekki snerta.

9. Af lagardýrunum megið þér eta þessi: Öll þau, sem hafa sundugga og hreistur, megið þér eta,

10. en öll þau, sem ekki hafa sundugga og hreistur, megið þér ekki eta; þau séu yður óhrein.

11. Alla hreina fugla megið þér eta,

12. en þessa megið þér ekki eta: örninn, skegggamminn og gamminn,

13. gleðuna og fálkakynið, –

14. allt hrafnakynið, –

15. strútinn, svöluna, mávinn og haukakynið, –

16. ugluna, náttugluna og hornugluna,

17. pelíkanann, hrægamminn og súluna,

18. storkinn og lóukynið, herfuglinn og leðurblökuna.

19. Öll fleyg skriðkvikindi séu yður óhrein; þau má eigi eta.

20. Öll hrein flugdýr megið þér eta.

21. Þér skuluð ekki eta neitt sjálfdautt. Útlendum manni, sem er innan borgarhliða þinna, mátt þú gefa það til að eta, eða selja það aðkomnum manni, því að þú ert Drottni Guði þínum helgaður lýður. Þú skalt ekki sjóða kið í mjólk móður þinnar.

22. Þú skalt tíunda vandlega allan ávöxt af útsæði þínu, allt það er vex á mörkinni, á ári hverju,

23. og þú skalt eta frammi fyrir Drottni Guði þínum á þeim stað, sem hann velur til þess að láta nafn sitt búa þar, tíundina af korni þínu, aldinlegi þínum og olíu þinni og frumburði nautgripa þinna og sauðfénaðar, svo að þú lærir að óttast Drottin Guð þinn alla daga.

24. Og sé vegurinn of langur fyrir þig og getir þú eigi borið það, af því að staðurinn, sem Drottinn Guð þinn velur til þess að láta nafn sitt búa þar, er langt í burtu frá þér, þegar Drottinn Guð þinn hefir blessað þig,

25. þá skalt þú koma því í peninga, taka silfrið með þér og geyma þess vel og fara til þess staðar, er Drottinn Guð þinn velur.

26. Og fyrir silfrið skalt þú kaupa hvað sem þig lystir, nautgripi, sauðfé, vín, áfengan drykk eða hvað annað, sem þig langar í, og þú skalt neyta þess þar frammi fyrir Drottni Guði þínum og gleðja þig ásamt fjölskyldu þinni.

27. Og levítana, sem eru innan borgarhliða þinna, skalt þú ekki setja hjá, því að þeir hafa ekki hlut né óðal með þér.

28. Þriðja hvert ár skalt þú færa út alla tíund af ávexti þínum það árið og leggja hana niður innan borgarhliða þinna,

29. svo að levítar, því að þeir hafa ekki hlut né óðal með þér, útlendingar, munaðarleysingjar og ekkjur þær, sem eru innan borgarhliða þinna, megi koma og eta sig mett, til þess að Drottinn Guð þinn blessi þig í öllu því, er þú tekur þér fyrir hendur að gjöra.

About 5 Mósebók Chapter 14

Read 5 Mósebók Chapter 14 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 5 Mósebók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: 5 Mósebók
Chapter: 14
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading 5 Mósebók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading 5 Mósebók Chapter 14 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is 5 Mósebók Chapter 14?

5 Mósebók Chapter 14 is part of the Book of 5 Mósebók in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete 5 Mósebók Chapter 14 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from 5 Mosebok

  1. 5 Mósebók Chapter 27
  2. 5 Mósebók Chapter 21
  3. 5 Mósebók Chapter 10
  4. 5 Mósebók Chapter 7
  5. 5 Mósebók Chapter 34
  6. 5 Mósebók Chapter 31
  7. 5 Mósebók Chapter 24

Explore More from Gamla Testamentið

  1. Jobsbók Chapter 4
  2. Nehemíabók Chapter 10
  3. Sálmarnir Chapter 138
  4. Sálmarnir Chapter 31
  5. 1 Konungabók Chapter 17
  6. 1 Konungabók Chapter 2
  7. 1 Samúelsbók Chapter 10

Related Chapters & Readings

  1. 2 Samúelsbók Chapter 14
  2. Daníel Chapter 5
  3. 3 Mósebók Chapter 17
  4. 2 Samúelsbók Chapter 7
  5. Sálmarnir Chapter 24
  6. 2 Mósebók Chapter 3
  7. Jósúabók Chapter 7
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *