1 Kroníkubók Chapter 7

For English

Read 1 Kroníkubók Chapter 7 Online

Read 1 Kroníkubók Chapter 7 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 1 Kroníkubók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of 1 Kroníkubók and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

1 Kroníkubók 7

Kafli 7

1. Synir Íssakars: Tóla, Púa, Jasúb og Simron – fjórir alls.

2. Synir Tóla: Ússí, Refaja, Jeríel, Jahemaí, Jíbsam og Samúel. Voru þeir höfðingjar í ættum sínum í Tóla, kappar miklir í ættum sínum; voru þeir á dögum Davíðs tuttugu og tvö þúsund og sex hundruð að tölu.

3. Synir Ússí voru: Jísrahja; synir Jísrahja: Míkael, Óbadía, Jóel, Jissía, alls fimm ætthöfðingjar.

4. Og til þeirra töldust eftir ættum þeirra, eftir frændliði þeirra, hermannasveitir, þrjátíu og sex þúsund manns, því að þeir áttu margar konur og börn.

5. Og frændur þeirra, allar ættir Íssakars, voru kappar miklir. Töldust þeir alls vera áttatíu og sjö þúsundir.

6. Synir Benjamíns: Bela, Beker, Jedíael – þrír alls.

7. Og synir Bela: Esbón, Ússí, Ússíel, Jerímót og Írí, fimm alls. Voru þeir ætthöfðingjar og kappar miklir, og töldust þeir að vera tuttugu og tvö þúsund þrjátíu og fjórir.

8. Og synir Bekers: Semíra, Jóas, Elíeser, Eljóenaí, Omrí, Jeremót, Abía, Anatót og Alemet. Allir þessir voru synir Bekers.

9. Og þeir töldust eftir ættum sínum, ætthöfðingjum sínum, er voru kappar miklir, tuttugu þúsund og tvö hundruð.

10. Og synir Jedíaels: Bílhan; og synir Bílhans: Jeús, Benjamín, Ehúð, Kenaana, Setan, Tarsis og Ahísahar.

11. Allir þessir voru synir Jedíaels, ætthöfðingjar, kappar miklir, seytján þúsund og tvö hundruð vígra manna.

12. Súppím og Húppím voru synir Írs, en Húsím sonur Akers.

13. Synir Naftalí: Jahsíel, Gúní, Jeser og Sallúm, synir Bílu.

14. Synir Manasse: Asríel, er kona hans ól. Hin sýrlenska hjákona hans ól Makír, föður Gíleaðs.

15. Og Makír tók konu handa Húppím og Súppím, en systir hans hét Maaka. Hinn annar hét Selófhað, og Selófhað átti dætur.

16. Og Maaka, kona Makírs, ól son og nefndi hann Peres. En bróðir hans hét Seres, og synir hans voru Úlam og Rekem.

17. Og synir Úlams: Bedan. Þessir eru synir Gíleaðs Makírssonar, Manassesonar.

18. En Hammóleket systir hans ól Íshód, Abíeser og Mahela.

19. Og synir Semída voru: Ahjan, Sekem, Líkhí og Aníam.

20. Synir Efraíms: Sútela, hans son var Bered, hans son Tahat, hans son Eleada, hans son Tahat,

21. hans son Sóbad, hans son Sútela, Eser og Elead, en Gat-menn, þeir er fæddir voru í landinu, drápu þá, er þeir fóru til þess að ræna hjörðum þeirra.

22. Þá harmaði Efraím faðir þeirra lengi, og bræður hans komu til þess að hugga hann.

23. Og hann gekk inn til konu sinnar, og hún varð þunguð og ól son, og hann nefndi hann Bería, því að ógæfu hafði að borið í húsi hans.

24. En dóttir hans var Seera. Hún byggði neðri og efri Bet Hóron og Ússen Seera.

25. Og sonur hans var Refa og Resef. Hans son var Tela, hans son Tahan,

26. hans son Laedan, hans son Ammíhúd, hans son Elísama,

27. hans son Nún, hans son Jósúa.

28. Óðal þeirra og bústaðir voru: Betel og þorpin umhverfis, austur að Naaran og vestur að Geser og þorpunum umhverfis, enn fremur Síkem og þorpin umhverfis til Aja og þorpanna umhverfis.

29. Og í höndum Manassesona voru: Bet Sean og þorpin umhverfis, Taana og þorpin umhverfis, Megiddó og þorpin umhverfis, Dór og þorpin umhverfis. Þar bjuggu synir Jósefs, sonar Ísraels.

30. Synir Assers: Jímna, Jísva, Jísví og Bería, og systir þeirra var Seera.

31. Og synir Bería: Heber og Malkíel. Hann er faðir Birsaíts.

32. En Heber gat Jaflet, Semer, Hótam og Súu, systur þeirra.

33. Og synir Jaflets: Pasak, Bímehal og Asvat. Þessir voru synir Jaflets.

34. Og synir Semers: Ahí, Róhga, Húbba og Aram.

35. Og synir Helems, bróður hans: Sófa, Jímna, Seles og Amal.

36. Synir Sófa voru: Súa, Harnefer, Súal, Berí, Jímra,

37. Beser, Hód, Samma, Silsa, Jítran og Beera.

38. Og synir Jeters: Jefúnne, Pispa og Ara.

39. Og synir Úlla: Ara, Hanníel og Risja.

40. Allir þessir voru synir Assers, ætthöfðingjar, frábærir kappar, höfðingjar meðal þjóðhöfðingja. Töldust þeir, er skráðir voru til herþjónustu, tuttugu og sex þúsundir manns.

About 1 Kroníkubók Chapter 7

Read 1 Kroníkubók Chapter 7 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 1 Kroníkubók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: 1 Kroníkubók
Chapter: 7
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading 1 Kroníkubók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading 1 Kroníkubók Chapter 7 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is 1 Kroníkubók Chapter 7?

1 Kroníkubók Chapter 7 is part of the Book of 1 Kroníkubók in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete 1 Kroníkubók Chapter 7 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from 1-kronikubok

  1. 1 Kroníkubók Chapter 28
  2. 1 Kroníkubók Chapter 3
  3. 1 Kroníkubók Chapter 27
  4. 1 Kroníkubók Chapter 4
  5. 1 Kroníkubók Chapter 23
  6. 1 Kroníkubók Chapter 12
  7. 1 Kroníkubók Chapter 17

Explore More from Gamla Testamentið

  1. Jesaja Chapter 6
  2. Orðskviðirnir Chapter 14
  3. Sálmarnir Chapter 112
  4. Esekíel Chapter 7
  5. Amos Chapter 1
  6. 1 Samúelsbók Chapter 29
  7. Jeremía Chapter 6

Related Chapters & Readings

  1. Hebreabréfið Chapter 4
  2. 1 Samúelsbók Chapter 9
  3. 1 Samúelsbók Chapter 16
  4. 1 Pétursbréf Chapter 3
  5. 1 Mósebók Chapter 14
  6. 2 Samúelsbók Chapter 1
  7. Orðskviðirnir Chapter 19
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *