Nehemíabók Chapter 7

For English

Read Nehemíabók Chapter 7 Online

Read Nehemíabók Chapter 7 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Nehemíabók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Nehemíabók and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Nehemíabók 7

Kafli 7

1. Þegar nú múrinn var byggður, setti ég hurðirnar í, og hliðvörðunum og söngvurunum og levítunum var falið eftirlitið.

2. Og ég skipaði Hananí bróður minn og Hananja, yfirmann vígisins, yfir Jerúsalem, því að hann var svo áreiðanlegur maður og guðhræddur, að fáir voru hans líkar.

3. Og ég sagði við þá: "Ekki skal ljúka upp hliðum Jerúsalem fyrr en sól er komin hátt á loft, og áður en verðirnir fara burt, skal hurðunum lokað og slár settar fyrir. Og það skal setja verði af Jerúsalembúum, hvern á sína varðstöð, og það hvern gegnt húsi sínu."

4. Borgin var víðáttumikil og stór, en fátt fólk í henni og engin nýbyggð hús.

5. Þá blés Guð minn mér því í brjóst að safna saman tignarmönnunum, yfirmönnunum og lýðnum, til þess að láta taka manntal eftir ættum. Og ég fann ættarskrá þeirra, er fyrst höfðu farið heim, og þar fann ég ritað:

6. Þessir eru þeir úr skattlandinu, er heim fóru úr herleiðingarútlegðinni, þeir er Nebúkadnesar Babelkonungur hafði herleitt og nú sneru aftur til Jerúsalem og Júda, hver til sinnar borgar,

7. þeir sem komu með Serúbabel, Jósúa, Nehemía, Asarja, Raamja, Nahamaní, Mordekai, Bilsan, Misperet, Bigvaí, Nehúm og Baana. Talan á mönnum Ísraelslýðs var:

8. Niðjar Parós: 2.172.

9. Niðjar Sefatja: 372.

10. Niðjar Ara: 652.

11. Niðjar Pahat Móabs, sem sé niðjar Jesúa og Jóabs: 2.818.

12. Niðjar Elams: 1.254.

13. Niðjar Sattú: 845.

14. Niðjar Sakkaí: 760.

15. Niðjar Binnúí: 648.

16. Niðjar Bebaí: 628.

17. Niðjar Asgads: 2.322.

18. Niðjar Adóníkams: 667.

19. Niðjar Bigvaí: 2.067.

20. Niðjar Adíns: 655.

21. Niðjar Aters, frá Hiskía: 98.

22. Niðjar Hasúms: 328.

23. Niðjar Besaí: 324.

24. Niðjar Harífs: 112.

25. Ættaðir frá Gíbeon: 95.

26. Ættaðir frá Betlehem og Netófa: 188.

27. Menn frá Anatót: 128.

28. Menn frá Bet Asmavet: 42.

29. Menn frá Kirjat Jearím, Kefíra og Beerót: 743.

30. Menn frá Rama og Geba: 621.

31. Menn frá Mikmas: 122.

32. Menn frá Betel og Aí: 123.

33. Menn frá Nebó: 52.

34. Niðjar Elams hins annars: 1.254.

35. Niðjar Haríms: 320.

36. Ættaðir frá Jeríkó: 345.

37. Ættaðir frá Lód, Hadíd og Ónó: 721.

38. Ættaðir frá Senaa: 3.930.

39. Prestarnir: Niðjar Jedaja, af ætt Jesúa: 973.

40. Niðjar Immers: 1.052.

41. Niðjar Pashúrs: 1.247.

42. Niðjar Haríms: 1.017.

43. Levítarnir: Niðjar Jesúa og Kadmíels, af niðjum Hódeja: 74.

44. Söngvararnir: Niðjar Asafs: 148.

45. Hliðverðirnir: Niðjar Sallúms, niðjar Aters, niðjar Talmóns, niðjar Akúbs, niðjar Hatíta, niðjar Sóbaí: 138.

46. Musterisþjónarnir: Niðjar Síha, niðjar Hasúfa, niðjar Tabbaóts,

47. niðjar Kerós, niðjar Sía, niðjar Padóns,

48. niðjar Lebana, niðjar Hagaba, niðjar Salmaí,

49. niðjar Hanans, niðjar Giddels, niðjar Gahars,

50. niðjar Reaja, niðjar Resíns, niðjar Nekóda,

51. niðjar Gassams, niðjar Ússa, niðjar Pasea,

52. niðjar Besaí, niðjar Meúníta, niðjar Nefísíta,

53. niðjar Bakbúks, niðjar Hakúfa, niðjar Harhúrs,

54. niðjar Baselíts, niðjar Mehída, niðjar Harsa,

55. niðjar Barkós, niðjar Sísera, niðjar Tema,

56. niðjar Nesía, niðjar Hatífa.

57. Niðjar þræla Salómons: Niðjar Sótaí, niðjar Sóferets, niðjar Perída,

58. niðjar Jaala, niðjar Darkóns, niðjar Giddels,

59. niðjar Sefatja, niðjar Hattils, niðjar Pókeret Hassebaíms, niðjar Amóns.

60. Allir musterisþjónarnir og niðjar þræla Salómons voru 392.

61. Og þessir eru þeir, sem fóru heim frá Tel Mela, Tel Harsa, Kerúb, Addón og Immer, en kunnu eigi að greina ætt sína og uppruna, hvort þeir væru komnir af Ísrael:

62. niðjar Delaja, niðjar Tobía, niðjar Nekóda: 642.

63. Og af prestunum: niðjar Hobaja, niðjar Hakkós, niðjar Barsillaí, er gengið hafði að eiga eina af dætrum Barsillaí Gíleaðíta og nefndur hafði verið nafni þeirra.

64. Þessir leituðu að ættartölum sínum, en þær fundust ekki. Var þeim því hrundið frá prestdómi.

65. Og landstjórinn sagði þeim, að þeir mættu ekki eta af hinu háheilaga, þar til er kæmi fram prestur, er kynni að fara með úrím og túmmím.

66. Allur söfnuðurinn var til samans 42.360,

67. auk þræla þeirra og ambátta, er voru 7.337. Þeir höfðu 245 söngvara og söngkonur.

68. Hestar þeirra voru 736, múlar 245,

69. úlfaldar 435, asnar 6.720.

70. Og nokkur hluti ætthöfðingjanna gaf til byggingarinnar. Landstjórinn gaf í sjóðinn: í gulli 1.000 daríka, 50 fórnarskálar og 530 prestserki.

71. Og sumir ætthöfðingjanna gáfu í byggingarsjóðinn: í gulli 20.000 daríka og í silfri 2.200 mínur.

72. Og það, sem hitt fólkið gaf, var: í gulli 20.000 daríkar og í silfri 2.000 mínur og 67 prestserkir.

73. Þannig tóku prestarnir og levítarnir og hliðverðirnir og söngvararnir og nokkrir af lýðnum og musterisþjónarnir og allur Ísrael sér bólfestu í borgum sínum. En er sjöundi mánuðurinn kom, voru Ísraelsmenn í borgum sínum.

About Nehemíabók Chapter 7

Read Nehemíabók Chapter 7 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Nehemíabók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Nehemíabók
Chapter: 7
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Nehemíabók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Nehemíabók Chapter 7 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Nehemíabók Chapter 7?

Nehemíabók Chapter 7 is part of the Book of Nehemíabók in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Nehemíabók Chapter 7 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Gamla Testamentið

  1. Míka Chapter 3
  2. Míka Chapter 2
  3. Míka Chapter 1
  4. Míka Chapter 7
  5. Míka Chapter 5
  6. Míka Chapter 6
  7. Míka Chapter 4

Explore More from nehemiabok

  1. Nehemíabók Chapter 3
  2. Nehemíabók Chapter 4
  3. Nehemíabók Chapter 10
  4. Nehemíabók Chapter 9
  5. Nehemíabók Chapter 11
  6. Nehemíabók Chapter 8
  7. Nehemíabók Chapter 5

Related Chapters & Readings

  1. Jeremía Chapter 46
  2. 1 Konungabók Chapter 22
  3. Ljóðaljóðin Chapter 4
  4. Sálmarnir Chapter 40
  5. Harmljóðin Chapter 1
  6. Nahúm Chapter 2
  7. 1 Samúelsbók Chapter 12
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *