Read Jeremía Chapter 52 Online
Read Jeremía Chapter 52 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jeremía in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Jeremía and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
Jeremía 52
Kafli 52
1. Sedekía var tuttugu og eins árs að aldri, þá er hann varð konungur, og ellefu ár ríkti hann í Jerúsalem. Móðir hans hét Hamútal Jeremíadóttir og var frá Líbna.
2. Hann gjörði það sem illt var í augum Drottins, með öllu svo sem gjört hafði Jójakím.
3. Vegna reiði Drottins fór svo fyrir Jerúsalem og Júda, að hann varpaði þeim burt frá augliti sínu. Sedekía brá trúnaði við Babelkonung,
4. og á níunda ríkisári hans, á tíunda degi hins tíunda mánaðar, kom Nebúkadresar Babelkonungur með allan her sinn til Jerúsalem, og þeir settust um hana og reistu hervirki hringinn í kringum hana.
5. Varð borgin þannig í umsátri fram á ellefta ríkisár Sedekía konungs.
6. Í fjórða mánuðinum, á níunda degi mánaðarins, er hungrið tók að sverfa að borginni og landslýður var orðinn vistalaus,
7. þá var brotið skarð inn í borgina. Og konungur og allir hermennirnir flýðu og fóru út úr borginni um nóttina gegnum hliðið milli beggja múranna, sem er hjá konungsgarðinum, þótt Kaldear umkringdu borgina, og héldu leiðina til sléttlendisins.
8. Her Kaldea veitti konungi eftirför og náði Sedekía á Jeríkóvöllum, er allur her hans hafði tvístrast burt frá honum.
9. Tóku þeir konung höndum og fluttu hann til Ribla í Hamat-héraði til Babelkonungs. Hann kvað upp dóm hans.
10. Lét Babelkonungur drepa sonu Sedekía fyrir augum hans. Sömuleiðis lét hann drepa alla höfðingja Júda í Ribla.
11. En Sedekía lét hann blinda og binda eirfjötrum. Síðan lét Babelkonungur flytja hann til Babýlon og setja í fangelsi, og var hann þar til dauðadags.
12. En í fimmta mánuði, á tíunda degi mánaðarins – það er á nítjánda ríkisári Nebúkadresars Babelkonungs – kom Nebúsaradan lífvarðarforingi, vildarþjónn Babelkonungs, til Jerúsalem
13. og brenndi musteri Drottins og konungshöllina og öll hús í Jerúsalem, og öll hús stórmennanna brenndi hann í eldi.
14. En allur Kaldeaher, sá er var með lífvarðarforingjanum, reif niður alla múrana umhverfis Jerúsalem.
15. En leifar lýðsins, þá er eftir voru í borginni, og liðhlaupana, þá er hlaupist höfðu í lið með Babelkonungi, og þá sem eftir voru af iðnaðarmönnum, herleiddi Nebúsaradan lífvarðarforingi til Babýlon.
16. En af almúga landsins lét Nebúsaradan lífvarðarforingi nokkra verða eftir sem víngarðsmenn og akurkarla.
17. Eirsúlurnar, er voru við musteri Drottins, og undirstöðupallana og eirhafið, er voru í musteri Drottins, brutu Kaldear sundur og fluttu allan eirinn til Babýlon.
18. Og katlana, eldspaðana, skarbítana, ádreifingarskálarnar, bollana og öll eiráhöldin, er notuð voru við guðsþjónustuna, tóku þeir.
19. Þá tók og lífvarðarforinginn katlana, eldpönnurnar, ádreifingarskálarnar, pottana, ljósastikurnar, bollana, kerin – allt sem var af gulli og silfri.
20. Súlurnar tvær, hafið og undirstödupallana, er Salómon konungur hafði gjöra látið í musteri Drottins – eirinn úr öllum þessum áhöldum varð eigi veginn.
21. En hvað súlurnar snertir, þá var önnur súlan átján álnir á hæð, og tólf álna langan þráð þurfti til að ná utan um hana, en hún var fjögra fingra þykk, hol að innan.
22. En ofan á henni var súlnahöfuð af eiri og var það fimm álnir á hæð. Riðið net og granatepli voru umhverfis höfuðið, allt af eiri, og eins var á hinni súlunni.
23. En granateplin voru níutíu og sex, þau er út sneru. Öll granateplin voru hundrað á riðna netinu allt um kring.
24. Og lífvarðarforinginn tók Seraja höfuðprest og Sefanía annan prest og þröskuldsverðina þrjá.
25. Og úr borginni tók hann hirðmann einn, er skipaður var yfir hermennina, og sjö menn af þeim, er daglega litu auglit konungs, er fundust í borginni, og ritara hershöfðingjans, þess er bauð út landslýðnum, og sextíu manns af sveitafólki, því er fannst í borginni.
26. Þessa menn tók Nebúsaradan lífvarðarforingi og flutti þá til Ribla til Babelkonungs.
27. En Babelkonungur lét drepa þá í Ribla í Hamat-héraði. Þannig var Júda herleiddur úr landi sínu.
28. Þetta var mannfólkið, sem Nebúkadresar herleiddi: Sjöunda árið 3023 Júdabúa,
29. átjánda ríkisár Nebúkadresars 832 sálir úr Jerúsalem.
30. Tuttugasta og þriðja ríkisár Nebúkadresars herleiddi Nebúsaradan lífvarðarforingi 745 sálir af Júdabúum. Alls voru það 4600 sálir.
31. Og á þrítugasta og sjöunda útlegðarári Jójakíns Júdakonungs, í tólfta mánuðinum, tuttugasta og fimmta dag mánaðarins, náðaði Evíl-Meródak Babelkonungur – árið sem hann kom til ríkis – Jójakín Júdakonung og tók hann út úr dýflissunni.
32. Og hann talaði vingjarnlega við hann og setti stól hans ofar stólum hinna konunganna, sem hjá honum voru í Babýlon.
33. Og hann fór úr bandingjafötum sínum og borðaði stöðuglega með honum, meðan hann lifði.
34. En uppeldi hans – hið stöðuga uppeldi – var honum veitt af Babelkonungi, það er hann þurfti á degi hverjum, alla ævi hans, allt þar til er hann dó.
About Jeremía Chapter 52
Read Jeremía Chapter 52 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jeremía in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: Jeremía
Chapter: 52
Testament: Old Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Jeremía. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading Jeremía Chapter 52 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is Jeremía Chapter 52?
Jeremía Chapter 52 is part of the Book of Jeremía in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete Jeremía Chapter 52 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from Gamla Testamentið
Explore More from Jeremia
- Jeremia Chapter 10
- Jeremia Chapter 42
- Jeremia Chapter 5
- Jeremía Chapter 25
- Jeremia Chapter 38
- Jeremia Chapter 40
- Jeremia Chapter 4