Sakaría Chapter 14

For English

Read Sakaría Chapter 14 Online

Read Sakaría Chapter 14 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Sakaría in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Sakaría and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Sakaría 14

Kafli 14

1. Sjá, sá dagur kemur frá Drottni, að herfangi þínu verður skipt mitt í sjálfri þér.

2. Og ég mun safna öllum þjóðunum til hernaðar móti Jerúsalem, og borgin mun verða tekin, húsin rænd og konurnar smánaðar. Helmingur borgarmanna mun verða herleiddur, en hinn lýðurinn mun ekki upprættur verða úr borginni.

3. Og Drottinn mun út fara og berjast við þessar þjóðir, eins og þegar hann barðist forðum á orustudeginum.

4. Fætur hans munu á þeim degi standa á Olíufjallinu, sem er austanvert við Jerúsalem, og Olíufjallið mun klofna um þvert frá austri til vesturs, og þar mun verða geysivíður dalur, því að annar hluti fjallsins mun undan síga til norðurs, en hinn til suðurs.

5. En þér munuð flýja í fjalldal minn, því að fjalldalurinn nær til Asal. Og þér munuð flýja, eins og þér flýðuð undan landskjálftanum á dögum Ússía Júdakonungs. En Drottinn, Guð minn, mun koma og allir heilagir með honum.

6. Á þeim degi mun hvorki verða hiti, kuldi né frost,

7. og það mun verða óslitinn dagur – hann er Drottni kunnur – hvorki dagur né nótt, og jafnvel um kveldtíma mun vera bjart.

8. Á þeim degi munu lifandi vötn út fljóta frá Jerúsalem, og mun annar helmingur þeirra falla í austurhafið, en hinn helmingurinn í vesturhafið. Skal það verða bæði sumar og vetur.

9. Drottinn mun þá vera konungur yfir öllu landinu. Á þeim degi mun Drottinn vera einn og nafn hans eitt.

10. Allt landið frá Geba til Rimmon fyrir sunnan Jerúsalem mun verða að einni sléttu, en hún mun standa háreist og óhögguð á stöðvum sínum, frá Benjamínshliði þangað að er fyrra hliðið var, allt að hornhliðinu, og frá Hananelturni til konungsvínþrónna.

11. Menn munu búa í henni, og bannfæring skal eigi framar til vera, og Jerúsalem skal óhult standa.

12. Og þetta mun verða plágan, sem Drottinn mun láta ganga yfir allar þær þjóðir, sem fóru herför gegn Jerúsalem: Hann mun láta hold þeirra upp þorna, meðan þeir enn standa á fótum, augu þeirra munu hjaðna í augnatóttunum og tungan visna í munninum.

13. Á þeim degi mun mikill felmtur frá Drottni koma yfir þá, og þeir munu þrífa hver í höndina á öðrum og hver höndin vera uppi á móti annarri.

14. Jafnvel Júda mun berjast gegn Jerúsalem. Þá mun auði allra þjóðanna, sem umhverfis eru, safnað verða saman: gulli, silfri og klæðum hrönnum saman.

15. Og alveg sama plágan mun koma yfir hesta, múla, úlfalda, asna og yfir allar þær skepnur, sem verða munu í þeim herbúðum.

16. En allir þeir, sem eftir verða af öllum þeim þjóðum, sem farið hafa móti Jerúsalem, munu á hverju ári fara upp þangað til þess að falla fram fyrir konunginum, Drottni allsherjar, og til að halda laufskálahátíðina.

17. En þeir menn af kynkvíslum jarðarinnar, sem ekki fara upp til Jerúsalem til þess að falla fram fyrir konunginum, Drottni allsherjar, yfir þá mun engin regnskúr koma.

18. Og ef kynkvísl Egyptalands fer eigi upp þangað og kemur ekki, þá mun sama plágan koma yfir þá sem Drottinn lætur koma yfir þær þjóðir, er eigi fara upp þangað til að halda laufskálahátíðina.

19. Þetta mun verða hegning Egypta og hegning allra þeirra þjóða, sem eigi fara upp þangað, til þess að halda laufskálahátíðina.

20. Á þeim degi skal standa á bjöllum hestanna: "Helgaður Drottni," og katlarnir í húsi Drottins munu verða eins stórir og fórnarskálarnar fyrir altarinu.

21. Og sérhver ketill í Jerúsalem og í Júda mun helgaður vera Drottni allsherjar, og allir þeir sem fórnfæra vilja, munu koma og taka einhvern þeirra og sjóða í, og á þeim degi mun enginn mangari framar vera í húsi Drottins allsherjar.

About Sakaría Chapter 14

Read Sakaría Chapter 14 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Sakaría in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Sakaría
Chapter: 14
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Sakaría. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Sakaría Chapter 14 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Sakaría Chapter 14?

Sakaría Chapter 14 is part of the Book of Sakaría in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Sakaría Chapter 14 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Gamla Testamentið

  1. Míka Chapter 3
  2. Míka Chapter 1
  3. Míka Chapter 2
  4. Míka Chapter 7
  5. Míka Chapter 5
  6. Míka Chapter 4
  7. Míka Chapter 6

Explore More from sakaria

  1. Sakaría Chapter 11
  2. Sakaría Chapter 7
  3. Sakaría Chapter 2
  4. Sakaria Chapter 12
  5. Sakaría Chapter 8
  6. Sakaria Chapter 11
  7. Sakaria Chapter 6

Related Chapters & Readings

  1. Orðskviðirnir Chapter 21
  2. Sálmarnir Chapter 27
  3. Markús Chapter 1
  4. Sálmarnir Chapter 118
  5. Matteus Chapter 7
  6. 4 Mósebók Chapter 36
  7. 1 Þessaloníkubréf Chapter 2
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *