Jesaja Chapter 8

For English

Read Jesaja Chapter 8 Online

Read Jesaja Chapter 8 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jesaja in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Jesaja and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Jesaja 8

Kafli 8

1. Drottinn sagði við mig: "Tak þér stórt spjald og rita þú á það með algengu letri: Hraðfengi Skyndirán.

2. Og tak mér skilríka votta, prestinn Úría og Sakaría Jeberekíason."

3. Og ég nálgaðist spákonuna, og hún varð þunguð og ól son. Þá sagði Drottinn við mig: "Lát þú hann heita Hraðfengi Skyndirán.

4. Því að áður en sveinninn lærir að kalla ,faðir minn' og ,móðir mín,' skal auður Damaskus og herfang Samaríu burt flutt verða fram fyrir Assýríukonung."

5. Og Drottinn talaði enn við mig og sagði:

6. Af því að þessi lýður fyrirlítur hin straumhægu Sílóa-vötn, en fagnar Resín og Remaljasyni,

7. sjá, fyrir því mun Drottinn láta yfir þá koma hin stríðu og miklu vötn fljótsins – Assýríukonung og allt hans einvalalið. Skal það ganga upp yfir alla farvegu sína og flóa yfir alla bakka.

8. Og það skal brjótast inn í Júda, flæða þar yfir og geysast áfram, þar til manni tekur undir höku, og breiða vængi sína yfir allt þitt land, eins og það er vítt til, Immanúel!

9. Vitið það, lýðir, og hlustið á, allar fjarlægar landsálfur! Herklæðist, þér skuluð samt láta hugfallast! Herklæðist, þér skuluð samt láta hugfallast!

10. Takið saman ráð yðar, þau skulu að engu verða. Mælið málum yðar, þau skulu engan framgang fá, því að Guð er með oss!

11. Svo mælti Drottinn við mig, þá er hönd hans hreif mig og hann varaði mig við því að ganga sama veg og þetta fólk gengur:

12. Þér skuluð ekki kalla allt það ,samsæri', sem þetta fólk kallar ,samsæri', og ekki óttast það, sem það óttast, og eigi skelfast.

13. Drottinn allsherjar, hann skuluð þér telja heilagan, hann sé yður ótti, hann sé yður skelfing.

14. Og hann skal verða helgidómur og ásteytingarsteinn og hrösunarhella fyrir báðar ættþjóðir Ísraels og snara og gildra fyrir Jerúsalembúa.

15. Og margir af þeim munu hrasa, falla og meiðast, festast í snörunni og verða veiddir.

16. Ég bind saman vitnisburðinn og innsigla kenninguna hjá lærisveinum mínum.

17. Ég treysti Drottni, þótt hann byrgi nú auglit sitt fyrir Jakobs niðjum, og ég bíð hans.

18. Sjá, ég og synirnir, sem Drottinn hefir gefið mér, vér erum til tákns og jarteikna í Ísrael frá Drottni allsherjar, sem býr á Síonfjalli.

19. Ef þeir segja við yður: "Leitið til andasæringarmanna og spásagnarmanna, sem hvískra og umla! – Á ekki fólk að leita frétta hjá guðum sínum og leita til hinna dauðu vegna hinna lifandi?" –

20. þá svarið þeim: "Til kenningarinnar og vitnisburðarins!" Ef menn tala ekki samkvæmt þessu orði, hafa þeir engan morgunroða

21. og munu ráfa hrjáðir og hungraðir. Og er þá hungrar munu þeir fyllast bræði og formæla konungi sínum og Guði sínum. Hvort sem horft er til himins

22. eða litið til jarðar, sjá, þar er neyð og myrkur. Í angistarsorta og niðdimmu eru þeir útreknir.

About Jesaja Chapter 8

Read Jesaja Chapter 8 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jesaja in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Jesaja
Chapter: 8
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Jesaja. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Jesaja Chapter 8 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Jesaja Chapter 8?

Jesaja Chapter 8 is part of the Book of Jesaja in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Jesaja Chapter 8 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Gamla Testamentið

  1. Míka Chapter 1
  2. Míka Chapter 3
  3. Míka Chapter 2
  4. Míka Chapter 7
  5. Míka Chapter 5
  6. Míka Chapter 4
  7. Míka Chapter 6

Explore More from Jesaja

  1. Jesaja Chapter 29
  2. Jesaja Chapter 47
  3. Jesaja Chapter 57
  4. Jesaja Chapter 50
  5. Jesaja Chapter 60
  6. Jesaja Chapter 22
  7. Jesaja Chapter 37

Related Chapters & Readings

  1. Amos Chapter 4
  2. Sálmarnir Chapter 5
  3. 5 Mósebók Chapter 24
  4. Markús Chapter 15
  5. Matteus Chapter 3
  6. 2 Kroníkubók Chapter 6
  7. Sefanía Chapter 3
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *