Jeremía Chapter 43

For English

Read Jeremía Chapter 43 Online

Read Jeremía Chapter 43 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jeremía in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Jeremía and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Jeremía 43

Kafli 43

1. En er Jeremía hafði lokið að mæla til alls lýðsins öll orð Drottins, Guðs þeirra, öll þau orð, er Drottinn, Guð þeirra, hafði sent hann með til þeirra,

2. þá sögðu Asarja Hósajason og Jóhanan Kareason og allir ofstopafullu mennirnir við Jeremía: "Þú talar lygi! Drottinn, Guð vor, hefir eigi sent þig og sagt: ,Þér skuluð eigi fara til Egyptalands, til þess að dveljast þar sem flóttamenn!'

3. heldur egnir Barúk Neríason þig upp á móti oss, til þess að selja oss á vald Kaldeum, að þeir drepi oss eða herleiði oss til Babýlon."

4. Og ekki hlýddu Jóhanan Kareason og allir hershöfðingjarnir og allur lýðurinn skipun Drottins, að vera kyrrir í Júda,

5. heldur tóku þeir Jóhanan Kareason og allir hershöfðingjarnir allar leifar Júdamanna, er aftur voru heim komnar frá öllum þeim þjóðum, þangað sem þeir höfðu verið brott reknir, til þess að dveljast í Júda,

6. menn og konur og börn og konungsdæturnar og allar þær sálir, sem Nebúsaradan lífvarðarforingi hafði skilið eftir hjá Gedalja Ahíkamssyni, Safanssonar, svo og Jeremía spámann og Barúk Neríason,

7. og fóru til Egyptalands, því að þeir hlýddu ekki skipun Drottins. Og þeir fóru til Takpanes.

8. Orð Drottins kom til Jeremía í Takpanes:

9. Tak þér í hönd stóra steina og graf þá í steinlími niður í steinhlaðið, sem er úti fyrir dyrum hallar Faraós í Takpanes, í viðurvist flóttamannanna frá Júda

10. og seg við þá: Svo segir Drottinn allsherjar, Ísraels Guð: Sjá, ég sendi og læt sækja Nebúkadresar Babelkonung, þjón minn, og reisi hásæti hans yfir þessum steinum, er ég hefi grafið niður, og hann skal breiða hásætisdúk sinn yfir þá.

11. Og hann mun koma og ljósta Egyptaland: Hann mun framselja dauðanum þann, sem dauða er ætlaður, herleiðingunni þann, sem herleiðingu er ætlaður, og sverðinu þann, sem sverði er ætlaður!

12. Ég mun leggja eld í musteri guða Egyptalands, og hann mun brenna þau til ösku og flytja burt guði þeirra, og hann mun vefja um sig Egyptalandi, eins og hirðir vefur um sig skikkju sinni. Síðan mun hann fara þaðan óáreittur.

13. Og hann mun brjóta sundur súlurnar í Betsemes í Egyptalandi og brenna musteri guða Egyptalands í eldi.

About Jeremía Chapter 43

Read Jeremía Chapter 43 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jeremía in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Jeremía
Chapter: 43
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Jeremía. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Jeremía Chapter 43 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Jeremía Chapter 43?

Jeremía Chapter 43 is part of the Book of Jeremía in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Jeremía Chapter 43 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Gamla Testamentið

  1. Míka Chapter 1
  2. Míka Chapter 3
  3. Míka Chapter 2
  4. Míka Chapter 7
  5. Míka Chapter 5
  6. Míka Chapter 4
  7. Míka Chapter 6

Explore More from Jeremia

  1. Jeremía Chapter 45
  2. Jeremia Chapter 48
  3. Jeremia Chapter 24
  4. Jeremia Chapter 8
  5. Jeremia Chapter 7
  6. Jeremia Chapter 10
  7. Jeremia Chapter 11

Related Chapters & Readings

  1. 1 Konungabók Chapter 17
  2. Esekíel Chapter 21
  3. Sálmarnir Chapter 20
  4. Opinberunarbókin Chapter 18
  5. 1 Konungabók Chapter 1
  6. Sálmarnir Chapter 79
  7. Jósúabók Chapter 9
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *