Read Jeremía Chapter 39 Online
Read Jeremía Chapter 39 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jeremía in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Jeremía and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
Jeremía 39
Kafli 39
1. Á níunda ríkisári Sedekía konungs í Júda, í tíunda mánuðinum, kom Nebúkadresar konungur í Babýlon og allur her hans til Jerúsalem, og settust um hana.
2. En á ellefta ríkisári Sedekía, í fjórða mánuðinum, níunda dag mánaðarins, var brotið skarð inn í borgina.
3. En er Jerúsalem var unnin, komu allir hershöfðingjar Babelkonungs og settust að í Miðhliðinu, þeir Nergalsareser, höfðingi í Símmagir, Nebúsarsekím hirðstjóri og margir aðrir höfðingjar Babelkonungs.
4. En er Sedekía Júdakonungur og allir hermennirnir sáu þetta, flýðu þeir og fóru um nóttina út úr borginni, veginn sem liggur út að konungsgarðinum, gegnum hliðið milli beggja múranna og héldu leiðina til Jórdandalsins.
5. En her Kaldea veitti þeim eftirför og náði Sedekía á Jeríkó-völlum. Tóku þeir hann og fluttu hann til Ribla í Hamathéraði til Nebúkadresars Babelkonungs. Hann kvað upp dóm hans.
6. Lét Babelkonungur drepa sonu Sedekía í Ribla fyrir augum hans. Sömuleiðis lét Babelkonungur drepa alla tignarmenn í Júda.
7. En Sedekía lét hann blinda og binda eirfjötrum til þess að flytja hann til Babýlon.
8. Kaldear brenndu konungshöllina og hús lýðsins og rifu niður múra Jerúsalem.
9. En leifar lýðsins, þá er eftir voru í borginni, og liðhlaupana, þá er hlaupist höfðu í lið með honum, og leifar lýðsins, þá er eftir voru, herleiddi Nebúsaradan lífvarðarforingi til Babýlon,
10. en af almúgamönnum, sem ekkert áttu, lét Nebúsaradan lífvarðarforingi nokkra verða eftir í Júda og gaf þeim þann dag víngarða og akra.
11. En um Jeremía gaf Nebúkadresar Babelkonungur út svolátandi skipun fyrir milligöngu Nebúsaradans lífvarðarforingja:
12. "Tak hann og annast hann og gjör honum ekkert illt, heldur gjör við hann svo sem hann mælist til við þig!"
13. Þá sendu þeir Nebúsaradan lífvarðarforingi og Nebúsasban hirðstjóri og Nergalsareser hershöfðingi og allir yfirmenn Babelkonungs
14. menn og létu sækja Jeremía í varðgarðinn og seldu hann í hendur Gedalja Ahíkamssyni, Safanssonar, að hann færi með hann heim. Og þannig varð hann kyrr meðal lýðsins.
15. Meðan Jeremía sat innilokaður í varðgarðinum, hafði orð Drottins komið til hans:
16. Far og seg við Ebed-Melek Blálending: Svo segir Drottinn allsherjar, Ísraels Guð: Sjá, ég læt orð mín um ógæfu, en eigi um hamingju, koma fram á þessari borg, og þau skulu rætast fyrir augum þínum á þeim degi.
17. En ég skal frelsa þig á þeim degi – segir Drottinn – og þú skalt ekki seldur verða á vald mönnum þeim, er þú hræðist,
18. heldur skal ég láta þig komast undan og þú skalt ekki falla fyrir sverði, og þú skalt hljóta líf þitt að herfangi, af því að þú hefir treyst mér – segir Drottinn.
About Jeremía Chapter 39
Read Jeremía Chapter 39 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jeremía in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: Jeremía
Chapter: 39
Testament: Old Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Jeremía. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading Jeremía Chapter 39 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is Jeremía Chapter 39?
Jeremía Chapter 39 is part of the Book of Jeremía in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete Jeremía Chapter 39 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from Gamla Testamentið
Explore More from Jeremia
- Jeremia Chapter 48
- Jeremía Chapter 34
- Jeremia Chapter 41
- Jeremia Chapter 5
- Jeremia Chapter 7
- Jeremía Chapter 33
- Jeremia Chapter 40