Jeremía Chapter 30

For English

Read Jeremía Chapter 30 Online

Read Jeremía Chapter 30 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jeremía in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Jeremía and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Jeremía 30

Kafli 30

1. Orðið sem kom til Jeremía frá Drottni:

2. Svo segir Drottinn, Ísraels Guð: Skrifa þú öll þau orð, er ég hefi til þín talað, í bók.

3. Því sjá, þeir dagar munu koma – segir Drottinn – að ég mun snúa við hag lýðs míns, Ísraels og Júda – segir Drottinn – og láta þá hverfa aftur til þess lands, sem ég gaf feðrum þeirra, og þeir skulu taka það til eignar.

4. Þessi eru orðin, sem Drottinn talaði um Ísrael og Júda.

5. Svo segir Drottinn: Hræðsluóp heyrum vér, ótti er á ferðum, en engin heill!

6. Spyrjið um og gætið að, hvort karlmaður ali barn! Hvers vegna sé ég þá alla menn með hendur á lendum, líkt og jóðsjúk kona væri, og hvers vegna eru öll andlit orðin nábleik?

7. Vei, mikill er sá dagur, hann á ekki sinn líka og angistartími er það fyrir Jakob, en hann mun frelsast frá því.

8. Á þeim degi – segir Drottinn allsherjar – mun ég sundur brjóta okið af hálsi hans og slíta af honum böndin, og útlendir menn skulu ekki lengur halda honum í þrældómi.

9. Þeir skulu þjóna Drottni, Guði sínum, og Davíð, konungi sínum, er ég mun uppvekja þeim.

10. Óttast þú ekki, þjónn minn Jakob – segir Drottinn – og hræðst þú ekki, Ísrael, því að ég frelsa þig úr fjarlægu landi og leysi niðja þína úr landinu, þar sem þeir eru herleiddir, til þess að Jakob hverfi heim aftur og njóti hvíldar og búi óhultur, án þess nokkur hræði hann.

11. Ég er með þér – segir Drottinn – til þess að frelsa þig. Ég vil gjöreyða öllum þeim þjóðum, sem ég hefi tvístrað þér á meðal. Þér einni vil ég ekki gjöreyða, heldur vil ég hirta þig í hófi, en ég vil ekki láta þér með öllu óhegnt.

12. Svo segir Drottinn: Áverki þinn er illkynjaður, sár þitt ólæknandi.

13. Enginn tekur að sér málefni þitt, við meininu er engin lækning, engin smyrsl til handa þér.

14. Allir ástmenn þínir hafa gleymt þér, þeir spyrja ekki eftir þér, af því að ég hefi lostið þig, eins og óvinur lýstur, með grimmilegri hirting, sakir fjölda misgjörða þinna, sakir þess að syndir þínar eru margar.

15. Hví æpir þú af áverka þínum, af þinni ólæknandi kvöl? Sakir fjölda misgjörða þinna, sakir þess að syndir þínar eru margar, hefi ég gjört þér þetta.

16. Fyrir því skulu allir þeir, sem þig eta, etnir verða, og allir þeir, sem þér þröngva, herleiddir verða. Og þeir, sem rupla þig, skulu verða öðrum að herfangi, og alla þá, sem þig ræna, mun ég framselja til ráns.

17. Ég mun láta koma hyldgan á sár þín og lækna þig af áverkum þínum – segir Drottinn – af því að þeir kalla þig "hina brottreknu," "Síon, sem enginn spyr eftir."

18. Svo segir Drottinn: Sjá, ég sný við högum Jakobs tjalda og miskunna mig yfir bústaði hans, til þess að borgin verði aftur reist á hæð sinni og aftur verði búið í höllinni á hennar vanastað.

19. Og þaðan skal hljóma þakkargjörð og gleðihljóð, og ég læt þeim fjölga og eigi fækka, og ég gjöri þá vegsamlega, svo að þeir séu ekki lengur lítilsvirtir.

20. Synir hans skulu vera mér sem áður, og söfnuður hans skal vera grundvallaður frammi fyrir mér, en allra kúgara hans mun ég vitja.

21. Höfðingi hans mun frá honum koma og drottnari hans fram ganga úr flokki hans. Og ég mun láta hann nálgast mig, og hann mun koma til mín, því að hver skyldi af sjálfsdáðum hætta lífi sínu í það að koma til mín? – segir Drottinn.

22. Og þá munuð þér vera mín þjóð, og ég mun vera yðar Guð.

23. Sjá, stormur Drottins brýst fram – reiði og hvirfilbylur – hann steypist yfir höfuð hinna óguðlegu.

24. Hinni brennandi reiði Drottins linnir ekki fyrr en hann hefir framkvæmt fyrirætlanir hjarta síns og komið þeim til vegar. Síðar meir munuð þér skilja það.

About Jeremía Chapter 30

Read Jeremía Chapter 30 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jeremía in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Jeremía
Chapter: 30
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Jeremía. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Jeremía Chapter 30 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Jeremía Chapter 30?

Jeremía Chapter 30 is part of the Book of Jeremía in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Jeremía Chapter 30 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Gamla Testamentið

  1. Míka Chapter 1
  2. Míka Chapter 3
  3. Míka Chapter 2
  4. Míka Chapter 7
  5. Míka Chapter 5
  6. Míka Chapter 4
  7. Míka Chapter 6

Explore More from Jeremia

  1. Jeremia Chapter 25
  2. Jeremía Chapter 1
  3. Jeremia Chapter 14
  4. Jeremia Chapter 18
  5. Jeremia Chapter 33
  6. Jeremia Chapter 37
  7. Jeremia Chapter 4

Related Chapters & Readings

  1. Rómverjar Chapter 13
  2. Sálmarnir Chapter 80
  3. 1 Samúelsbók Chapter 28
  4. 2 Mósebók Chapter 2
  5. Jesaja Chapter 36
  6. 1 Samúelsbók Chapter 2
  7. 1 Kroníkubók Chapter 14
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *