2 Mósebók Chapter 31

For English

Read 2 Mósebók Chapter 31 Online

Read 2 Mósebók Chapter 31 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 2 Mósebók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of 2 Mósebók and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

2 Mósebók 31

Kafli 31

1. Drottinn talaði við Móse og sagði:

2. "Sjá, ég hefi kvatt til Besalel Úríson, Húrssonar, af Júda ættkvísl.

3. Ég hefi fyllt hann Guðs anda, bæði vísdómi, skilningi, kunnáttu og hvers konar hagleik,

4. til þess að upphugsa listaverk og smíða úr gulli, silfri og eiri

5. og skera steina til greypingar og til tréskurðar, til þess að vinna að hvers konar smíði.

6. Og sjá, ég hefi fengið honum til aðstoðar Oholíab Akísamaksson af Dans ættkvísl. Og öllum hugvitsmönnum hefi ég gefið vísdóm, að þeir megi gjöra allt það, sem ég hefi fyrir þig lagt:

7. samfundatjaldið, sáttmálsörkina, lokið, sem er yfir henni, og öll áhöld tjaldsins,

8. borðið og áhöld þess, gull-ljósastikuna og öll áhöld hennar og reykelsisaltarið,

9. brennifórnaraltarið og öll áhöld þess, kerið og stétt þess,

10. glitklæðin, hin helgu klæði Arons prests og prestsþjónustuklæði sona hans,

11. smurningarolíuna og ilmreykelsið til helgidómsins. Allt skulu þeir gjöra eins og ég hefi fyrir þig lagt."

12. Drottinn talaði við Móse og sagði:

13. "Tala þú til Ísraelsmanna og seg: ,Sannlega skuluð þér halda mína hvíldardaga, því að það er teikn milli mín og yðar frá kyni til kyns, svo að þér vitið, að ég er Drottinn, sá er yður helgar.

14. Haldið því hvíldardaginn, því að hann skal vera yður heilagur. Hver sem vanhelgar hann, skal vissulega líflátinn verða, því að hver sem þá vinnur nokkurt verk, sá maður skal upprættur verða úr þjóð sinni.

15. Sex daga skal verk vinna, en sjöundi dagurinn er algjör hvíldardagur, helgaður Drottni. Hver sem verk vinnur á hvíldardegi, skal vissulega líflátinn verða.

16. Fyrir því skulu Ísraelsmenn gæta hvíldardagsins, svo að þeir haldi hvíldardaginn heilagan frá kyni til kyns sem ævinlegan sáttmála.

17. Ævinlega skal hann vera teikn milli mín og Ísraelsmanna, því að á sex dögum gjörði Drottinn himin og jörð, en sjöunda daginn hvíldist hann og endurnærðist.'"

18. Þegar Drottinn hafði lokið viðræðunum við Móse á Sínaífjalli, fékk hann honum tvær sáttmálstöflur, steintöflur, ritaðar með fingri Guðs.

About 2 Mósebók Chapter 31

Read 2 Mósebók Chapter 31 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 2 Mósebók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: 2 Mósebók
Chapter: 31
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading 2 Mósebók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading 2 Mósebók Chapter 31 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is 2 Mósebók Chapter 31?

2 Mósebók Chapter 31 is part of the Book of 2 Mósebók in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete 2 Mósebók Chapter 31 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from 2 Mosebok

  1. 2 Mósebók Chapter 13
  2. 2 Mósebók Chapter 9
  3. 2 Mósebók Chapter 2
  4. 2 Mósebók Chapter 35
  5. 2 Mósebók Chapter 27
  6. 2 Mósebók Chapter 15
  7. 2 Mósebók Chapter 8

Explore More from Gamla Testamentið

  1. Daníel Chapter 6
  2. Sálmarnir Chapter 47
  3. 1 Konungabók Chapter 14
  4. Prédikarinn Chapter 12
  5. Sálmarnir Chapter 5
  6. Jesaja Chapter 13
  7. Jesaja Chapter 6

Related Chapters & Readings

  1. Markús Chapter 15
  2. Míka Chapter 3
  3. Sálmarnir Chapter 111
  4. Dómarabókin Chapter 4
  5. Dómarabókin Chapter 1
  6. 2 Mósebók Chapter 15
  7. Postulasagan Chapter 16
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *