Sefanía Chapter 1

For English

Read Sefanía Chapter 1 Online

Read Sefanía Chapter 1 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Sefanía in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Sefanía and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Sefanía 1

Kafli 1

1. Orð Drottins, sem kom til Sefanía Kúsísonar, Gedaljasonar, Amaríasonar, Hiskíasonar, á dögum Jósía Amónssonar Júdakonungs.

2. Ég vil gjörsópa öllu burt af jörðunni – segir Drottinn.

3. Ég vil sópa burt mönnum og skepnum, ég vil sópa burt fuglum himinsins og fiskum sjávarins, hneykslunum ásamt hinum óguðlegu, og ég vil afmá mennina af jörðunni – segir Drottinn.

4. Ég mun útrétta hönd mína gegn Júda og gegn öllum Jerúsalembúum og afmá nafn Baals af þessum stað, nafn hofgoðanna ásamt prestunum,

5. svo og þá er á þökunum falla fram fyrir her himinsins, og þá sem falla fram fyrir Drottni, en sverja um leið við Milkóm,

6. svo og þá sem gjörst hafa Drottni fráhverfir og eigi leita Drottins né spyrja eftir honum.

7. Verið hljóðir fyrir Drottni Guði! Því að nálægur er dagur Drottins. Já, Drottinn hefir efnt til fórnar, hann hefir þegar vígt gesti sína.

8. Á fórnardegi Drottins mun ég vitja höfðingjanna og konungssonanna, svo og allra þeirra, er klæðast útlenskum klæðnaði.

9. Þann dag vitja ég allra, sem stökkva yfir þröskuldinn, þeirra er fylla hús Drottins síns með ofbeldi og svikum.

10. Á þeim degi – segir Drottinn – mun heyrast neyðaróp frá Fiskhliðinu, kveinan úr öðru borgarhverfi og ógurlegt harmakvein frá hæðunum.

11. Kveinið, þér sem búið í Mortélinu, því að allur kaupmannalýðurinn er eyddur, afmáðir allir þeir, er silfur vega.

12. Í þann tíma mun ég rannsaka Jerúsalem með skriðljósum og vitja þeirra manna, sem liggja á dreggjum sínum, þeirra er segja í hjarta sínu: "Drottinn gjörir hvorki gott né illt."

13. Þá munu fjármunir þeirra verða að herfangi og hús þeirra að auðn. Þeir munu byggja hús, en ekki búa í þeim, planta víngarða, en ekki drekka vínið, sem úr þeim kemur.

14. Hinn mikli dagur Drottins er nálægur, hann er nálægur og hraðar sér mjög. Heyr! Dagur Drottins! Beisklega kveinar þá kappinn.

15. Sá dagur er dagur reiði, dagur neyðar og þrengingar, dagur eyðingar og umturnunar, dagur myrkurs og niðdimmu, dagur skýþykknis og skýsorta,

16. dagur lúðra og herblásturs – gegn víggirtu borgunum og háu múrtindunum.

17. Þá mun ég hræða mennina, svo að þeir ráfi eins og blindir menn, af því að þeir hafa syndgað gegn Drottni, og blóði þeirra skal úthellt verða sem dufti og innyflum þeirra sem saur.

18. Hvorki silfur þeirra né gull fær frelsað þá á reiðidegi Drottins, heldur skal allt landið eyðast fyrir eldi vandlætingar hans. Því að tortíming, já bráða eyðing býr hann öllum þeim, sem á jörðunni búa.

About Sefanía Chapter 1

Read Sefanía Chapter 1 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Sefanía in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Sefanía
Chapter: 1
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Sefanía. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Sefanía Chapter 1 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Sefanía Chapter 1?

Sefanía Chapter 1 is part of the Book of Sefanía in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Sefanía Chapter 1 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Gamla Testamentið

  1. Míka Chapter 3
  2. Míka Chapter 1
  3. Míka Chapter 2
  4. Míka Chapter 7
  5. Míka Chapter 5
  6. Míka Chapter 4
  7. Míka Chapter 6

Explore More from sefania

  1. Sefanía Chapter 2
  2. Sefanía Chapter 3
  3. Sefania Chapter 1
  4. Sefania Chapter 2
  5. Sefania Chapter 3

Related Chapters & Readings

  1. Esekíel Chapter 37
  2. 1 Mósebók Chapter 30
  3. Rómverjar Chapter 1
  4. 2 Mósebók Chapter 2
  5. Daníel Chapter 12
  6. Dómarabókin Chapter 3
  7. Jónas Chapter 3
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *