Lúkas Chapter 14

For English

Read Lúkas Chapter 14 Online

Read Lúkas Chapter 14 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Lúkas in the New Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Lúkas and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Lúkas 14

Kafli 14

1. Hvíldardag nokkurn kom Jesús í hús eins af höfðingjum farísea til máltíðar, og höfðu þeir gætur á honum.

2. Þá var þar frammi fyrir honum maður einn vatnssjúkur.

3. Jesús tók þá til máls og sagði við lögvitringana og faríseana: "Er leyfilegt að lækna á hvíldardegi eða ekki?"

4. Þeir þögðu við. En hann tók á honum, læknaði hann og lét hann fara.

5. Og Jesús mælti við þá: "Nú á einhver yðar asna eða naut, sem fellur í brunn, mun hann ekki óðara draga það upp, þótt hvíldardagur sé?"

6. Þeir gátu engu svarað þessu.

7. Jesús gaf því gætur, hvernig þeir, sem boðnir voru, völdu sér hefðarsætin, tók dæmi og sagði við þá:

8. "Þegar einhver býður þér til brúðkaups, þá set þig ekki í hefðarsæti. Svo getur farið, að manni þér fremri að virðingu sé boðið,

9. og sá komi, er ykkur bauð, og segi við þig: ,Þoka fyrir manni þessum.' Þá verður þú með kinnroða að taka ysta sæti.

10. Far þú heldur, er þér er boðið, og set þig í ysta sæti, svo að sá sem bauð þér segi við þig, þegar hann kemur: ,Vinur, flyt þig hærra upp!' Mun þér þá virðing veitast frammi fyrir öllum, er sitja til borðs með þér.

11. Því að hver sem upp hefur sjálfan sig, mun auðmýktur verða, en sá sem auðmýkir sjálfan sig, mun upp hafinn verða."

12. Þá sagði hann við gestgjafa sinn: "Þegar þú heldur miðdegisverð eða kvöldverð, bjóð þá hvorki vinum þínum né bræðrum, ættingjum né ríkum nágrönnum. Þeir bjóða þér aftur, og þú færð endurgjald.

13. Þegar þú gjörir veislu, þá bjóð þú fátækum og örkumla, höltum og blindum,

14. og munt þú sæll verða, því þeir geta ekki endurgoldið þér, en þú færð það endurgoldið í upprisu réttlátra."

15. Þegar einn þeirra, er að borði sátu, heyrði þetta, sagði hann við Jesú: "Sæll er sá, sem neytir brauðs í Guðs ríki."

16. Jesús sagði við hann: "Maður nokkur gjörði mikla kvöldmáltíð og bauð mörgum.

17. Er stundin kom, að veislan skyldi vera, sendi hann þjón sinn að segja þeim, er boðnir voru: ,Komið, nú er allt tilbúið.'

18. En þeir tóku allir að afsaka sig einum munni. Hinn fyrsti sagði við hann: ,Ég hef keypt akur og verð að fara og líta á hann. Ég bið þig, haf mig afsakaðan.'

19. Annar sagði: ,Ég hef keypt fimm tvenndir akneyta og er á förum að reyna þau. Ég bið þig, haf mig afsakaðan.'

20. Og enn annar sagði: ,Konu hef ég eignast, ekki get ég komið.'

21. Þjónninn kom og tjáði herra sínum þetta. Þá reiddist húsbóndinn og sagði við þjón sinn: ,Far þú fljótt út á stræti og götur borgarinnar, og leið inn hingað fátæka, örkumla, blinda og halta.'

22. Og þjónninn sagði: ,Herra, það er gjört, sem þú bauðst, og enn er rúm.'

23. Þá sagði húsbóndinn við þjóninn: ,Far þú út um brautir og gerði og þrýstu þeim að koma inn, svo að hús mitt fyllist.

24. Því ég segi yður, að enginn þeirra manna, er boðnir voru, mun smakka kvöldmáltíð mína.'"

25. Mikill fjöldi fólks var honum samferða. Hann sneri sér við og sagði við þá:

26. "Ef einhver kemur til mín og hatar ekki föður sinn og móður, konu og börn, bræður og systur og enda sitt eigið líf, sá getur ekki verið lærisveinn minn.

27. Hver sem ber ekki sinn kross og fylgir mér, getur ekki verið lærisveinn minn.

28. Hver yðar sest ekki fyrst við, ef hann ætlar að reisa turn, og reiknar kostnaðinn, hvort hann eigi nóg til að ljúka verkinu?

29. Ella má svo fara, að hann leggi undirstöðu, en fái ekki við lokið, og allir, sem það sjá, taki að spotta hann

30. og segja: ,Þessi maður fór að byggja, en gat ekki lokið.'

31. Eða hvaða konungur fer með hernaði gegn öðrum konungi og sest ekki fyrst við og ráðgast um, hvort honum sé fært að mæta með tíu þúsundum þeim er fer á móti honum með tuttugu þúsundir?

32. Sé svo ekki, gerir hann menn á fund hans, meðan hann er enn langt undan, og spyr um friðarkosti.

33. Þannig getur enginn yðar verið lærisveinn minn, nema hann segi skilið við allt sem hann á.

34. Saltið er gott, en ef saltið sjálft dofnar, með hverju á þá að krydda það?

35. Hvorki er það hæft á tún né taðhaug. Því er fleygt. Hver sem eyru hefur að heyra, hann heyri."

About Lúkas Chapter 14

Read Lúkas Chapter 14 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Lúkas in the New Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Lúkas
Chapter: 14
Testament: New Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Lúkas. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Lúkas Chapter 14 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Lúkas Chapter 14?

Lúkas Chapter 14 is part of the Book of Lúkas in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Lúkas Chapter 14 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Lukas

  1. Lukas Chapter 3
  2. Lukas Chapter 21
  3. Lukas Chapter 11
  4. Lukas Chapter 22
  5. Lukas Chapter 20
  6. Lukas Chapter 15
  7. Lukas Chapter 1

Explore More from Nýja Testamentið

  1. 1 Jóhannesarbréf Chapter 3
  2. Hebreabréfið Chapter 12
  3. Matteus Chapter 23
  4. Lúkas Chapter 16
  5. 2 Korintubréf Chapter 13
  6. Efesusbréfið Chapter 5
  7. 2 Þessaloníkubréf Chapter 3

Related Chapters & Readings

  1. Sálmarnir Chapter 43
  2. 1 Konungabók Chapter 11
  3. Opinberunarbókin Chapter 1
  4. 4 Mósebók Chapter 27
  5. 1 Mósebók Chapter 8
  6. Dómarabókin Chapter 21
  7. 2 Mósebók Chapter 39
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *