1 Mósebók Chapter 15

For English

Read 1 Mósebók Chapter 15 Online

Read 1 Mósebók Chapter 15 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 1 Mósebók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of 1 Mósebók and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

1 Mósebók 15

Kafli 15

1. Eftir þessa atburði kom orð Drottins til Abrams í sýn: "Óttast þú ekki, Abram, ég er þinn skjöldur, laun þín munu mjög mikil verða."

2. Og Abram mælti: "Drottinn Guð, hvað ætlar þú að gefa mér? Ég fer héðan barnlaus, og Elíeser frá Damaskus verður erfingi húss míns."

3. Og Abram mælti: "Sjá, mér hefir þú ekkert afkvæmi gefið, og húskarl minn mun erfa mig."

4. Og sjá, orð Drottins kom til hans: "Ekki skal hann erfa þig, heldur sá, sem af þér mun getinn verða, hann mun erfa þig."

5. Og hann leiddi hann út og mælti: "Lít þú upp til himins og tel þú stjörnurnar, ef þú getur talið þær." Og hann sagði við hann: "Svo margir skulu niðjar þínir verða."

6. Og Abram trúði Drottni, og hann reiknaði honum það til réttlætis.

7. Þá sagði hann við hann: "Ég er Drottinn, sem leiddi þig út frá Úr í Kaldeu til þess að gefa þér þetta land til eignar."

8. Og Abram mælti: "Drottinn Guð, hvað skal ég hafa til marks um, að ég muni eignast það?"

9. Og hann mælti við hann: "Fær mér þrevetra kvígu, þrevetra geit, þrevetran hrút, turtildúfu og unga dúfu."

10. Og hann færði honum öll þessi dýr og hlutaði þau sundur í miðju og lagði hvern hlutinn gegnt öðrum. En fuglana hlutaði hann ekki sundur.

11. Og hræfuglar flugu að ætinu, en Abram fældi þá burt.

12. Er sól var að renna, leið þungur svefnhöfgi á Abram, og sjá: felmti og miklu myrkri sló yfir hann.

13. Þá sagði hann við Abram: "Vit það fyrir víst, að niðjar þínir munu lifa sem útlendingar í landi, sem þeir eiga ekki, og þeir munu þjóna þeim, og þeir þjá þá í fjögur hundruð ár.

14. En þá þjóð, sem þeir munu þjóna, mun ég dæma, og síðar munu þeir þaðan fara með mikinn fjárhlut.

15. En þú skalt fara í friði til feðra þinna, þú skalt verða jarðaður í góðri elli.

16. Hinn fjórði ættliður þeirra mun koma hingað aftur, því að enn hafa Amorítar eigi fyllt mæli synda sinna."

17. En er sól var runnin og myrkt var orðið, kom reykur sem úr ofni og eldslogi, er leið fram á milli þessara fórnarstykkja.

18. Á þeim degi gjörði Drottinn sáttmála við Abram og mælti: "Þínu afkvæmi gef ég þetta land, frá Egyptalandsánni til árinnar miklu, árinnar Efrat:

19. land Keníta, Kenissíta, Kadmóníta,

20. Hetíta, Peresíta, Refaíta,

21. Amoríta, Kanaaníta, Gírgasíta og Jebúsíta."

About 1 Mósebók Chapter 15

Read 1 Mósebók Chapter 15 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 1 Mósebók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: 1 Mósebók
Chapter: 15
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading 1 Mósebók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading 1 Mósebók Chapter 15 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is 1 Mósebók Chapter 15?

1 Mósebók Chapter 15 is part of the Book of 1 Mósebók in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete 1 Mósebók Chapter 15 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from 1 Mosebok

  1. 1 Mósebók Chapter 4
  2. 1 Mósebók Chapter 1
  3. 1 Mósebók Chapter 20
  4. 1 Mósebók Chapter 18
  5. 1 Mósebók Chapter 8
  6. 1 Mósebók Chapter 7
  7. 1 Mósebók Chapter 6

Explore More from Gamla Testamentið

  1. 5 Mósebók Chapter 25
  2. Jobsbók Chapter 19
  3. 1 Mósebók Chapter 44
  4. Amos Chapter 1
  5. 2 Kroníkubók Chapter 23
  6. Jeremía Chapter 37
  7. 2 Mósebók Chapter 3

Related Chapters & Readings

  1. 2 Konungabók Chapter 3
  2. Opinberunarbókin Chapter 17
  3. Esekíel Chapter 19
  4. Jesaja Chapter 1
  5. Esekíel Chapter 7
  6. Sálmarnir Chapter 114
  7. Amos Chapter 3
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *