Jesaja Chapter 38

For English

Read Jesaja Chapter 38 Online

Read Jesaja Chapter 38 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jesaja in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Jesaja and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Jesaja 38

Kafli 38

1. Um þær mundir tók Hiskía sótt og var að dauða kominn. Þá kom Jesaja Amozson spámaður til hans og sagði við hann: "Svo segir Drottinn: Ráðstafa húsi þínu, því að þú munt deyja og eigi lifa."

2. Þá sneri Hiskía andliti sínu til veggjar, bað til Drottins

3. og mælti: "Æ, Drottinn, minnstu þess, að ég hefi gengið fyrir augliti þínu með trúmennsku og einlægu hjarta og gjört það, sem þér er þóknanlegt!" Og hann grét sáran.

4. Þá kom orð Drottins, til Jesaja, svolátandi:

5. "Far og seg Hiskía: Svo segir Drottinn, Guð Davíðs, forföður þíns: Ég hefi heyrt bæn þína og séð tár þín. Sjá, ég vil enn leggja fimmtán ár við aldur þinn.

6. Og ég vil frelsa þig og þessa borg af hendi Assýríukonungs, og ég mun vernda þessa borg.

7. Og þetta skalt þú til marks hafa af Drottni, að Drottinn muni efna það, sem hann hefir heitið:

8. Sjá, ég færi aftur stigskuggann, er með sólinni hefir færst niður á sólskífu Akasar, um tíu stig." Og sólin færðist aftur á bak þau tíu stig á sólskífunni, er hún hafði gengið niður.

9. Sálmur eftir Hiskía konung í Júda, þá er hann hafði verið sjúkur, en var heill orðinn af sjúkleik sínum.

10. Ég sagði: Á hádegi ævi minnar stend ég við dauðans dyr. Það sem eftir er ára minna er ég ofurseldur hliðum Heljar.

11. Ég sagði: Ég fæ eigi framar að sjá Drottin á landi lifenda, ég fæ eigi framar menn að líta meðal þeirra sem heiminn byggja.

12. Bústað mínum er kippt upp og svipt burt frá mér eins og hjarðmannatjaldi. Ég hefi undið upp líf mitt eins og vefari. Hann sker mig frá uppistöðunni. Þú þjáir mig frá því að dagar og þar til nóttin kemur.

13. Ég þreyði til morguns. Öll mín bein voru kramin eins og af ljónshrammi. Þú þjáir mig frá því að dagar og þar til nóttin kemur.

14. Ég tísti sem svala og kurra sem dúfa. Augu mín mæna til himins. Drottinn, ég er í nauðum, líkna þú mér.

15. Hvað á ég að segja? Hann talaði til mín og efndi sín orð. Í auðmýkt vil ég ganga alla mína lífdaga, því minni sálarangist er létt.

16. Drottinn, af þessu lifa menn, og í öllu þessu er líf anda míns fólgið, þú gafst mér heilsuna aftur og lést mig lifna við.

17. Sjá, til blessunar varð mér hin sára kvöl. Þú forðaðir lífi mínu frá gröf eyðingarinnar, því að þú varpaðir að baki þér öllum syndum mínum.

18. Hel vegsamar þig eigi, dauðinn lofar þig eigi. Þeir sem niður eru stignir í gröfina vona eigi á trúfesti þína.

19. En sá einn lofar þig, sem lifir, eins og ég í dag. Feður kunngjöra börnum sínum trúfesti þína.

20. Drottinn er mitt hjálpræði. Í húsi Drottins skulum vér því hreyfa strengina alla vora lífdaga.

21. Og Jesaja bauð að taka skyldi fíkjudeig og leggja á kýlið, og mundi honum þá batna.

22. En Hiskía sagði: "Hvað skal ég hafa til marks um það, að ég megi aftur ganga upp í hús Drottins?"

About Jesaja Chapter 38

Read Jesaja Chapter 38 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Jesaja in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Jesaja
Chapter: 38
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Jesaja. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Jesaja Chapter 38 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Jesaja Chapter 38?

Jesaja Chapter 38 is part of the Book of Jesaja in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Jesaja Chapter 38 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Gamla Testamentið

  1. Míka Chapter 3
  2. Míka Chapter 2
  3. Míka Chapter 1
  4. Míka Chapter 5
  5. Míka Chapter 7
  6. Míka Chapter 6
  7. Míka Chapter 4

Explore More from Jesaja

  1. Jesaja Chapter 66
  2. Jesaja Chapter 16
  3. Jesaja Chapter 50
  4. Jesaja Chapter 63
  5. Jesaja Chapter 11
  6. Jesaja Chapter 66
  7. Jesaja Chapter 28

Related Chapters & Readings

  1. Jeremía Chapter 2
  2. Hósea Chapter 2
  3. Lúkas Chapter 14
  4. Jeremía Chapter 21
  5. Jesaja Chapter 55
  6. Nehemíabók Chapter 6
  7. 2 Mósebók Chapter 11
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *