2 Konungabók Chapter 1

For English

Read 2 Konungabók Chapter 1 Online

Read 2 Konungabók Chapter 1 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 2 Konungabók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of 2 Konungabók and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

2 Konungabók 1

Kafli 1

1. Eftir dauða Akabs braust Móab undan Ísrael.

2. Ahasía féll ofan um grindurnar á loftsal sínum í Samaríu og varð sjúkur. Þá gjörði hann út sendimenn og sagði við þá: "Farið og gangið til frétta við Baal Sebúb, guðinn í Ekron, hvort ég muni heill verða af þessum sjúkdómi."

3. En engill Drottins sagði við Elía Tisbíta: "Tak þig upp og far á móti sendimönnum konungsins í Samaríu og seg við þá: ,Það er víst enginn guð til í Ísrael, úr því þér farið til þess að ganga til frétta við Baal Sebúb, guðinn í Ekron?

4. Fyrir því segir Drottinn svo: Úr rekkjunni, sem þú nú ert lagstur í, skalt þú ekki rísa, heldur skalt þú deyja.'" Síðan fór Elía burt.

5. Þá er sendimennirnir komu aftur til konungs, sagði hann við þá: "Hví eruð þér komnir aftur?"

6. Þeir svöruðu honum: "Maður kom á móti oss og sagði við oss: ,Farið og snúið aftur heim til konungsins, er yður sendi, og segið við hann: Svo segir Drottinn: Það er víst enginn guð til í Ísrael, úr því þú sendir til þess að leita frétta hjá Baal Sebúb, guðinum í Ekron. Fyrir því skalt þú eigi rísa úr rekkjunni, sem þú nú ert lagstur í, heldur skalt þú deyja.'"

7. Þá mælti konungur við þá: "Hvernig var sá maður í hátt, sem kom á móti yður og talaði þessi orð við yður?"

8. Þeir svöruðu honum: "Hann var í skinnfeldi og gyrður leðurbelti um lendar sér." Þá mælti hann: "Það hefir verið Elía frá Tisbe."

9. Þá sendi konungur fimmtíumannaforingja og fimmtíu menn hans með honum til Elía. Fór hann þá upp til hans – en hann sat efst uppi á fjalli – og sagði við hann: "Þú guðsmaður! Konungur segir: Kom þú ofan!"

10. Elía svaraði og sagði við fimmtíumannaforingjann: "Sé ég guðsmaður, þá falli eldur af himni og eyði þér og þínum fimmtíu mönnum." Féll þá eldur af himni og eyddi honum og mönnum hans fimmtíu.

11. Og konungur sendi aftur til hans annan fimmtíumannaforingja og fimmtíu menn hans með honum. Fór hann upp og sagði við hann: "Þú guðsmaður, svo segir konungur: Kom sem skjótast ofan!"

12. En Elía svaraði og sagði við þá: "Sé ég guðsmaður, þá falli eldur af himni og eyði þér og þínum fimmtíu mönnum." Féll þá eldur Guðs af himni og eyddi honum og mönnum hans fimmtíu.

13. Þá sendi konungur enn þriðja fimmtíumannaforingjann og fimmtíu menn hans með honum. Og fimmtíumannaforinginn þriðji fór upp, og er hann kom þangað, féll hann á kné fyrir Elía, grátbændi hann og mælti til hans: "Þú guðsmaður, þyrm nú lífi mínu og lífi þessara fimmtíu þjóna þinna.

14. Sjá, eldur er fallinn af himni og hefir eytt báðum fyrri fimmtíumannaforingjunum og fimmtíu mönnum þeirra. En þyrm þú lífi mínu."

15. Þá sagði engill Drottins við Elía: "Far þú ofan með honum og ver óhræddur við hann." Stóð hann þá upp og fór ofan með honum til konungs

16. og sagði við hann: "Svo segir Drottinn: Af því að þú gjörðir út sendimenn til þess að leita frétta hjá Baal Sebúb, guðinum í Ekron, – það er víst enginn guð til í Ísrael, er leita megi frétta hjá – þá skalt þú eigi rísa úr rekkjunni, sem þú nú ert lagstur í, heldur skalt þú deyja."

17. Og hann dó eftir orði Drottins, því er Elía hafði talað. Og Jóram bróðir hans tók ríki eftir hann á öðru ríkisári Jórams Jósafatssonar, konungs í Júda, því að hann átti engan son.

18. En það sem meira er að segja um Ahasía, hvað hann gjörði, það er ritað í Árbókum Ísraelskonunga.

About 2 Konungabók Chapter 1

Read 2 Konungabók Chapter 1 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 2 Konungabók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: 2 Konungabók
Chapter: 1
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading 2 Konungabók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading 2 Konungabók Chapter 1 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is 2 Konungabók Chapter 1?

2 Konungabók Chapter 1 is part of the Book of 2 Konungabók in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete 2 Konungabók Chapter 1 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from 2-konungabok

  1. 2 Konungabók Chapter 5
  2. 2 Konungabók Chapter 13
  3. 2 Konungabók Chapter 17
  4. 2 Konungabók Chapter 8
  5. 2 Konungabók Chapter 4
  6. 2 Konungabók Chapter 2
  7. 2 Konungabók Chapter 22

Explore More from Gamla Testamentið

  1. Esekíel Chapter 37
  2. Sálmarnir Chapter 120
  3. 1 Kroníkubók Chapter 23
  4. 2 Samúelsbók Chapter 6
  5. Esterarbók Chapter 6
  6. Sálmarnir Chapter 12
  7. Rutarbók Chapter 4

Related Chapters & Readings

  1. Esekíel Chapter 19
  2. 3 Mósebók Chapter 26
  3. Jeremía Chapter 49
  4. Jósúabók Chapter 24
  5. Postulasagan Chapter 1
  6. Esekíel Chapter 34
  7. Postulasagan Chapter 11
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *