Read 2 Konungabók Chapter 24 Online
Read 2 Konungabók Chapter 24 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 2 Konungabók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of 2 Konungabók and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
2 Konungabók 24
Kafli 24
1. Á hans dögum fór Nebúkadnesar konungur í Babýlon herför þangað, og varð Jójakím honum lýðskyldur í þrjú ár. Síðan brá hann trúnaði við hann.
2. Þá sendi Drottinn í móti Jójakím ránsflokka Kaldea, ránsflokka Sýrlendinga, ránsflokka Móabíta og ránsflokka Ammóníta. Hann sendi þá gegn Júda til þess að eyða landið samkvæmt orði Drottins, því er hann hafði talað fyrir munn þjóna sinna, spámannanna.
3. Að boði Drottins fór svo fyrir Júda, til þess að hann gæti rekið þá burt frá augliti sínu sakir synda Manasse samkvæmt öllu því, er hann hafði gjört,
4. svo og sakir þess saklausa blóðs, er hann hafði úthellt, svo að hann fyllti Jerúsalem saklausu blóði – það vildi Drottinn ekki fyrirgefa.
5. Það sem meira er að segja um Jójakím og allt, sem hann gjörði, það er ritað í Árbókum Júdakonunga.
6. Og Jójakím lagðist til hvíldar hjá feðrum sínum, og Jójakín sonur hans tók ríki eftir hann.
7. En Egyptalandskonungur fór enga herför framar úr landi sínu, því að konungurinn í Babýlon hafði unnið land allt frá Egyptalandsá að Efratfljóti, það er legið hafði undir Egyptalandskonung.
8. Jójakín var átján ára gamall, þá er hann varð konungur, og þrjá mánuði ríkti hann í Jerúsalem. Móðir hans hét Nehústa Elnatansdóttir og var frá Jerúsalem.
9. Hann gjörði það, sem illt var í augum Drottins, með öllu svo sem gjört hafði faðir hans.
10. Um þær mundir fóru þjónar Nebúkadnesars, konungs í Babýlon, herför til Jerúsalem, og varð borgin í umsátri.
11. Og Nebúkadnesar Babelkonungur kom sjálfur til borgarinnar, þá er þjónar hans sátu um hana.
12. Gekk þá Jójakín Júdakonungur út á móti Babelkonungi ásamt móður sinni, þjónum sínum, herforingjum og hirðmönnum, og Babelkonungur tók hann höndum á áttunda ríkisstjórnarári hans.
13. Og hann flutti þaðan alla fjársjóðu musteris Drottins og fjársjóðu konungshallarinnar og tók gullið af öllum áhöldum, er Salómon Ísraelskonungur hafði gjöra látið í musteri Drottins, eins og Drottinn hafði sagt.
14. Og Nebúkadnesar herleiddi alla Jerúsalem og alla höfðingja og alla vopnfæra menn, tíu þúsund að tölu, svo og alla trésmiði og járnsmiði. Ekkert var eftir skilið nema almúgafólk landsins.
15. Og hann herleiddi Jójakín til Babýlon. Og konungsmóður og konur konungsins og hirðmenn hans og höfðingja landsins herleiddi hann og frá Jerúsalem til Babýlon.
16. Svo og alla vopnfæra menn, sjö þúsund að tölu, og trésmiði og járnsmiði, þúsund að tölu, er allir voru hraustir hermenn, – þá herleiddi Nebúkadnesar til Babýlon.
17. Og konungurinn í Babýlon skipaði Mattanja föðurbróður Jójakíns konung í hans stað og breytti nafni hans í Sedekía.
18. Sedekía var tuttugu og eins árs að aldri, þá er hann varð konungur, og ellefu ár ríkti hann í Jerúsalem. Móðir hans hét Hamútal Jeremíadóttir og var frá Líbna.
19. Hann gjörði það, sem illt var í augum Drottins, með öllu svo sem gjört hafði Jójakím.
20. Vegna reiði Drottins fór svo fyrir Jerúsalem og Júda, uns hann hafði burtsnarað þeim frá augliti sínu. En Sedekía brá trúnaði við Babelkonung.
About 2 Konungabók Chapter 24
Read 2 Konungabók Chapter 24 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 2 Konungabók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: 2 Konungabók
Chapter: 24
Testament: Old Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading 2 Konungabók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading 2 Konungabók Chapter 24 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is 2 Konungabók Chapter 24?
2 Konungabók Chapter 24 is part of the Book of 2 Konungabók in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete 2 Konungabók Chapter 24 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from 2-konungabok
- 2 Konungabók Chapter 5
- 2 Konungabók Chapter 17
- 2 Konungabók Chapter 13
- 2 Konungabók Chapter 20
- 2 Konungabók Chapter 4
- 2 Konungabók Chapter 2
- 2 Konungabók Chapter 14
Explore More from Gamla Testamentið
- 1 Mósebók Chapter 19
- 1 Mósebók Chapter 46
- 4 Mósebók Chapter 35
- Jesaja Chapter 43
- 1 Mósebók Chapter 40
- Sálmarnir Chapter 130
- 2 Mósebók Chapter 21