Read 1 Kroníkubók Chapter 23 Online
Read 1 Kroníkubók Chapter 23 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 1 Kroníkubók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of 1 Kroníkubók and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
1 Kroníkubók 23
Kafli 23
1. Þá er Davíð var gamall orðinn og saddur lífdaga, gjörði hann Salómon son sinn að konungi yfir Ísrael.
2. Og hann stefndi saman öllum höfðingjum Ísraels, prestunum og levítunum.
3. Levítarnir voru taldir, þrítugir og þaðan af eldri, og höfðatala þeirra var þrjátíu og átta þúsund karlmenn.
4. "Af þeim skulu tuttugu og fjögur þúsund vera fyrir verkum við hús Drottins, sex þúsund skulu vera embættismenn og dómarar,
5. fjögur þúsund hliðverðir, og fjögur þúsund skulu lofa Drottin með áhöldum þeim, er ég hefi látið gjöra til þess að vegsama með," sagði Davíð.
6. Davíð skipti þeim í flokka eftir þeim Gerson, Kahat og Merarí, Levísonum.
7. Til Gersonsniðja töldust Laedan og Símeí.
8. Synir Laedans voru: Jehíel, er var fyrir þeim, Setam og Jóel, þrír alls.
9. Synir Símeí voru: Selómít, Hasíel og Haran, þrír alls. Voru þeir ætthöfðingjar Laedansættar.
10. Og synir Símeí: Jahat, Sína, Jeús og Bería. Þessir voru synir Símeí, fjórir alls.
11. Var Jahat fyrir þeim, þá Sína, en Jeús og Bería áttu eigi margt barna, svo að þeir töldust ein ætt, einn flokkur.
12. Synir Kahats: Amram, Jísehar, Hebron og Ússíel, fjórir alls.
13. Synir Amrams: Aron og Móse. En Aron var greindur frá hinum, til þess að hann skyldi verða vígður sem háheilagur ásamt sonum sínum, um aldur og ævi, til þess að þeir skyldu brenna reykelsi frammi fyrir Drottni, þjóna honum og lofa nafn hans um aldur og ævi.
14. Og að því er snertir guðsmanninn Móse, þá voru synir hans taldir til Levíkynkvíslar.
15. Synir Móse voru Gersóm og Elíeser.
16. Sonur Gersóms: Sebúel höfðingi.
17. En sonur Elíesers var Rehabja höfðingi. Aðra sonu átti Elíeser eigi, en synir Rehabja voru afar margir.
18. Sonur Jísehars: Selómít höfðingi.
19. Synir Hebrons: Jería höfðingi, annar Amarja, þriðji Jehasíel, fjórði Jekameam.
20. Synir Ússíels: Míka höfðingi, annar Jissía.
21. Synir Merarí: Mahlí og Músí. Synir Mahlí: Eleasar og Kís.
22. En Eleasar dó svo, að hann átti enga sonu, heldur dætur einar, og tóku þeir Kíssynir, frændur þeirra, þær sér að konum.
23. Synir Músí voru: Mahlí, Eder og Jeremót, þrír alls.
24. Þessir eru þeir Levíniðjar eftir ættum þeirra, ætthöfðingjar þeir, er taldir voru af þeim, eftir nafnatölu og höfða, er höfðu það starf á hendi að þjóna í musteri Drottins, tvítugir og þaðan af eldri.
25. Davíð mælti: "Drottinn, Guð Ísraels, hefir veitt lýð sínum hvíld, og býr nú að eilífu í Jerúsalem.
26. Levítarnir þurfa því ekki lengur að bera búðina og öll þau áhöld, er að starfi hennar lúta."
27. (Því að eftir síðustu fyrirmælum Davíðs voru levítar taldir, tvítugir og þaðan af eldri).
28. Embætti þeirra er að aðstoða Aronsniðja, gegna þjónustu við musteri Drottins, hafa umsjón með forgörðunum og klefunum og ræstingu á öllum hinum helgu munum, og gegna störfunum við hús Guðs,
29. annast um raðsettu brauðin, hveitimjölið í matfórnirnar, hin ósýrðu flatbrauð, pönnuna og hið samanhrærða, og hvers konar mæli og stiku,
30. og að koma fram á hverjum morgni til þess að lofa og vegsama Drottin, og eins á kveldin,
31. og að færa Drottni hverja brennifórn á hvíldardögum, tunglkomudögum og löghátíðum, allar þær, sem ákveðið er að stöðugt skuli færa Drottni.
32. Hafa þeir störf á hendi við samfundatjaldið og störf við helgidóminn og störf hjá Aronsniðjum, frændum sínum, við þjónustuna í musteri Drottins.
About 1 Kroníkubók Chapter 23
Read 1 Kroníkubók Chapter 23 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 1 Kroníkubók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: 1 Kroníkubók
Chapter: 23
Testament: Old Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading 1 Kroníkubók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading 1 Kroníkubók Chapter 23 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is 1 Kroníkubók Chapter 23?
1 Kroníkubók Chapter 23 is part of the Book of 1 Kroníkubók in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete 1 Kroníkubók Chapter 23 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from 1-kronikubok
- 1 Kroníkubók Chapter 9
- 1 Kroníkubók Chapter 27
- 1 Kroníkubók Chapter 28
- 1 Kroníkubók Chapter 19
- 1 Kroníkubók Chapter 16
- 1 Kroníkubók Chapter 13
- 1 Kroníkubók Chapter 12
Explore More from Gamla Testamentið
- 5 Mósebók Chapter 27
- Sálmarnir Chapter 114
- 1 Mósebók Chapter 38
- Sálmarnir Chapter 80
- 1 Mósebók Chapter 9
- Dómarabókin Chapter 3
- Esekíel Chapter 5