Read Esekíel Chapter 9 Online
Read Esekíel Chapter 9 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Esekíel in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Esekíel and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
Esekíel 9
Kafli 9
1. Þessu næst kallaði hann hárri röddu í eyru mín: "Refsingar borgarinnar nálgast!"
2. Þá komu sex menn frá efra hliðinu, sem snýr í norður, og hafði hver þeirra eyðingarverkfæri í hendi sér, og meðal þeirra var einn maður, sem var líni klæddur og hafði skriffæri við síðu sér. Þeir komu og námu staðar hjá eiraltarinu.
3. Dýrð Ísraels Guðs hafði hafið sig frá kerúbunum, þar sem hún hafði verið, yfir að þröskuldi hússins. Og hann kallaði á línklædda manninn, sem hafði skriffærin við síðu sér.
4. Og Drottinn sagði við hann: "Gakk þú mitt í gegnum borgina, mitt í gegnum Jerúsalem, og set merki á enni þeirra manna, sem andvarpa og kveina yfir öllum þeim svívirðingum, sem framdar eru inni í henni."
5. En til hinna mælti hann að mér áheyrandi: "Farið á eftir honum um borgina og höggvið niður, lítið engan vægðarauga og sýnið enga meðaumkun.
6. Öldunga og æskumenn, meyjar og börn og konur skuluð þér brytja niður, en engan mann skuluð þér snerta, sem merkið er á. Og takið fyrst til hjá helgidómi mínum!" Og þeir tóku fyrst til á öldungum þeim, sem voru fyrir framan musterið.
7. Og hann sagði við þá: "Horfið ekki í að saurga musterið og fyllið strætin vegnum mönnum. Gangið nú út!" Þeir gengu þá út og hjuggu niður mannfólkið í borginni.
8. Meðan þeir brytjuðu niður, féll ég fram á ásjónu mína, kallaði og sagði: "Æ, Drottinn Guð, ætlar þú að gjöreyða öllum eftirleifum Ísraels, þar sem þú eys út reiði þinni yfir Jerúsalem?"
9. Þá sagði hann við mig: "Misgjörð Ísraelsmanna og Júdamanna er afskaplega mikil, og landið er fullt af blóðugu ranglæti og borgin er full af ofbeldisverkum, því að þeir segja: ,Drottinn hefir yfirgefið landið' og ,Drottinn sér það ekki.'
10. Fyrir því skal ég heldur ekki líta þá vægðarauga og enga meðaumkun sýna. Ég læt athæfi þeirra þeim sjálfum í koll koma."
11. Þá kom línklæddi maðurinn, sem hafði skriffærin við síðu sér, aftur og sagði: "Ég hefi gjört eins og þú bauðst mér."
About Esekíel Chapter 9
Read Esekíel Chapter 9 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Esekíel in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: Esekíel
Chapter: 9
Testament: Old Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Esekíel. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading Esekíel Chapter 9 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is Esekíel Chapter 9?
Esekíel Chapter 9 is part of the Book of Esekíel in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete Esekíel Chapter 9 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from Esekiel
- Esekíel Chapter 31
- Esekíel Chapter 1
- Esekíel Chapter 15
- Esekíel Chapter 7
- Esekíel Chapter 3
- Esekíel Chapter 2
- Esekíel Chapter 19
Explore More from Gamla Testamentið
- Sálmarnir Chapter 22
- Sálmarnir Chapter 4
- Esekíel Chapter 34
- Jesaja Chapter 45
- Sálmarnir Chapter 89
- Jesaja Chapter 54
- Jobsbók Chapter 31