Esekíel Chapter 41

For English

Read Esekíel Chapter 41 Online

Read Esekíel Chapter 41 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Esekíel in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Esekíel and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Esekíel 41

Kafli 41

1. Þessu næst leiddi hann mig inn í aðalhúsið og mældi súlurnar, og voru þær sex álnir að þykkt báðumegin.

2. Og dyrnar voru tíu álna breiðar og dyraveggurinn fimm álnir hvorumegin. Hann mældi lengd Hins heilaga, og var hún fjörutíu álnir og breiddin tuttugu álnir.

3. Síðan gekk hann inn fyrir og mældi dyrastöplana, og voru þeir tveggja álna þykkir og vídd dyranna sex álnir, og dyraveggurinn sjö álnir hvorumegin.

4. Og hann mældi lengd hússins, og var hún tuttugu álnir, og breiddin tuttugu álnir frammi við aðalhúsið. Og hann sagði við mig: "Þetta er Hið allrahelgasta."

5. Þessu næst mældi hann musterisvegginn, og var hann sex álna þykkur og breidd hliðarhússins fjórar álnir allt í kringum musterið.

6. Lágu herbergin hvert áfast við annað, þrjátíu herbergi á þremur hæðum. Stallar voru á veggnum, sem var á musterinu fyrir hliðarherbergin allt í kring, til þess að þau hvíldu á honum, en væru eigi fest á musterisvegginn.

7. Og þau urðu æ breiðari, því ofar sem þau lágu kringum musterið, því að hliðarherbergin voru alveg upp úr hringinn í kringum musterið. Fyrir því minnkaði breidd hússins upp á við, og mátti ganga af neðsta gólfi hliðarhússins yfir neðra loftið upp á efra loftið.

8. Þá sá ég, að á musterishúsinu var pallur hringinn í kring, og grundvöllur hliðarherbergjanna var full sex álna mælistöng.

9. Þykkt útveggsins á hliðarhúsinu var fimm álnir, og var autt svæði milli hliðarhússins og musterisins,

10. milli herbergjanna, tuttugu álna breitt hringinn í kringum musterið.

11. Dyr gengu frá hliðarhúsinu að auðu svæði, aðrar dyrnar til norðurs, hinar til suðurs. Og breidd auða svæðisins var fimm álnir hringinn í kring.

12. Hús lá gegnt afgirta svæðinu við vesturhliðina. Var það sjötíu álna breitt og veggur þess fimm álna þykkur hringinn í kring og lengd þess níutíu álnir.

13. Þessu næst mældi hann musterishúsið, og var það hundrað álna langt. Afgirta svæðið og húsið með veggjum þess var hundrað álnir á lengd.

14. Og framhlið musterishússins og afgirta svæðið austan megin var hundrað álnir á breidd.

15. Og hann mældi lengd hússins gegnt afgirta svæðinu vestan við það og súlnagöng þess beggja vegna, og var það hundrað álnir. Aðalhúsið, innhúsið og forsalur þess,

16. þröskuldarnir og skáhöllu gluggarnir og súlnagöngin umhverfis, þessi þrjú hús voru þiljuð frá jörðu og upp að gluggum . . .

17. Uppi yfir dyrum aðalhússins innan og utan og á öllum veggnum innan og utan hringinn í kring

18. voru gjörðir kerúbar og pálmar, og var einn pálmi milli hverra tveggja kerúba. En kerúbinn hafði tvö andlit.

19. Annars vegar sneri mannsandlit að pálmanum, en ljónsandlit hins vegar. Svo var á húsinu allt um kring.

20. Neðan frá gólfi og upp fyrir dyr voru gjörðir kerúbar og pálmar á veggnum.

21. Umgjörðin yfir dyrunum og dyrastafir aðalhússins mynduðu ferhyrning. Fyrir framan helgidóminn var eitthvað, sem líktist

22. altari af tré, þriggja álna hátt. Það var tvær álnir á lengd og tvær álnir á breidd, og á því voru horn, og undirstöður þess og hliðveggir voru af tré. Og hann sagði við mig: "Þetta er borðið, sem stendur frammi fyrir Drottni."

23. Og tvöfaldar hurðir voru á aðalhúsinu og helgidóminum.

24. Í hvorum dyrum voru tvær hurðir, er léku á hjörum.

25. Og á hurðunum voru kerúbar og pálmar, eins og á veggjunum, og þakskyggni af tré var fram af forsalnum.

26. Og skáhallir gluggar og pálmar voru beggja vegna á hliðarveggjum forsalsins . . .

About Esekíel Chapter 41

Read Esekíel Chapter 41 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Esekíel in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Esekíel
Chapter: 41
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Esekíel. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Esekíel Chapter 41 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Esekíel Chapter 41?

Esekíel Chapter 41 is part of the Book of Esekíel in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Esekíel Chapter 41 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Esekiel

  1. Esekíel Chapter 31
  2. Esekíel Chapter 2
  3. Esekíel Chapter 3
  4. Esekíel Chapter 30
  5. Esekíel Chapter 20
  6. Esekíel Chapter 5
  7. Esekíel Chapter 38

Explore More from Gamla Testamentið

  1. 2 Samúelsbók Chapter 9
  2. 1 Samúelsbók Chapter 9
  3. 2 Samúelsbók Chapter 2
  4. Sálmarnir Chapter 32
  5. 2 Mósebók Chapter 23
  6. Hósea Chapter 2
  7. Sálmarnir Chapter 141

Related Chapters & Readings

  1. 1 Samúelsbók Chapter 26
  2. Esekíel Chapter 32
  3. Jesaja Chapter 3
  4. Postulasagan Chapter 25
  5. Nehemíabók Chapter 1
  6. Sefanía Chapter 3
  7. Jósúabók Chapter 2
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *