Esekíel Chapter 30

For English

Read Esekíel Chapter 30 Online

Read Esekíel Chapter 30 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Esekíel in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Esekíel and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Esekíel 30

Kafli 30

1. Og orð Drottins kom til mín, svohljóðandi:

2. "Mannsson, spá og seg: Svo segir Drottinn Guð: Æpið vei yfir deginum!

3. Því að dagur er nálægur, já, dagur Drottins er nálægur, dagur skýþykknis, endadægur þjóðanna mun það verða.

4. Og sverð mun koma til Egyptalands, og Bláland mun skelfast, þá er menn hníga helsærðir á Egyptalandi, og auðæfi þess verða burt flutt og undirstöðum þess rótað upp.

5. Blálendingar, Pútítar, Lúdítar og allur þjóðblendingurinn og Líbýumenn og Kretar munu fyrir sverði falla ásamt þeim.

6. Svo segir Drottinn: Þá munu stoðir Egyptalands falla og hið dýrlega skraut þess hníga. Frá Migdól og allt til Sýene skulu menn fyrir sverði falla í því, – segir Drottinn Guð.

7. Og það mun verða að auðn innan um eyðilönd, og borgir þess munu liggja innan um borgir, sem eru í rústum.

8. Og þeir munu viðurkenna, að ég er Drottinn, þegar ég legg eld í Egyptaland og allir liðveislumenn þess verða muldir sundur.

9. Á þeim degi munu sendiboðar fara frá mér á skipum, til þess að færa hinum ugglausu Blálendingum hin hræðilegu tíðindi, og þeir munu skelfast vegna ógæfudags Egyptalands, því að sjá, hann kemur.

10. Svo segir Drottinn Guð: Þannig mun ég láta Nebúkadresar konung í Babýlon enda gjöra á mikillæti Egyptalands.

11. Hann mun verða sóttur og lið hans með honum, hinar grimmustu þjóðir, til þess að herja landið, og þeir munu bregða sverðum sínum gegn Egyptalandi og fylla landið vegnum mönnum.

12. Og ég mun þurrka upp árkvíslarnar og selja Egyptaland í hendur illmenna og láta útlenda menn eyða landið og öllu, sem í því er. Ég, Drottinn, hefi talað það.

13. Svo segir Drottinn Guð: Ég gjöri skurðgoðin að engu og uppræti falsguðina úr Nóf og höfðingjana af Egyptalandi, svo að engir skulu þar framar til vera, og ég mun skelfa Egyptaland.

14. Og ég eyði Patrós og legg eld í Sóan og framkvæmi refsidóma á Nó.

15. Og ég úthelli heift minni yfir Sín, varnarvirki Egyptalands, og tortími hinum ysmikla múg í Nó.

16. Ég legg eld í Egyptaland, Sín mun nötra og skarð mun brotið verða inn í Nó og múrar hennar niður rifnir.

17. Æskumennirnir í Ón og Píbeset munu fyrir sverði falla og íbúar annarra borga fara í útlegð.

18. Í Takpanes mun dagurinn myrkvast, er ég sundurbrýt þar veldissprota Egyptalands og hið dýrlega skraut þess verður að engu gjört. Skýþykkni mun hylja hana, og dætur hennar munu fara í útlegð.

19. Þannig mun ég láta refsidóma koma yfir Egyptaland, til þess að þeir viðurkenni, að ég er Drottinn."

20. En á ellefta árinu, sjöunda dag hins fyrsta mánaðar, kom orð Drottins til mín, svohljóðandi:

21. "Mannsson, ég hefi brotið armlegg Faraós, Egyptalandskonungs, og sjá, það skal eigi verða um hann bundið, til þess að gjöra hann heilan, með því að setja á hann sáraumbúðir, til þess að hann styrktist aftur og fengi gripið sverðið.

22. Fyrir því segir Drottinn Guð svo: Sjá, ég skal finna Faraó, Egyptalandskonung, ég skal brjóta armleggi hans, hinn heila og hinn brotna, og slá sverðið úr hendi hans.

23. Og ég skal tvístra Egyptum meðal þjóðanna og dreifa þeim út um löndin.

24. Og ég skal styrkja armleggi konungsins í Babýlon og fá honum sverð mitt í hönd, en armleggi Faraós skal ég brjóta, svo að hann skal liggja stynjandi fyrir fótum hans, eins og helstunginn maður.

25. Ég skal styrkja armleggi konungsins í Babýlon, en armleggir Faraós skulu niður síga, og menn skulu viðurkenna, að ég er Drottinn, þegar ég fæ Babelkonungi sverð mitt í hönd, og hann reiðir það að Egyptalandi.

26. Og ég skal tvístra Egyptum meðal þjóðanna og dreifa þeim út um löndin, til þess að þeir viðurkenni, að ég er Drottinn."

About Esekíel Chapter 30

Read Esekíel Chapter 30 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Esekíel in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Esekíel
Chapter: 30
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Esekíel. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Esekíel Chapter 30 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Esekíel Chapter 30?

Esekíel Chapter 30 is part of the Book of Esekíel in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Esekíel Chapter 30 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Esekiel

  1. Esekíel Chapter 31
  2. Esekíel Chapter 15
  3. Esekíel Chapter 7
  4. Esekíel Chapter 12
  5. Esekíel Chapter 1
  6. Esekíel Chapter 48
  7. Esekíel Chapter 39

Explore More from Gamla Testamentið

  1. 2 Konungabók Chapter 7
  2. Jeremía Chapter 44
  3. Sálmarnir Chapter 25
  4. Sálmarnir Chapter 74
  5. Sálmarnir Chapter 24
  6. 4 Mósebók Chapter 10
  7. Orðskviðirnir Chapter 10

Related Chapters & Readings

  1. 2 Kroníkubók Chapter 9
  2. Matteus Chapter 1
  3. Galatabréfið Chapter 3
  4. 1 Samúelsbók Chapter 19
  5. 2 Mósebók Chapter 4
  6. 4 Mósebók Chapter 30
  7. 2 Konungabók Chapter 20
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *