Read Esekíel Chapter 26 Online
Read Esekíel Chapter 26 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Esekíel in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Esekíel and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
Esekíel 26
Kafli 26
1. En á ellefta árinu, hinn fyrsta dag mánaðarins, kom orð Drottins til mín, svohljóðandi:
2. "Mannsson, af því að Týrus hlakkaði yfir Jerúsalem og sagði: ,Nú er þjóðahliðið brotið upp, hefir opnast að mér, nú vil ég fylla mig, er hún er komin í auðn!' –
3. fyrir því segir Drottinn Guð svo: Sjá, ég skal finna þig, Týrus, ég skal leiða í móti þér margar þjóðir, eins og þegar hafið lætur öldur sínar að streyma.
4. Þær skulu brjóta múra Týrusar og rífa niður turna hennar, og ég mun sjálfur sópa burt öllum jarðveg af henni og gjöra hana að berum kletti.
5. Hún skal verða að þerrireit fyrir fiskinet úti í hafinu, því að ég hefi talað það, – segir Drottinn Guð, – og hún skal verða þjóðunum að herfangi.
6. En dætur hennar, sem eru á landi, skulu drepnar verða með sverði, til þess að þær viðurkenni, að ég er Drottinn.
7. Því að svo segir Drottinn Guð: Sjá ég leiði Nebúkadresar konung í Babýlon, konung konunganna, gegn Týrus úr norðri, með hestum, vögnum, riddurum og mannsöfnuði margra þjóða.
8. Hann mun drepa dætur þínar á landi með sverði, hlaða víggarða gegn þér, hleypa upp jarðhrygg gegn þér og reisa skjöldu í móti þér.
9. Og hann mun hleypa víghrút sínum á múra þína og rífa niður turna þína með járntólum sínum.
10. Af mergð hesta hans munt þú hulin verða jóreyk, og múrar þínir munu gnötra af gný riddaranna, hjólanna og vagnanna, þegar hann fer inn um borgarhlið þín, eins og þegar farið er inn í hertekna borg.
11. Með hófum hesta sinna mun hann troða sundur öll stræti þín. Lýð þinn mun hann brytja niður með sverði, og þínar voldugu súlur munu hrapa til jarðar.
12. Og þeir munu ræna auð þínum og hrifsa burt kaupeyri þinn, brjóta niður borgarveggi þína, rífa niður þín dýrlegu hús og varpa á sjó út húsagrjótinu, viðunum og rofinu.
13. Ég skal lægja klið ljóða þinna, og hljómur harpna þinna skal ekki framar heyrast.
14. Og ég skal gjöra þig að berum kletti: Þú skalt verða að þerrireit fyrir fiskinet, þú skalt aldrei framar endurreist verða, því að ég, Drottinn, hefi talað það, – segir Drottinn Guð.
15. Svo segir Drottinn Guð um Týrus: Munu ekki eyjarnar gnötra við dynkinn af hruni þínu, þá er hinir vegnu stynja, þá er sverðið brytjar fólkið niður í þér?
16. Og allir þjóðhöfðingjar við hafið munu stíga niður af hásætum sínum og leggja af sér skikkjur sínar og fara úr litklæðum sínum. Þeir munu íklæðast skelfingu, þeir munu setjast á jörðina, þeir munu vera síhræddir og sem agndofa þín vegna.
17. Og þeir munu hefja upp harmljóð yfir þér og segja um þig: Hversu ert þú eydd, horfin frá hafinu, þú vegsamaða borg, sem voldug varst á hafinu, hún og íbúar hennar, sem skutu skelk í bringu öllum nábúum sínum.
18. Nú nötra sælöndin á degi falls þíns og eyjarnar í hafinu eru skelfdar yfir afdrifum þínum.
19. Því að svo segir Drottinn Guð: Þegar ég gjöri þig að eyddri borg, eins og þær borgir, sem óbyggðar eru, þegar ég læt hafsjóinn streyma yfir þig, svo að hin miklu vötn hylji þig,
20. þá steypi ég þér niður til þeirra, sem ofan eru farnir í gröfina, til manna frá fyrri tíðum, og bý þér stað í undirheimum, eins og ævagömlum rústum, hjá þeim sem ofan eru farnir í gröfina, til þess að þú verðir ekki byggð framar og standir ekki framar á landi lifandi manna.
21. Ég sel þig á vald voveiflegri glötun, og þú munt farast. Þín mun verða leitað, en þú munt aldrei finnast til eilífðar, – segir Drottinn Guð."
About Esekíel Chapter 26
Read Esekíel Chapter 26 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Esekíel in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: Esekíel
Chapter: 26
Testament: Old Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Esekíel. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading Esekíel Chapter 26 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is Esekíel Chapter 26?
Esekíel Chapter 26 is part of the Book of Esekíel in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete Esekíel Chapter 26 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from Esekiel
- Esekíel Chapter 31
- Esekíel Chapter 15
- Esekíel Chapter 7
- Esekíel Chapter 12
- Esekíel Chapter 1
- Esekíel Chapter 48
- Esekíel Chapter 39
Explore More from Gamla Testamentið
- Jósúabók Chapter 23
- 2 Samúelsbók Chapter 23
- Orðskviðirnir Chapter 30
- Nehemíabók Chapter 5
- 5 Mósebók Chapter 5
- 2 Konungabók Chapter 13
- Jósúabók Chapter 15