Read 1 Kroníkubók Chapter 19 Online
Read 1 Kroníkubók Chapter 19 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 1 Kroníkubók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of 1 Kroníkubók and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
1 Kroníkubók 19
Kafli 19
1. Eftir þetta bar svo til, að Nahas Ammónítakonungur andaðist, og tók Hanún sonur hans ríki eftir hann.
2. Þá sagði Davíð: "Ég vil sýna Hanún Nahassyni vináttu, því að faðir hans sýndi mér vináttu." Síðan sendi Davíð sendimenn til þess að hugga hann eftir föðurmissinn. En er þjónar Davíðs komu í land Ammóníta til Hanúns til þess að hugga hann,
3. þá sögðu höfðingjar Ammóníta við Hanún: "Hyggur þú að Davíð vilji heiðra föður þinn, er hann gjörir menn á þinn fund til að hugga þig? Munu ekki þjónar hans vera komnir á þinn fund til þess að njósna í borginni og til þess að eyðileggja og kanna landið?"
4. Þá lét Hanún taka þjóna Davíðs og nauðraka þá og skera af þeim klæðin til hálfs, upp á þjóhnappa, og lét þá síðan fara.
5. Fóru menn þá og sögðu Davíð af mönnunum, og sendi hann þá á móti þeim – því að mennirnir voru mjög svívirtir – og konungur lét segja þeim: "Verið í Jeríkó uns skegg yðar er vaxið, og komið síðan heim aftur."
6. En er Ammónítar sáu, að þeir höfðu gjört sig illa þokkaða hjá Davíð, þá sendu þeir Hanún og Ammónítar þúsund talentur silfurs til þess að leigja sér vagna og riddara hjá Sýrlendingum í Mesópótamíu og hjá Sýrlendingum í Maaka og Sóba.
7. Leigðu þeir sér síðan þrjátíu og tvö þúsund vagna og konunginn í Maaka og lið hans, komu þeir og settu herbúðir fyrir framan Medeba. Og Ammónítar söfnuðust saman úr borgum sínum og komu til bardagans.
8. En er Davíð frétti það, sendi hann Jóab af stað með allan kappaherinn.
9. Ammónítar fóru og út og fylktu liði sínu við borgarhliðið, en konungarnir, er komnir voru, stóðu úti á víðavangi einir sér.
10. Þegar Jóab sá, að honum var búinn bardagi, bæði að baki og að framan, valdi hann úr öllu einvalaliði Ísraels og fylkti því á móti Sýrlendingum.
11. Hitt liðið fékk hann Abísaí bróður sínum, og fylktu þeir því á móti Ammónítum.
12. Og Jóab mælti: "Ef Sýrlendingar bera mig ofurliði, þá verður þú að hjálpa mér, en ef Ammónítar bera þig ofurliði, mun ég hjálpa þér.
13. Vertu hughraustur og sýnum nú af oss karlmennsku fyrir þjóð vora og borgir Guðs vors, en Drottinn gjöri það sem honum þóknast."
14. Síðan lagði Jóab og liðið, sem með honum var, til orustu við Sýrlendinga, og þeir flýðu fyrir honum.
15. En er Ammónítar sáu, að Sýrlendingar flýðu fyrir Jóab, lögðu þeir og á flótta fyrir Abísaí bróður hans og leituðu inn í borgina. En Jóab fór til Jerúsalem.
16. Þegar Sýrlendingar sáu, að þeir höfðu beðið ósigur fyrir Ísrael, þá sendu þeir menn og buðu út Sýrlendingum, sem voru hinumegin við Efrat, og Sófak, hershöfðingi Hadaresers, var fyrir þeim.
17. Og er Davíð var sagt frá því, þá safnaði hann saman öllum Ísrael, fór yfir Jórdan og kom til Helam, og fylkti í móti þeim. Sýrlendingar fylktu liði sínu í móti Davíð og börðust við hann.
18. En Sýrlendingar flýðu fyrir Ísrael, og Davíð felldi sjö þúsund vagnkappa og fjörutíu þúsund manns af fótgönguliði, og Sófak hershöfðingja drap hann.
19. En er þjónar Hadaresers sáu, að þeir höfðu beðið ósigur fyrir Ísrael, sömdu þeir frið við Davíð og gjörðust lýðskyldir honum. Upp frá því vildu Sýrlendingar eigi veita Ammónítum lið.
About 1 Kroníkubók Chapter 19
Read 1 Kroníkubók Chapter 19 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 1 Kroníkubók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: 1 Kroníkubók
Chapter: 19
Testament: Old Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading 1 Kroníkubók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading 1 Kroníkubók Chapter 19 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is 1 Kroníkubók Chapter 19?
1 Kroníkubók Chapter 19 is part of the Book of 1 Kroníkubók in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete 1 Kroníkubók Chapter 19 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from 1-kronikubok
- 1 Kroníkubók Chapter 9
- 1 Kroníkubók Chapter 27
- 1 Kroníkubók Chapter 28
- 1 Kroníkubók Chapter 23
- 1 Kroníkubók Chapter 16
- 1 Kroníkubók Chapter 13
- 1 Kroníkubók Chapter 12
Explore More from Gamla Testamentið
- Sakaría Chapter 13
- Dómarabókin Chapter 18
- 2 Kroníkubók Chapter 21
- 3 Mósebók Chapter 18
- 2 Samúelsbók Chapter 15
- Esrabók Chapter 8
- 1 Konungabók Chapter 16