Dómarabókin Chapter 2

For English

Read Dómarabókin Chapter 2 Online

Read Dómarabókin Chapter 2 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Dómarabókin in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Dómarabókin and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Dómarabókin 2

Kafli 2

1. Engill Drottins kom frá Gilgal til Bókím og mælti: "Ég leiddi yður út af Egyptalandi og færði yður í það land, sem ég sór feðrum yðar, og ég sagði: ,Ég mun aldrei rjúfa sáttmála minn við yður,

2. en þér megið ekki gjöra sáttmála við íbúa þessa lands, heldur skuluð þér rífa niður ölturu þeirra.' En þér hafið ekki hlýtt raustu minni. Hví hafið þér gjört þetta?

3. Fyrir því segi ég einnig: ,Ég mun ekki stökkva þeim burt undan yður, og þeir munu verða broddar í síðum yðar og guðir þeirra verða yður að tálsnöru.'"

4. Er engill Drottins hafði mælt þessum orðum til allra Ísraelsmanna, þá hóf lýðurinn upp raust sína og grét.

5. Og þeir nefndu stað þennan Bókím, og færðu þar Drottni fórn.

6. Síðan lét Jósúa fólkið frá sér fara, og héldu þá Ísraelsmenn hver til síns óðals til þess að taka landið til eignar.

7. Og lýðurinn þjónaði Drottni meðan Jósúa var á lífi og meðan öldungar þeir, sem lifðu Jósúa, voru á lífi, þeir er séð höfðu öll hin miklu verk Drottins, er hann gjörði fyrir Ísrael.

8. Þá andaðist Jósúa Núnsson, þjónn Drottins, hundrað og tíu ára gamall.

9. Og hann var grafinn í eignarlandi sínu, hjá Timnat Heres á Efraímfjöllum, fyrir norðan Gaasfjall.

10. En er öll sú kynslóð hafði líka safnast til feðra sinna, reis upp önnur kynslóð eftir hana, er eigi þekkti Drottin né þau verk, er hann hafði gjört fyrir Ísrael.

11. Þá gjörðu Ísraelsmenn það, sem illt var í augum Drottins, og þjónuðu Baölum,

12. og yfirgáfu Drottin, Guð feðra sinna, er leitt hafði þá af Egyptalandi, og eltu aðra guði, af guðum þjóða þeirra, er bjuggu umhverfis þá, og féllu fram fyrir þeim og egndu Drottin til reiði.

13. Og þeir yfirgáfu Drottin og þjónuðu Baal og Astörtum.

14. Þá upptendraðist reiði Drottins gegn Ísrael, og hann gaf þá á vald ránsmönnum og þeir rændu þá, og hann seldi þá í hendur óvinum þeirra allt í kringum þá, svo að þeir fengu eigi framar staðist fyrir óvinum sínum.

15. Hvert sem þeir fóru, var hönd Drottins í móti þeim til óhamingju, eins og Drottinn hafði sagt og eins og Drottinn hafði svarið þeim. Komust þeir þá í miklar nauðir.

16. En Drottinn vakti upp dómara, og þeir frelsuðu þá úr höndum þeirra, er þá rændu.

17. En þeir hlýddu ekki heldur dómurum sínum, heldur tóku fram hjá með öðrum guðum og féllu fram fyrir þeim. Þeir viku brátt af vegi feðra sinna, sem hlýddu boðum Drottins; þeir breyttu ekki svo.

18. Þegar Drottinn vakti þeim upp dómara, þá var Drottinn með dómaranum og frelsaði þá úr höndum óvina þeirra á meðan dómarinn var á lífi, því að Drottinn kenndi í brjósti um þá, er þeir kveinuðu undan kúgurum sínum og kvölurum.

19. En er dómarinn andaðist, breyttu þeir að nýju verr en feður þeirra, með því að elta aðra guði til þess að þjóna þeim og falla fram fyrir þeim. Þeir létu eigi af gjörðum sínum né þrjóskubreytni sinni.

20. Þá upptendraðist reiði Drottins gegn Ísrael og hann sagði: "Af því að þetta fólk hefir rofið sáttmála minn, þann er ég lagði fyrir feður þeirra, og ekki hlýtt minni raustu,

21. þá mun ég ekki heldur framar stökkva burt undan þeim nokkrum manni af þjóðum þeim, sem Jósúa skildi eftir, er hann andaðist.

22. Ég vil reyna Ísrael með þeim, hvort þeir varðveita veg Drottins og ganga hann, eins og feður þeirra gjörðu, eða ekki."

23. Þannig lét Drottinn þjóðir þessar vera kyrrar án þess að reka þær burt bráðlega, og hann gaf þær eigi í hendur Jósúa.

About Dómarabókin Chapter 2

Read Dómarabókin Chapter 2 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Dómarabókin in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Dómarabókin
Chapter: 2
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Dómarabókin. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Dómarabókin Chapter 2 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Dómarabókin Chapter 2?

Dómarabókin Chapter 2 is part of the Book of Dómarabókin in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Dómarabókin Chapter 2 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from domarabokin

  1. Dómarabókin Chapter 9
  2. Dómarabókin Chapter 18
  3. Dómarabókin Chapter 6
  4. Dómarabókin Chapter 14
  5. Dómarabókin Chapter 5
  6. Dómarabókin Chapter 3
  7. Dómarabókin Chapter 7

Explore More from Gamla Testamentið

  1. Jeremía Chapter 25
  2. Jeremía Chapter 11
  3. 1 Konungabók Chapter 17
  4. 4 Mósebók Chapter 22
  5. Esrabók Chapter 1
  6. 2 Samúelsbók Chapter 7
  7. Ljóðaljóðin Chapter 7

Related Chapters & Readings

  1. Dómarabókin Chapter 16
  2. 1 Konungabók Chapter 11
  3. Prédikarinn Chapter 10
  4. 3 Mósebók Chapter 16
  5. 2 Samúelsbók Chapter 19
  6. Jeremía Chapter 1
  7. 1 Korintubréf Chapter 4
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *