2 Korintubréf Chapter 2

For English

Read 2 Korintubréf Chapter 2 Online

Read 2 Korintubréf Chapter 2 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 2 Korintubréf in the New Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of 2 Korintubréf and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

2 Korintubréf 2

Kafli 2

1. En það ásetti ég mér, að koma ekki aftur til yðar með hryggð.

2. Ef ég hryggi yður, hver er þá sá sem gleður mig? Sá sem ég er að hryggja?

3. Ég skrifaði einmitt þetta til þess að þeir, sem áttu að gleðja mig, skyldu ekki hryggja mig, er ég kæmi. Ég hef það traust til yðar allra, að gleði mín sé gleði yðar allra.

4. Af mikilli þrengingu og hjartans trega skrifaði ég yður með mörgum tárum, ekki til þess að þér skylduð hryggjast, heldur til þess að þér skylduð komast að raun um þann kærleika, sem ég ber til yðar í svo ríkum mæli.

5. En ef nokkur hefur orðið til þess að valda hryggð, þá hefur hann ekki hryggt mig, heldur að vissu leyti – að ég gjöri ekki enn meira úr því – hryggt yður alla.

6. Nægileg er þeim manni refsing sú, sem hann hefur hlotið af yður allflestum.

7. Því ættuð þér nú öllu heldur að fyrirgefa honum og hugga hann til þess að hann sökkvi ekki niður í allt of mikla hryggð.

8. Þess vegna bið ég yður að sýna honum kærleika í reynd.

9. Því að í þeim tilgangi skrifaði ég yður, til þess að komast að raun um staðfestu yðar, hvort þér væruð hlýðnir í öllu.

10. En hverjum sem þér fyrirgefið, honum fyrirgef ég líka. Og það sem ég hef fyrirgefið, hafi ég þurft að fyrirgefa nokkuð, þá hefur það verið vegna yðar fyrir augliti Krists,

11. til þess að vér yrðum ekki vélaðir af Satan, því að ekki er oss ókunnugt um vélráð hans.

12. En er ég kom til Tróas til að boða fagnaðarerindið um Krist og mér stóðu þar opnar dyr í þjónustu Drottins,

13. þá hafði ég enga eirð í mér, af því að ég hitti ekki Títus, bróður minn, svo að ég kvaddi þá og fór til Makedóníu.

14. En Guði séu þakkir, sem fer með oss í óslitinni sigurför Krists og lætur oss útbreiða ilm þekkingarinnar á honum á hverjum stað.

15. Því að vér erum góðilmur Krists fyrir Guði meðal þeirra, er hólpnir verða, og meðal þeirra, sem glatast;

16. þeim síðarnefndu ilmur af dauða til dauða, en hinum ilmur af lífi til lífs. Og hver er til þessa hæfur?

17. Ekki erum vér eins og hinir mörgu, er pranga með Guðs orð, heldur flytjum vér það af hreinum huga frá Guði frammi fyrir augliti Guðs, með því að vér erum í Kristi.

About 2 Korintubréf Chapter 2

Read 2 Korintubréf Chapter 2 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 2 Korintubréf in the New Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: 2 Korintubréf
Chapter: 2
Testament: New Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading 2 Korintubréf. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading 2 Korintubréf Chapter 2 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is 2 Korintubréf Chapter 2?

2 Korintubréf Chapter 2 is part of the Book of 2 Korintubréf in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete 2 Korintubréf Chapter 2 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from 2-korintubref

  1. 2 Korintubréf Chapter 10
  2. 2 Korintubréf Chapter 8
  3. 2 Korintubréf Chapter 4
  4. 2 Korintubréf Chapter 9
  5. 2 Korintubréf Chapter 7
  6. 2 Korintubréf Chapter 6
  7. 2 Korintubréf Chapter 5

Explore More from Nýja Testamentið

  1. Postulasagan Chapter 27
  2. Matteus Chapter 25
  3. Hebreabréfið Chapter 2
  4. 1 Tímóteusarbréf Chapter 1
  5. Lúkas Chapter 23
  6. Jóhannes Chapter 4
  7. Postulasagan Chapter 26

Related Chapters & Readings

  1. Prédikarinn Chapter 9
  2. 1 Konungabók Chapter 2
  3. Sálmarnir Chapter 127
  4. Opinberunarbókin Chapter 20
  5. Sálmarnir Chapter 67
  6. Opinberunarbókin Chapter 17
  7. 1 Korintubréf Chapter 16
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *