2 Tímóteusarbréf Chapter 2

For English

Read 2 Tímóteusarbréf Chapter 2 Online

Read 2 Tímóteusarbréf Chapter 2 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 2 Tímóteusarbréf in the New Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of 2 Tímóteusarbréf and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

2 Tímóteusarbréf 2

Kafli 2

1. Styrkst þú þá, sonur minn, í náðinni, sem fæst fyrir Krist Jesú.

2. Og það sem þú heyrðir mig tala í margra votta viðurvist, það skalt þú fá í hendur trúum mönnum, sem líka munu færir um að kenna öðrum.

3. Þú skalt og að þínu leyti illt þola, eins og góður hermaður Krists Jesú.

4. Enginn hermaður bendlar sig við atvinnustörf. Þá þóknast hann ekki þeim, sem hefur tekið hann á mála.

5. Og sá sem keppir í íþróttum fær ekki sigursveiginn, nema hann keppi löglega.

6. Bóndinn, sem erfiðar, á fyrstur að fá sinn hlut af ávöxtunum.

7. Tak eftir því, sem ég segi. Drottinn mun gefa þér skilning á öllu.

8. Minnst þú Jesú Krists, hans sem risinn er upp frá dauðum, af kyni Davíðs, eins og boðað er í fagnaðarerindi mínu.

9. Fyrir það líð ég illt og það jafnvel að vera í fjötrum eins og illvirki. En orð Guðs verður ekki fjötrað.

10. Fyrir því þoli ég allt sakir hinna útvöldu, til þess að þeir einnig hljóti hjálpræðið, í Kristi Jesú með eilífri dýrð.

11. Það orð er satt: Ef vér höfum dáið með honum, þá munum vér og lifa með honum.

12. Ef vér stöndum stöðugir, þá munum vér og með honum ríkja. Ef vér afneitum honum, þá mun hann og afneita oss.

13. Þótt vér séum ótrúir, þá verður hann samt trúr, því að ekki getur hann afneitað sjálfum sér.

14. Minn á þetta og heit á þá fyrir augliti Guðs að eiga ekki í orðastælum til einskis gagns, áheyrendum til falls.

15. Legg kapp á að reynast hæfur fyrir Guði sem verkamaður, er ekki þarf að skammast sín og fer rétt með orð sannleikans.

16. Forðast þú hinar vanheilögu hégómaræður, því að þeim, er leggja stund á þær, skilar lengra áfram í guðleysi,

17. og lærdómur þeirra etur um sig eins og helbruni. Í hópi þeirra eru þeir Hýmeneus og Fíletus.

18. Þeir hinir sömu hafa villst frá sannleikanum, þar sem þeir segja upprisuna þegar um garð gengna og umhverfa trú sumra manna.

19. En Guðs styrki grundvöllur stendur. Hann hefur þetta innsigli: "Drottinn þekkir sína" og "hver sá, sem nefnir nafn Drottins, haldi sér frá ranglæti."

20. Á stóru heimili eru ekki einungis gullker og silfurker, heldur og tréker og leirker. Sum eru til viðhafnar, önnur til óþriflegri nota.

21. Sá sem fær sig hreinan gjört af slíku, mun verða ker til viðhafnar, helgað og hagfellt húsbóndanum, hæfilegt til sérhvers góðs verks.

22. Flý þú æskunnar girndir, en stunda réttlæti, trú, kærleika og frið við þá, sem ákalla Drottin af hreinu hjarta.

23. En hafna þú heimskulegum og óskynsamlegum þrætum. Þú veist, að þær leiða af sér ófrið.

24. Þjónn Drottins á ekki að eiga í ófriði, heldur á hann að vera ljúfur við alla, góður fræðari, þolinn í þrautum,

25. hógvær er hann agar þá, sem skipast í móti. Guð kynni að gefa þeim sinnaskipti, sem leiddi þá til þekkingar á sannleikanum,

26. þá gætu þeir endurvitkast og losnað úr snöru djöfulsins, sem hefur veitt þá til að gjöra hans vilja.

About 2 Tímóteusarbréf Chapter 2

Read 2 Tímóteusarbréf Chapter 2 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 2 Tímóteusarbréf in the New Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: 2 Tímóteusarbréf
Chapter: 2
Testament: New Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading 2 Tímóteusarbréf. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading 2 Tímóteusarbréf Chapter 2 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is 2 Tímóteusarbréf Chapter 2?

2 Tímóteusarbréf Chapter 2 is part of the Book of 2 Tímóteusarbréf in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete 2 Tímóteusarbréf Chapter 2 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from 2 Timoteusarbref

  1. 2 Tímóteusarbréf Chapter 4
  2. 2 Tímóteusarbréf Chapter 3
  3. 2 Tímóteusarbréf Chapter 1

Explore More from Nýja Testamentið

  1. Postulasagan Chapter 14
  2. Galatabréfið Chapter 3
  3. Efesusbréfið Chapter 4
  4. Postulasagan Chapter 27
  5. Opinberunarbókin Chapter 12
  6. 2 Korintubréf Chapter 9
  7. Postulasagan Chapter 2

Related Chapters & Readings

  1. Sálmarnir Chapter 120
  2. Jeremía Chapter 34
  3. 4 Mósebók Chapter 13
  4. Sálmarnir Chapter 33
  5. Opinberunarbókin Chapter 12
  6. 4 Mósebók Chapter 24
  7. 2 Kroníkubók Chapter 23
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *