Sakaría Chapter 6

For English

Read Sakaría Chapter 6 Online

Read Sakaría Chapter 6 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Sakaría in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Sakaría and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Sakaría 6

Kafli 6

1. Ég hóf aftur upp augu mín og sá, hvar fjórir vagnar komu út á milli tveggja fjalla, en fjöllin voru eirfjöll.

2. Fyrir fyrsta vagninum voru rauðir hestar, fyrir öðrum vagninum svartir hestar,

3. fyrir þriðja vagninum voru hvítir hestar og fyrir fjórða vagninum rauðskjóttir hestar.

4. Þá tók ég til máls og sagði við engilinn, er við mig talaði: "Hvað merkir þetta, herra minn?"

5. Engillinn svaraði og sagði við mig: "Þetta eru þeir fjórir vindar himinsins. Þeir hafa gengið fyrir Drottin gjörvallrar jarðarinnar og eru nú að fara af stað.

6. Vagninn með svörtu hestunum fyrir var að fara til landsins norður frá, og hinir hvítu fóru á eftir þeim, en hinir skjóttu fóru til landsins suður frá."

7. Og hinir rauðu fóru út, og með því að þeir voru ráðnir í að halda af stað til þess að fara um jörðina, sagði hann: "Farið! Farið um jörðina!" Og þeir fóru um jörðina.

8. Þá kallaði hann á mig og sagði við mig: "Sjá, þeir sem fara til landsins norður frá, svala reiði minni við landið norður frá."

9. Orð Drottins kom til mín, svo hljóðandi:

10. Tak þú við gjöfum hinna herleiddu af hendi Heldaí, Tobía og Jedaja, og far þú sjálfur þann sama dag og gakk þú inn í hús Jósía Sefaníasonar, en þangað eru þeir komnir frá Babýlon.

11. Þar skalt þú taka silfur og gull og búa til kórónu og setja á höfuð Jósúa Jósadakssonar æðsta prests.

12. Og þú skalt mæla þannig til hans: Svo segir Drottinn allsherjar: Sjá, maður heitir Kvistur. Af hans rótum mun spretta, og hann mun byggja musteri Drottins.

13. Hann er sá sem byggja mun musteri Drottins, og hann mun tign hljóta, svo að hann mun sitja og drottna í hásæti sínu, og prestur mun vera honum til hægri handar, og friðarþel mun vera milli þeirra beggja.

14. En kórónan skal vera þeim Helem, Tobía, Jedaja og Hen Sefaníasyni til minningar í musteri Drottins.

15. Og þeir sem búa í fjarlægð, munu koma til að byggja musteri Drottins. Og þá munuð þér viðurkenna, að Drottinn allsherjar hefir sent mig til yðar. Ef þér hlýðið röddu Drottins, Guðs yðar, þá mun þetta verða.

About Sakaría Chapter 6

Read Sakaría Chapter 6 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Sakaría in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Sakaría
Chapter: 6
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Sakaría. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Sakaría Chapter 6 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Sakaría Chapter 6?

Sakaría Chapter 6 is part of the Book of Sakaría in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Sakaría Chapter 6 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Gamla Testamentið

  1. Míka Chapter 1
  2. Míka Chapter 3
  3. Míka Chapter 2
  4. Míka Chapter 7
  5. Míka Chapter 5
  6. Míka Chapter 4
  7. Míka Chapter 6

Explore More from sakaria

  1. Sakaría Chapter 11
  2. Sakaria Chapter 4
  3. Sakaria Chapter 2
  4. Sakaría Chapter 12
  5. Sakaria Chapter 12
  6. Sakaria Chapter 1
  7. Sakaria Chapter 14

Related Chapters & Readings

  1. 1 Þessaloníkubréf Chapter 4
  2. 3 Mósebók Chapter 13
  3. 2 Kroníkubók Chapter 15
  4. Matteus Chapter 24
  5. Sálmarnir Chapter 4
  6. Jobsbók Chapter 37
  7. Markús Chapter 10
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *