2 Mósebók Chapter 1

For English

Read 2 Mósebók Chapter 1 Online

Read 2 Mósebók Chapter 1 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 2 Mósebók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of 2 Mósebók and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

2 Mósebók 1

Kafli 1

1. Þessi eru nöfn Ísraels sona, sem komu til Egyptalands með Jakob, hver með sitt heimilisfólk:

2. Rúben, Símeon, Leví og Júda,

3. Íssakar, Sebúlon og Benjamín,

4. Dan og Naftalí, Gað og Asser.

5. Alls voru niðjar Jakobs sjötíu manns, og Jósef var fyrir í Egyptalandi.

6. Og Jósef dó og allir bræður hans og öll sú kynslóð.

7. Og Ísraelsmenn voru frjósamir, jukust, margfölduðust og fjölgaði stórum, svo að landið varð fullt af þeim.

8. Þá hófst til ríkis í Egyptalandi nýr konungur, sem engin deili vissi á Jósef.

9. Hann sagði við þjóð sína: "Sjá, þjóð Ísraelsmanna er fjölmennari og aflmeiri en vér.

10. Látum oss fara kænlega að við hana, ella kynni henni að fjölga um of, og ef til ófriðar kæmi, kynni hún jafnvel að ganga í lið með óvinum vorum og berjast móti oss og fara síðan af landi burt."

11. Og þeir settu verkstjóra yfir hana til þess að þjá hana með þrælavinnu, og hún byggði vistaborgir handa Faraó, Pítóm og Raamses.

12. En því meir sem þeir þjáðu hana, því meir fjölgaði henni og breiddist út, svo að þeir tóku að óttast Ísraelsmenn.

13. Og Egyptar þrælkuðu Ísraelsmenn vægðarlaust

14. og gjörðu þeim lífið leitt með þungri þrælavinnu við leireltu og tigulsteinagjörð og með alls konar akurvinnu, með allri þeirri vinnu, er þeir vægðarlaust þrælkuðu þá með.

15. En Egyptalandskonungur mælti til hinna hebresku ljósmæðra – hét önnur Sifra, en hin Púa:

16. "Þegar þið sitjið yfir hebreskum konum," mælti hann, "þá lítið á burðarsetið. Sé barnið sveinbarn, þá deyðið það, en sé það meybarn, þá má það lifa."

17. En ljósmæðurnar óttuðust Guð og gjörðu eigi það, sem Egyptalandskonungur bauð þeim, heldur létu sveinbörnin lifa.

18. Þá lét Egyptalandskonungur kalla ljósmæðurnar og sagði við þær: "Hví hafið þér svo gjört, að láta sveinbörnin lifa?"

19. Ljósmæðurnar svöruðu Faraó: "Hebreskar konur eru ólíkar egypskum, því að þær eru hraustar. Áður en ljósmóðirin kemur til þeirra, eru þær búnar að fæða."

20. Og Guð lét ljósmæðrunum vel farnast, og fólkinu fjölgaði og það efldist mjög.

21. Og fyrir þá sök, að ljósmæðurnar óttuðust Guð, gaf hann þeim fjölda niðja.

22. Þá bauð Faraó öllum lýð sínum og sagði: "Kastið í ána öllum þeim sveinbörnum, sem fæðast meðal Hebrea, en öll meybörn mega lífi halda."

About 2 Mósebók Chapter 1

Read 2 Mósebók Chapter 1 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 2 Mósebók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: 2 Mósebók
Chapter: 1
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading 2 Mósebók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading 2 Mósebók Chapter 1 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is 2 Mósebók Chapter 1?

2 Mósebók Chapter 1 is part of the Book of 2 Mósebók in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete 2 Mósebók Chapter 1 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from 2 Mosebok

  1. 2 Mósebók Chapter 13
  2. 2 Mósebók Chapter 15
  3. 2 Mósebók Chapter 9
  4. 2 Mósebók Chapter 8
  5. 2 Mósebók Chapter 23
  6. 2 Mósebók Chapter 21
  7. 2 Mósebók Chapter 36

Explore More from Gamla Testamentið

  1. Sálmarnir Chapter 6
  2. Orðskviðirnir Chapter 12
  3. 2 Konungabók Chapter 2
  4. 1 Kroníkubók Chapter 20
  5. 1 Kroníkubók Chapter 4
  6. Jesaja Chapter 55
  7. Sefanía Chapter 2

Related Chapters & Readings

  1. Lúkas Chapter 9
  2. Rómverjar Chapter 13
  3. 2 Korintubréf Chapter 11
  4. 4 Mósebók Chapter 2
  5. Jósúabók Chapter 12
  6. Sálmarnir Chapter 90
  7. Sálmarnir Chapter 105
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *