Sefanía Chapter 3

For English

Read Sefanía Chapter 3 Online

Read Sefanía Chapter 3 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Sefanía in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Sefanía and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Sefanía 3

Kafli 3

1. Vei hinni þverúðarfullu og saurguðu, hinni ofríkisfullu borg!

2. Hún hlýðir engri áminningu, hún tekur engri hirtingu, hún treystir ekki Drottni og nálægir sig ekki Guði sínum.

3. Höfðingjarnir í henni eru sem öskrandi ljón, dómendur hennar sem úlfar að kveldi, þeir leifa engu til morguns.

4. Spámenn hennar eru léttúðarmenn, svikaseggir. Prestar hennar vanhelga hið heilaga, misbjóða lögmálinu.

5. En Drottinn er réttlátur í henni, hann gjörir ekkert rangt. Á morgni hverjum leiðir hann réttlæti sitt í ljós, það bregst ekki, en hinn rangláti kann ekki að skammast sín.

6. Ég hefi afmáð þjóðir, múrtindar þeirra voru brotnir niður. Ég hefi lagt stræti þeirra í eyði, svo að enginn var þar á ferð. Borgir þeirra voru eyddar, urðu mannlausar, svo að þar bjó enginn.

7. Ég sagði: "Óttast þú mig aðeins, tak hirtingu!" þá skal bústaður hennar ekki afmáður verða, eftir allt sem ég hefi fyrirskipað gegn henni. En þeir hafa verið því kostgæfari í því að láta allar gjörðir sínar vera illverk.

8. Bíðið mín þess vegna – segir Drottinn, – bíðið þess dags, er ég rís upp sem vottur. Því að það er mitt ásett ráð að safna saman þjóðum og stefna saman konungsríkjum til þess að úthella yfir þá heift minni, allri minni brennandi reiði. Því að fyrir eldi vandlætingar minnar skal allt landið verða eytt.

9. Já, þá mun ég gefa þjóðunum nýjar, hreinar varir, svo að þær ákalli allar nafn Drottins og þjóni honum einhuga.

10. Handan frá Blálands fljótum munu þeir færa mér sláturfórnir, flytja mér matfórnir.

11. Á þeim degi þarft þú eigi að skammast þín fyrir öll illverk þín, þau er þú syndgaðir með gegn mér, því að þá mun ég ryðja burt frá þér þeim, er ofkætast drambsamlega í þér, og þú munt ekki framar ofmetnast á mínu heilaga fjalli.

12. Og ég mun láta í þér eftir verða auðmjúkan og lítilmótlegan lýð, þeir munu leita sér hælis í nafni Drottins.

13. Leifar Ísraels munu engin rangindi fremja, né heldur tala lygar, og í munni þeirra mun ekki finnast sviksöm tunga. Já, þeir munu vera á beit og leggjast, án þess að nokkur styggi þá.

14. Fagna þú, dóttirin Síon, lát gleðilátum, þú Ísrael! Ver kát og gleð þig af öllu hjarta, dóttirin Jerúsalem!

15. Drottinn hefir afmáð refsidóma þína, rýmt burt óvini þínum. Konungur Ísraels, Drottinn, er hjá þér, þú munt eigi framar á neinu illu kenna.

16. Á þeim degi mun sagt verða við Jerúsalem: "Óttast ekki, Síon, lát ekki hugfallast!

17. Drottinn, Guð þinn, er hjá þér, hetjan er sigur veitir. Hann kætist yfir þér með fögnuði, hann þegir í kærleika sínum, hann fagnar yfir þér með gleðisöng."

18. Ég saman safna þeim, sem hryggir eru út af hátíðarsamkomunni, frá þér voru þeir, smán hvílir á þeim.

19. Sjá, á þeim tíma skal ég eiga erindi við þá, er þig þjáðu. Þá skal ég frelsa hið halta og smala saman því tvístraða, og ég skal gjöra þá fræga og nafnkunna á allri jörðunni.

20. Á þeim tíma skal ég leiða yður heim, og það á þeim tíma, er ég smala yður saman. Því að ég skal gjöra yður nafnkunna og fræga meðal allra þjóða jarðarinnar, þá er ég sný við högum yðar í augsýn yðar, – segir Drottinn.

About Sefanía Chapter 3

Read Sefanía Chapter 3 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Sefanía in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Sefanía
Chapter: 3
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Sefanía. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Sefanía Chapter 3 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Sefanía Chapter 3?

Sefanía Chapter 3 is part of the Book of Sefanía in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Sefanía Chapter 3 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Gamla Testamentið

  1. Míka Chapter 1
  2. Míka Chapter 3
  3. Míka Chapter 2
  4. Míka Chapter 7
  5. Míka Chapter 5
  6. Míka Chapter 4
  7. Míka Chapter 6

Explore More from sefania

  1. Sefania Chapter 1
  2. Sefania Chapter 2
  3. Sefanía Chapter 1
  4. Sefania Chapter 3
  5. Sefanía Chapter 2

Related Chapters & Readings

  1. 5 Mósebók Chapter 19
  2. Prédikarinn Chapter 5
  3. Sálmarnir Chapter 143
  4. 1 Konungabók Chapter 22
  5. Markús Chapter 6
  6. 1 Mósebók Chapter 23
  7. Jeremía Chapter 30
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *