Read Esekíel Chapter 6 Online
Read Esekíel Chapter 6 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Esekíel in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Esekíel and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
Esekíel 6
Kafli 6
1. Orð Drottins kom til mín svohljóðandi:
2. "Þú mannsson, snú þú augliti þínu gegn Ísraels fjöllum og spá í móti þeim
3. og seg: Þér Ísraels fjöll, heyrið orð Drottins Guðs! Svo talar Drottinn Guð til fjallanna og hæðanna, til hvammanna og dalanna: Sjá, ég læt sverðið koma yfir yður og eyði fórnarhæðum yðar.
4. Ölturu yðar skulu í eyði lögð verða og sólsúlur yðar brotnar, og vegnum mönnum yðar mun ég kasta niður fyrir framan skurðgoð yðar,
5. og ég mun varpa hræjum Ísraelsmanna fyrir skurðgoð þeirra og dreifa beinum yðar umhverfis ölturu yðar.
6. Svo langt sem byggð yðar nær, skulu borgirnar í eyði liggja og fórnarhæðirnar standa gjöreyddar, til þess að ölturu yðar séu niður brotin og í rústum, skurðgoð yðar sundurbrotin og að engu gjörð, sólsúlur yðar mölvaðar og handaverk yðar afmáð.
7. Og menn skulu vegnir í val falla yðar á meðal, til þess að þér viðurkennið, að ég er Drottinn.
8. En ég læt nokkra yðar komast undan sverðinu til annarra þjóða, og þegar yður hefur verið dreift um löndin,
9. munu þeir, sem undan komust, minnast mín meðal þjóðanna, þangað sem þeir voru herleiddir, þegar ég hefi beygt þeirra blótfíknu hjörtu, sem gjörðust mér fráhverf, og þeirra blótfúsu augu, sem mæna eftir skurðgoðunum, og þá mun þeim bjóða við sjálfum sér vegna illverka þeirra, er þeir hafa framið með öllum svívirðingum sínum.
10. Og þá munu þeir við kannast, að ég, Drottinn, hefi ekki talað þar um neinum hégómaorðum, að láta þá rata í þessa ógæfu."
11. Svo segir Drottinn Guð: "Slá þú saman höndum þínum, stappa niður fæti þínum og kalla ,vei' yfir öllum svívirðingum Ísraels húss, því að þeir munu falla fyrir sverði, hungri og drepsótt.
12. Sá sem fjær er, skal af drepsótt deyja, og sá sem nær er, fyrir sverði falla, og sá sem eftir er og bjargast hefir, skal deyja af hungri, og ég vil úthella allri heift minni yfir þá.
13. Og þér skuluð viðurkenna, að ég er Drottinn, þegar valkestirnir liggja mitt á meðal skurðgoðanna, kringum ölturu þeirra á hverri hárri hæð, á öllum fjallhnjúkum, undir hverju grænu tré og undir hverri laufgaðri eik, þar er þeir færðu öllum skurðgoðum sínum þægilegan ilm.
14. Og ég vil rétta út hönd mína í móti þeim og gjöra landið að auðn og öræfum frá eyðimörkinni allt norður að Ribla, alls staðar þar sem þeir búa, og þeir skulu viðurkenna, að ég er Drottinn."
About Esekíel Chapter 6
Read Esekíel Chapter 6 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Esekíel in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: Esekíel
Chapter: 6
Testament: Old Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Esekíel. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading Esekíel Chapter 6 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is Esekíel Chapter 6?
Esekíel Chapter 6 is part of the Book of Esekíel in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete Esekíel Chapter 6 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from Esekiel
- Esekíel Chapter 31
- Esekíel Chapter 15
- Esekíel Chapter 7
- Esekíel Chapter 12
- Esekíel Chapter 1
- Esekíel Chapter 48
- Esekíel Chapter 39
Explore More from Gamla Testamentið
- Esekíel Chapter 17
- Jesaja Chapter 44
- 5 Mósebók Chapter 17
- Hósea Chapter 6
- 1 Samúelsbók Chapter 18
- Esekíel Chapter 22
- Jobsbók Chapter 22