Esekíel Chapter 14

For English

Read Esekíel Chapter 14 Online

Read Esekíel Chapter 14 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Esekíel in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Esekíel and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Esekíel 14

Kafli 14

1. En til mín komu nokkrir af öldungum Ísraels og settust niður frammi fyrir mér.

2. Þá kom orð Drottins til mín, svohljóðandi:

3. "Mannsson, þessir menn hafa skipað skurðgoðum sínum til hásætis í hjarta sínu og sett ásteytingarstein misgjörðar sinnar upp fyrir framan sig. Ætti ég þá að láta þá ganga til frétta við mig?

4. Fyrir því tala þú til þeirra og seg við þá: Svo segir Drottinn Guð: Hver sá af Ísraelsmönnum, sem skipar skurðgoðum sínum til hásætis í hjarta sínu og setur ásteytingarstein misgjörðar sinnar upp fyrir framan sig og fer þó til spámanns, honum skal ég, Drottinn, sjálfur svör gefa, þrátt fyrir hans mörgu skurðgoð,

5. til þess að taka um hjartað í Ísraelsmönnum, er gjörst hafa mér ókunnugir fyrir öll skurðgoð sín.

6. Seg því við Ísraelsmenn: Svo segir Drottinn Guð: Snúið við og snúið yður frá skurðgoðum yðar og snúið augliti yðar burt frá öllum svívirðingum yðar.

7. Því að sérhver sá af Ísraelsmönnum og af útlendingum þeim, er dveljast meðal Ísraelsmanna, er gjörist mér fráhverfur og skipar skurðgoðum sínum til hásætis í hjarta sínu og setur ásteytingarstein misgjörðar sinnar upp fyrir framan sig og fer þó til spámanns til þess að láta hann spyrja mig fyrir sig, honum skal ég, Drottinn, sjálfur svör gefa.

8. Ég vil snúa augliti mínu gegn slíkum manni og gjöra hann að tákni og orðtaki og uppræta hann úr þjóð minni, til þess að þér viðurkennið, að ég er Drottinn.

9. En láti spámaðurinn tæla sig og flytji hann spámæli, þá hefi ég, Drottinn, tælt þann spámann, og ég mun rétta út hönd mína móti honum og afmá hann úr þjóð minni Ísrael.

10. Og þeir skulu báðir bera sekt sína: Þeir skulu vera jafnsekir hvor um sig, sá er til frétta gengur og spámaðurinn,

11. til þess að Ísraelsmenn villist ekki framar frá mér og saurgi sig ekki framar á alls konar glæpum, heldur skulu þeir vera mín þjóð, og ég skal vera þeirra Guð – segir Drottinn Guð."

12. Og orð Drottins kom til mín, svohljóðandi:

13. "Mannsson, ef land syndgar móti mér, með því að bregða trúnaði, og ég rétti út hönd mína gegn því og brýt sundur staf brauðsins fyrir því og sendi hungur í það og eyði þar mönnum og fénaði,

14. og þótt í því væru þessir þrír menn: Nói, Daníel og Job, þá mundu þeir þó aðeins fá bjargað sjálfum sér fyrir ráðvendni sína – segir Drottinn Guð.

15. Ef ég léti óargadýr fara yfir landið og þau eyddu það að mönnum, svo að það yrði auðn, sem enginn færi um vegna dýranna,

16. og þessir þrír menn væru í því, – svo sannarlega sem ég lifi, segir Drottinn Guð, skyldu þeir hvorki fá bjargað sonum né dætrum. Þeir mundu aðeins fá bjargað sjálfum sér, en landið skyldi verða auðn.

17. Eða ef ég léti sverð geisa yfir þetta land og segði: Sverðið skal fara yfir landið! og eyddi í því mönnum og skepnum,

18. og þessir þrír menn væru í því, – svo sannarlega sem ég lifi, segir Drottinn Guð, hvorki mundu þeir fá bjargað sonum né dætrum, heldur mundu þeir aðeins fá bjargað sjálfum sér.

19. Eða ef ég sendi drepsótt inn í þetta land og jysi yfir það blóðugri heift minni, til þess að eyða í því mönnum og skepnum,

20. og Nói, Daníel og Job væru í því, – svo sannarlega sem Drottinn Guð lifir, skyldu þeir hvorki fá bjargað syni né dóttur. Þeir mundu aðeins fá bjargað sjálfum sér fyrir ráðvendni sína.

21. Þó segir Drottinn Guð svo: Jafnvel þótt ég sendi fjóra mína vondu refsidóma, sverð, hungur, óargadýr og drepsótt, yfir Jerúsalem til þess að eyða í henni mönnum og skepnum,

22. þá skal þó hópur eftir verða, sem af kemst, þeir er fara út með sonu og dætur. Þeir munu koma út til yðar, og þér munuð sjá breytni þeirra og gjörðir þeirra og huggast yfir ógæfu þeirri, er ég hefi látið koma yfir Jerúsalem, yfir öllu því, er ég hefi látið koma yfir hana.

23. Og þeir munu hugga yður, er þér sjáið breytni þeirra og gjörðir þeirra, og þér munuð sjá, að ég hefi ekkert gjört án orsaka af öllu því, er ég hefi í henni gjört – segir Drottinn Guð."

About Esekíel Chapter 14

Read Esekíel Chapter 14 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Esekíel in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Esekíel
Chapter: 14
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Esekíel. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Esekíel Chapter 14 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Esekíel Chapter 14?

Esekíel Chapter 14 is part of the Book of Esekíel in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Esekíel Chapter 14 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Esekiel

  1. Esekíel Chapter 31
  2. Esekíel Chapter 15
  3. Esekíel Chapter 12
  4. Esekíel Chapter 1
  5. Esekíel Chapter 48
  6. Esekíel Chapter 19
  7. Esekíel Chapter 11

Explore More from Gamla Testamentið

  1. Jesaja Chapter 60
  2. 5 Mósebók Chapter 22
  3. Jósúabók Chapter 1
  4. Esekíel Chapter 23
  5. 1 Samúelsbók Chapter 17
  6. 3 Mósebók Chapter 26
  7. Sálmarnir Chapter 20

Related Chapters & Readings

  1. 1 Kroníkubók Chapter 22
  2. 1 Mósebók Chapter 25
  3. Markús Chapter 7
  4. Sakaría Chapter 6
  5. Markús Chapter 15
  6. 2 Mósebók Chapter 27
  7. Sálmarnir Chapter 28
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *