Esekíel Chapter 10

For English

Read Esekíel Chapter 10 Online

Read Esekíel Chapter 10 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Esekíel in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Esekíel and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Esekíel 10

Kafli 10

1. Ég sá, og sjá: Á festingunni, er var yfir höfði kerúbanna, var því líkast sem safírsteinn væri. Eitthvað, sem tilsýndar var sem hásæti í laginu, sást uppi yfir þeim.

2. Þá sagði hann við línklædda manninn: "Gakk inn á millum hjólanna undir kerúbunum, tak handfylli þína af glóðum milli kerúbanna og dreif þeim út yfir borgina." Og hann gekk þar inn að mér ásjáandi.

3. En kerúbarnir stóðu hægra megin við musterið, þegar maðurinn gekk inn, og fyllti skýið innra forgarðinn.

4. En dýrð Drottins hóf sig frá kerúbunum yfir á þröskuld musterisins. Varð musterið þá fullt af skýmekki, en forgarðurinn fylltist ljóma af dýrð Drottins.

5. Og vængjaþytur kerúbanna heyrðist allt til hins ytra forgarðs, eins og rödd Guðs almáttugs, þá er hann talar.

6. Nú er hann hafði boðið línklædda manninum og sagt: "Tak eld á millum hjólanna, á millum kerúbanna!" – þá gekk hann til og staðnæmdist hjá einu hjólinu.

7. Þá rétti einn kerúbinn hönd sína út milli kerúbanna að eldinum, sem var á milli kerúbanna, tók þar af og fékk í hendur línklædda manninum. Hann tók við og gekk burt.

8. En á kerúbunum sást eitthvað, sem líktist mannshendi, undir vængjum þeirra.

9. Ég leit til, og voru þá fjögur hjól hjá kerúbunum, sitt hjól hjá hverjum kerúb, og hjólin voru á að líta eins og þegar blikar á krýsolítstein.

10. Og að því er gerð þeirra snertir, þá voru þau öll fjögur samlík, eins og eitt hjólið væri innan í öðru hjóli.

11. Þegar þau gengu, gengu þau til allra fjögurra hliða. Þau snerust eigi við í göngunni, heldur gengu þau í þá átt, sem höfuðið sneri, þau snerust eigi við í göngunni.

12. Og allur líkami þeirra og bak þeirra, hendur og vængir voru alsett augum allt umhverfis á þeim fjórum.

13. En hjólin voru í mín eyru nefnd "hvirfilbylur".

14. Og hver hafði fjögur andlit. Andlit eins var nautsandlit, andlit hins annars mannsandlit, hinn þriðji hafði ljónsandlit og hinn fjórði arnarandlit.

15. Og kerúbarnir hófu sig upp. Það voru sömu verurnar, sem ég hafði séð við Kebarfljótið.

16. Og þegar kerúbarnir gengu, þá gengu og hjólin við hliðina á þeim, og þegar kerúbarnir hófu upp vængi sína til þess að lyfta sér frá jörðinni, þá snerust hjólin ekki burt frá þeim.

17. Þegar þeir stóðu kyrrir, stóðu þau og kyrr, og þegar þeir hófust upp, hófust þau og upp með þeim, því að andi verunnar var í þeim.

18. Dýrð Drottins fór nú burt af þröskuldi musterisins og nam staðar uppi á kerúbunum.

19. Þá hófu kerúbarnir upp vængi sína og lyftu sér frá jörðinni að mér ásjáandi, er þeir fóru burt, og hjólin samtímis þeim. Og þeir námu staðar úti fyrir austurhliði musteris Drottins, en dýrð Ísraels Guðs var uppi yfir þeim.

20. Það voru sömu verurnar, sem ég hafði séð undir Ísraels Guði við Kebarfljótið, og ég þekkti, að það voru kerúbar.

21. Þeir höfðu fjögur andlit og fjóra vængi hver, og undir vængjum sér eitthvað, sem líktist mannshöndum.

22. Og hvað andlitsskapnaðinn snerti, þá voru það sömu andlitin, sem ég hafði séð við Kebarfljótið; þeir gengu hver fyrir sig beint af augum fram.

About Esekíel Chapter 10

Read Esekíel Chapter 10 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Esekíel in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Esekíel
Chapter: 10
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Esekíel. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Esekíel Chapter 10 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Esekíel Chapter 10?

Esekíel Chapter 10 is part of the Book of Esekíel in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Esekíel Chapter 10 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Esekiel

  1. Esekíel Chapter 31
  2. Esekíel Chapter 15
  3. Esekíel Chapter 1
  4. Esekíel Chapter 48
  5. Esekíel Chapter 19
  6. Esekíel Chapter 7
  7. Esekíel Chapter 2

Explore More from Gamla Testamentið

  1. Habakkuk Chapter 3
  2. Jobsbók Chapter 5
  3. Jesaja Chapter 36
  4. 2 Mósebók Chapter 30
  5. Sálmarnir Chapter 92
  6. Jeremía Chapter 7
  7. Nahúm Chapter 1

Related Chapters & Readings

  1. Sálmarnir Chapter 24
  2. Markús Chapter 11
  3. Postulasagan Chapter 27
  4. 1 Mósebók Chapter 9
  5. 5 Mósebók Chapter 14
  6. Sálmarnir Chapter 144
  7. Lúkas Chapter 20
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *