Markús Chapter 8

For English

Read Markús Chapter 8 Online

Read Markús Chapter 8 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Markús in the New Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Markús and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Markús 8

Kafli 8

1. Um þessar mundir bar enn svo við, að mikill mannfjöldi var saman kominn og hafði ekkert til matar. Jesús kallar þá til sín lærisveinana og segir við þá:

2. "Ég kenni í brjósti um mannfjöldann. Þeir hafa nú hjá mér verið þrjá daga og hafa ekkert til matar.

3. Láti ég þá fara fastandi heim til sín, örmagnast þeir á leiðinni, en sumir þeirra eru langt að."

4. Þá svöruðu lærisveinarnir: "Hvar er hægt að fá brauð til að metta þetta fólk hér í óbyggðum?"

5. Hann spurði þá: "Hve mörg brauð hafið þér?" Þeir sögðu: "Sjö."

6. Þá bauð hann fólkinu að setjast á jörðina, tók brauðin sjö, gjörði þakkir og braut þau og gaf lærisveinum sínum, að þeir bæru þau fram. En þeir báru þau fram fyrir fólkið.

7. Þeir höfðu og fáeina smáfiska. Hann þakkaði Guði og bauð, að einnig þeir skyldu fram bornir.

8. Menn neyttu og urðu mettir. Síðan tóku þeir saman leifarnar, sjö körfur.

9. En þeir voru um fjórar þúsundir. Síðan lét hann þá fara.

10. Og hann sté þegar í bátinn með lærisveinum sínum og kom í Dalmanútabyggðir.

11. Þangað komu farísear og tóku að þrátta við hann, þeir vildu freista hans og kröfðu hann um tákn af himni.

12. Hann andvarpaði þungan innra með sér og mælti: "Hví heimtar þessi kynslóð tákn? Sannlega segi ég yður: Tákn verður alls ekki gefið þessari kynslóð."

13. Hann skildi síðan við þá, sté aftur í bátinn og fór yfir um.

14. Þeir höfðu gleymt að taka brauð, höfðu ekki nema eitt brauð með sér í bátnum.

15. Jesús áminnti þá og sagði: "Gætið yðar, varist súrdeig farísea og súrdeig Heródesar."

16. En þeir ræddu sín á milli, að þeir hefðu ekki brauð.

17. Hann varð þess vís og segir við þá: "Hvað eruð þér að tala um, að þér hafið ekki brauð? Skynjið þér ekki enn né skiljið? Eru hjörtu yðar forhert?

18. Þér hafið augu, sjáið þér ekki? Þér hafið eyru, heyrið þér ekki? Eða munið þér ekki?

19. Þegar ég braut brauðin fimm handa fimm þúsundum, hve margar körfur fullar af brauðbitum tókuð þér saman?" Þeir svara honum: "Tólf."

20. "Eða brauðin sjö handa fjórum þúsundunum, hve margar körfur fullar af brauðbitum tókuð þér þá saman?" Þeir svara: "Sjö."

21. Og hann sagði við þá: "Skiljið þér ekki enn?"

22. Þeir koma nú til Betsaídu. Þar færa menn til Jesú blindan mann og biðja, að hann snerti hann.

23. Hann tók í hönd hins blinda, leiddi hann út úr þorpinu, skyrpti í augu hans, lagði hendur yfir hann og spurði: "Sér þú nokkuð?"

24. Hann leit upp og mælti: "Ég sé menn, ég greini þá líkt og tré, þeir ganga."

25. Þá lagði hann aftur hendur yfir augu hans, og nú sá hann skýrt, varð albata og heilskyggn á allt.

26. Jesús sendi hann síðan heim til sín og sagði: "Inn í þorpið máttu ekki fara."

27. Jesús fór nú ásamt lærisveinum sínum til þorpanna hjá Sesareu Filippí. Á leiðinni spurði hann lærisveina sína: "Hvern segja menn mig vera?"

28. Þeir svöruðu honum: "Jóhannes skírara, aðrir Elía og aðrir einn af spámönnunum."

29. Og hann spurði þá: "En þér, hvern segið þér mig vera?" Pétur svaraði honum: "Þú ert Kristur."

30. Og hann lagði ríkt á við þá að segja engum frá sér.

31. Þá tók hann að kenna þeim: "Mannssonurinn á margt að líða, honum mun útskúfað verða af öldungum, æðstu prestum og fræðimönnum, hann mun líflátinn, en upp rísa eftir þrjá daga."

32. Þetta sagði hann berum orðum. En Pétur tók hann á einmæli og fór að átelja hann.

33. Jesús sneri sér við, leit til lærisveina sinna, ávítaði Pétur og sagði: "Vík frá mér, Satan, eigi hugsar þú um það, sem Guðs er, heldur það, sem manna er."

34. Og hann kallaði til sín mannfjöldann ásamt lærisveinum sínum og sagði við þá: "Hver sem vill fylgja mér, afneiti sjálfum sér, taki kross sinn og fylgi mér.

35. Því að hver sem vill bjarga lífi sínu, mun týna því, og hver sem týnir lífi sínu vegna mín og fagnaðarerindisins, mun bjarga því.

36. Hvað stoðar það manninn að eignast allan heiminn, en fyrirgjöra sálu sinni?

37. Eða hvað gæti maður látið til endurgjalds fyrir sálu sína?

38. En þann sem blygðast sín fyrir mig og mín orð hjá þessari ótrúu, syndugu kynslóð, mun Mannssonurinn blygðast sín fyrir, er hann kemur í dýrð föður síns með heilögum englum."

About Markús Chapter 8

Read Markús Chapter 8 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Markús in the New Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Markús
Chapter: 8
Testament: New Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Markús. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Markús Chapter 8 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Markús Chapter 8?

Markús Chapter 8 is part of the Book of Markús in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Markús Chapter 8 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Markus

  1. Markus Chapter 5
  2. Markus Chapter 1
  3. Markus Chapter 16
  4. Markus Chapter 7
  5. Markus Chapter 12
  6. Markus Chapter 8
  7. Markus Chapter 2

Explore More from Nýja Testamentið

  1. Rómverjar Chapter 14
  2. Galatabréfið Chapter 2
  3. Galatabréfið Chapter 4
  4. Lúkas Chapter 22
  5. 2 Korintubréf Chapter 10
  6. Jóhannes Chapter 14
  7. Rómverjar Chapter 11

Related Chapters & Readings

  1. 2 Konungabók Chapter 18
  2. Esekíel Chapter 40
  3. Sálmarnir Chapter 52
  4. 1 Jóhannesarbréf Chapter 2
  5. Jobsbók Chapter 41
  6. 5 Mósebók Chapter 2
  7. Rutarbók Chapter 4
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *