Read Nahúm Chapter 2 Online
Read Nahúm Chapter 2 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Nahúm in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Nahúm and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
Nahúm 2
Kafli 2
1. Ófriðarmaðurinn fer í móti þér, Níníve: Gæt vígisins! Horf njósnaraugum út á veginn, styrk lendarnar, safna öllum styrkleika þínum,
2. (2:3) því að Drottinn reisir aftur við tign Jakobs eins og tign Ísraels, því að ræningjar hafa rænt þá og skemmt gróðurkvistu þeirra.
3. (2:4) Skildir kappa hans eru rauðlitaðir, hermennirnir klæddir skarlatsklæðum. Vagnarnir glóa af stáli þann dag, er hann útbýr þá, og lensunum verður sveiflað.
4. (2:5) Vagnarnir geisa á strætunum, þeytast um torgin, þeir eru til að sjá sem blys, þeir þjóta áfram sem eldingar.
5. (2:6) Konungurinn heitir þá á tignarmenn sína: Þeir hrasa á göngu sinni, þeir flýta sér að múrnum, en þegar er vígþak reist.
6. (2:7) Hliðunum við fljótið er lokið upp og konungshöllin kemst í uppnám.
7. (2:8) Og drottningin verður flett klæðum og flutt burt, og þernur hennar munu andvarpa, líkast því sem dúfur kurri, og berja sér á brjóst.
8. (2:9) Níníve hefir verið sem vatnstjörn frá upphafi vega sinna. En þeir flýja. "Standið við, standið við!" – en enginn lítur við.
9. (2:10) Rænið silfri, rænið gulli! Því að hér er óþrjótandi forði, ógrynni af alls konar dýrum munum.
10. (2:11) Auðn, gjörauðn og aleyðing, huglaus hjörtu, riðandi kné og skjálfti í öllum mjöðmum, og allra andlit blikna.
11. (2:12) Hvar er nú bæli ljónanna, átthagar ungljónanna, þar sem ljónið gekk og ljónynjan og ljónshvolpurinn, án þess að nokkur styggði þau?
12. (2:13) Ljónið reif sundur, þar til er hvolpar þess höfðu fengið nægju sína, og drap niður handa ljónynjum sínum, fyllti hella sína bráð og bæli sín ránsfeng.
13. (2:14) Sjá, ég rís í gegn þér – segir Drottinn allsherjar – og læt vagna þína bálast upp í reyk, og sverðið skal eta ungljón þín. Og ég eyði herfangi þínu af jörðinni, og raust sendiboða þinna skal ekki framar heyrast.
About Nahúm Chapter 2
Read Nahúm Chapter 2 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Nahúm in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: Nahúm
Chapter: 2
Testament: Old Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Nahúm. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading Nahúm Chapter 2 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is Nahúm Chapter 2?
Nahúm Chapter 2 is part of the Book of Nahúm in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete Nahúm Chapter 2 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from Gamla Testamentið
Explore More from Nahum
- Nahum Chapter 3
- Nahúm Chapter 3
- Nahum Chapter 2
- Nahum Chapter 3
- Náhum Chapter 3
- Nahum Chapter 1
- Nahum Chapter 2