1 Konungabók Chapter 9

For English

Read 1 Konungabók Chapter 9 Online

Read 1 Konungabók Chapter 9 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 1 Konungabók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of 1 Konungabók and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

1 Konungabók 9

Kafli 9

1. Þá er Salómon hafði lokið að byggja musteri Drottins og konungshöllina og allt annað, er hann fýsti að gjöra,

2. þá vitraðist Drottinn honum í annað sinn, eins og hann hafði vitrast honum í Gíbeon.

3. Og Drottinn sagði við hann: "Ég hefi heyrt bæn þína og grátbeiðni, sem þú barst fram fyrir mig. Ég hefi helgað þetta hús, sem þú hefir reist, með því að ég læt nafn mitt búa þar að eilífu, og augu mín og hjarta skulu dvelja þar alla daga.

4. Ef þú nú gengur fyrir augliti mínu, eins og Davíð faðir þinn gjörði, í hreinskilni hjartans og einlægni, svo að þú gjörir allt, sem ég hefi fyrir þig lagt, og heldur lög mín og ákvæði,

5. þá vil ég staðfesta hásæti konungdóms þíns yfir Ísrael að eilífu, eins og ég hét Davíð föður þínum, er ég sagði: ,Eigi skal þig vanta eftirmann í hásæti Ísraels.'

6. En ef þér snúið baki við mér, þér og synir yðar, og varðveitið eigi boðorð mín og lög, þau er ég hefi lagt fyrir yður, en farið og þjónið öðrum guðum og fallið fram fyrir þeim,

7. þá mun ég uppræta Ísrael úr því landi, sem ég gaf þeim, og húsinu, sem ég hefi helgað nafni mínu, mun ég burt snara frá augliti mínu, og Ísrael skal verða að orðskvið og spotti meðal allra þjóða.

8. Og þetta hús, svo háreist sem það er – hver sem gengur fram hjá því, honum mun blöskra og hann mun blístra. Og er menn spyrja: ,Hvers vegna hefir Drottinn leikið svo hart þetta land og þetta hús?'

9. munu menn svara: ,Af því að þeir yfirgáfu Drottin, Guð sinn, er leiddi feður þeirra af Egyptalandi, og héldu sér að öðrum guðum, féllu fram fyrir þeim og þjónuðu þeim. Fyrir því hefir Drottinn leitt yfir þá alla þessa ógæfu.'"

10. Að tuttugu árum liðnum, þá er Salómon hafði reist bæði húsin, musteri Drottins og konungshöllina –

11. en Híram konungur í Týrus hafði hjálpað Salómon um sedrusvið, kýpresvið og gull, eins og hann vildi -, þá gaf Salómon konungur Híram tuttugu borgir í Galíleuhéraði.

12. Og Híram fór frá Týrus til þess að skoða borgirnar, er Salómon hafði gefið honum, en honum líkuðu þær ekki.

13. Þá sagði hann: "Hvaða borgir eru þetta, sem þú hefir gefið mér, bróðir?" Fyrir því hafa þær verið kallaðar Kabúlhérað fram á þennan dag.

14. En Híram sendi konungi hundrað og tuttugu talentur gulls.

15. Svo stóð á vinnuskyldu þeirri, er Salómon konungur lagði á til þess að byggja musteri Drottins og höll sína, Milló og múra Jerúsalem, Hasór, Megiddó og Geser:

16. Faraó Egyptalandskonungur hafði farið herferð og unnið Geser og lagt eld í hana, en drepið Kanaanítana, sem bjuggu í borginni, og síðan gefið hana dóttur sinni, konu Salómons, í heimanmund.

17. En Salómon reisti Geser að nýju – og Neðri Bethóron,

18. og Baalat og Tamar í óbyggðinni í landinu,

19. og allar vistaborgirnar, sem Salómon átti, og vagnliðsborgirnar og riddaraborgirnar, og allt sem Salómon fýsti að byggja í Jerúsalem, á Líbanon og í öllu ríki sínu:

20. Allt það fólk, sem eftir var af Amorítum, Hetítum, Peresítum, Hevítum og Jebúsítum, sem eigi heyrðu til Ísraelsmönnum,

21. niðjar þeirra, sem enn voru eftir í landinu og Ísraelsmenn eigi höfðu getað helgað banni – á þá lagði Salómon skylduvinnu, og er svo enn í dag.

22. En af Ísraelsmönnum gjörði Salómon enga að þrælum, en þeir voru hermenn, embættismenn hans, hershöfðingjar hans, vagnkappar hans og foringjar fyrir vagnliði hans og riddaraliði.

23. Æðstu fógetarnir, er settir voru yfir verk Salómons, voru fimm hundruð og fimmtíu að tölu. Höfðu þeir eftirlit með mönnum þeim, er að verkinu unnu.

24. Óðara en dóttir Faraós var farin úr Davíðsborg í hús sitt, það er hann hafði reist handa henni, byggði hann Milló.

25. Þrisvar sinnum á ári fórnaði Salómon brennifórnum og heillafórnum á altarinu, er hann hafði reist Drottni, og færði auk þess reykelsisfórnir á því altari, sem stóð frammi fyrir Drottni. Þannig fullgjörði hann musterið.

26. Salómon konungur lét og smíða skip í Esjón Geber, sem liggur hjá Elat á strönd Rauðahafs, í Edómlandi.

27. Og Híram sendi á skipin menn sína, farmenn vana sjómennsku, ásamt mönnum Salómons.

28. Og þeir fóru til Ófír og sóttu þangað gull – fjögur hundruð og tuttugu talentur – og færðu það Salómon konungi.

About 1 Konungabók Chapter 9

Read 1 Konungabók Chapter 9 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 1 Konungabók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: 1 Konungabók
Chapter: 9
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading 1 Konungabók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading 1 Konungabók Chapter 9 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is 1 Konungabók Chapter 9?

1 Konungabók Chapter 9 is part of the Book of 1 Konungabók in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete 1 Konungabók Chapter 9 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from 1 Konungabok

  1. 1 Konungabók Chapter 15
  2. 1 Konungabók Chapter 16
  3. 1 Konungabók Chapter 6
  4. 1 Konungabók Chapter 14
  5. 1 Konungabók Chapter 11
  6. 1 Konungabók Chapter 22
  7. 1 Konungabók Chapter 20

Explore More from Gamla Testamentið

  1. Jesaja Chapter 27
  2. 3 Mósebók Chapter 14
  3. 2 Mósebók Chapter 18
  4. Esekíel Chapter 43
  5. Jobsbók Chapter 24
  6. Orðskviðirnir Chapter 27
  7. Nahúm Chapter 2

Related Chapters & Readings

  1. 3 Mósebók Chapter 23
  2. Sálmarnir Chapter 46
  3. Jesaja Chapter 3
  4. Esekíel Chapter 23
  5. 2 Pétursbréf Chapter 1
  6. 1 Korintubréf Chapter 5
  7. 2 Samúelsbók Chapter 19
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *