Sakaría Chapter 12

For English

Read Sakaría Chapter 12 Online

Read Sakaría Chapter 12 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Sakaría in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Sakaría and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Sakaría 12

Kafli 12

1. Spádómur. Orð Drottins um Ísrael, guðmæli Drottins, sem útþandi himininn, grundvallaði jörðina og myndaði andann í brjósti mannsins:

2. Sjá, ég gjöri Jerúsalem að vímuskál fyrir allar þjóðirnar, sem umhverfis hana eru. Jafnvel Júda mun vera með í umsátinni um Jerúsalem.

3. Á þeim degi mun ég gjöra Jerúsalem að aflraunasteini fyrir allar þjóðir. Hver sá, er hefur hann upp, mun hrufla sig til blóðs, og allar þjóðir jarðarinnar munu safnast gegn henni.

4. Á þeim degi – segir Drottinn – mun ég slá felmt á alla víghesta og vitfirring á þá sem ríða þeim. Á Júda húsi vil ég hafa vakandi auga, en slá alla hesta þjóðanna með blindu.

5. Þá munu ætthöfðingjar Júda segja með sjálfum sér: "Styrkur er Jerúsalembúum í Drottni allsherjar, Guði sínum."

6. Á þeim degi mun ég gjöra ætthöfðingja Júda eins og glóðarker í viðarkesti og sem brennandi blys í kerfum, og þeir munu eyða til hægri og til vinstri öllum þjóðum umhverfis, en Jerúsalem mun verða kyrr á sínum stað eins og áður.

7. Fyrst mun Drottinn frelsa tjöld Júda, til þess að frægð Davíðs húss og frægð Jerúsalembúa verði ekki meiri en Júda.

8. Á þeim degi mun Drottinn halda hlífiskildi yfir Jerúsalembúum, og hinn máttfarni meðal þeirra mun á þeim degi vera eins og Davíð og Davíðs hús eins og Guð, eins og engill Drottins á undan þeim.

9. Á þeim degi mun ég leitast við að eyða öllum þjóðunum, er fóru í móti Jerúsalem.

10. En yfir Davíðs hús og yfir Jerúsalembúa úthelli ég líknar- og bænaranda, og þeir munu líta til mín, til hans, sem þeir lögðu í gegn, og harma hann eins og menn harma lát einkasonar, og syrgja hann eins og menn syrgja frumgetinn son.

11. Á þeim degi mun eins mikið harmakvein verða í Jerúsalem eins og Hadad-Rimmon-harmakveinið í Megiddódal.

12. Landið mun kveina, hver kynþáttur fyrir sig: Kynþáttur Davíðs húss fyrir sig og konur þeirra fyrir sig, kynþáttur Natans húss fyrir sig og konur þeirra fyrir sig,

13. kynþáttur Leví húss fyrir sig og konur þeirra fyrir sig, kynþáttur Símeíta fyrir sig og konur þeirra fyrir sig,

14. og eins allir hinir kynþættirnir, sem eftir eru, hver kynþáttur fyrir sig og konur þeirra fyrir sig.

About Sakaría Chapter 12

Read Sakaría Chapter 12 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Sakaría in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Sakaría
Chapter: 12
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Sakaría. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Sakaría Chapter 12 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Sakaría Chapter 12?

Sakaría Chapter 12 is part of the Book of Sakaría in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Sakaría Chapter 12 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Gamla Testamentið

  1. Míka Chapter 1
  2. Míka Chapter 3
  3. Míka Chapter 2
  4. Míka Chapter 4
  5. Míka Chapter 7
  6. Míka Chapter 5
  7. Míka Chapter 6

Explore More from sakaria

  1. Sakaría Chapter 14
  2. Sakaría Chapter 10
  3. Sakaría Chapter 4
  4. Sakaría Chapter 6
  5. Sakaría Chapter 1
  6. Sakaria Chapter 11
  7. Sakaria Chapter 3

Related Chapters & Readings

  1. Sálmarnir Chapter 82
  2. Jesaja Chapter 65
  3. Sálmarnir Chapter 6
  4. Ljóðaljóðin Chapter 7
  5. Fílemonsbréfið Chapter 1
  6. Sálmarnir Chapter 131
  7. 2 Kroníkubók Chapter 8
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *