Read Míka Chapter 2 Online
Read Míka Chapter 2 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Míka in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Míka and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
Míka 2
Kafli 2
1. Vei þeim, sem hugsa upp rangindi og hafa illt með höndum í hvílurúmum sínum og framkvæma það, þegar ljómar af degi, jafnskjótt og þeir megna.
2. Langi þá til að eignast akra, þá ræna þeir þeim, eða hús, þá taka þeir þau burt. Þeir beita ofríki gegn húsbóndanum og húsi hans, gegn manninum og óðali hans.
3. Fyrir því segir Drottinn svo: Sjá, ég bý yfir óhamingju, sem ég mun senda þessari kynslóð, og þér skuluð ekki fá af yður hrundið né gengið hnarreistir undir, því að það munu verða vondir tímar.
4. Á þeim degi munu menn háðkvæði um yður kveða og hefja harmatölur á þessa leið: "Vér erum gjörsamlega eyðilagðir, landeign þjóðar minnar er úthlutað með mæliþræði, og enginn fær mér hana aftur. Ökrum vorum er skipt milli þeirra, er oss hafa hertekið!"
5. Fyrir því skalt þú engan hafa, er dragi mæliþráð yfir landskika í söfnuði Drottins.
6. "Prédikið ekki," – svo prédika þeir. "Menn eiga ekki að prédika um slíkt! Skömmunum linnir ekki!"
7. Hvílíkt tal, Jakobs hús! Er Drottinn óþolinmóður, eða eru gjörðir hans slíkar? Eru ekki orð hans gæskurík við þá, sem breyta ráðvandlega?
8. En þjóð mín hefir nú þegar lengi risið upp á móti mér sem óvinur. Utan af kyrtlinum dragið þér yfirhöfnina af þeim, sem ugglausir fara um veginn, sem fráhverfir eru stríði.
9. Konur þjóðar minnar rekið þér út úr húsunum, sem hafa verið yndi þeirra, rænið börn þeirra prýði minni að eilífu.
10. Af stað og burt með yður! Því að hér er ekki samastaður fyrir yður vegna saurgunarinnar, sem veldur tjóni, og það ólæknandi tjóni.
11. Ef einhver, sem færi með hégóma og lygar, hræsnaði fyrir þér og segði: "Ég skal spá þér víni og áfengum drykk," það væri spámaður fyrir þessa þjóð!
12. Safna, já safna vil ég, Jakob, öllum þínum, færa saman leifar Ísraels eins og sauðfé í rétt, eins og hjörð í haga, og þar skal verða kliður mikill af mannmergðinni.
13. Forustusauðurinn fer fyrir þeim, þeir ryðjast fram, fara í gegnum hliðið og halda út um það, og konungur þeirra fer fyrir þeim og Drottinn er í broddi fylkingar þeirra.
About Míka Chapter 2
Read Míka Chapter 2 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Míka in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: Míka
Chapter: 2
Testament: Old Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Míka. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading Míka Chapter 2 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is Míka Chapter 2?
Míka Chapter 2 is part of the Book of Míka in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete Míka Chapter 2 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from Gamla Testamentið
- Míka Chapter 1
- Míka Chapter 3
- Míka Chapter 7
- Míka Chapter 5
- Míka Chapter 4
- Míka Chapter 6
- Sálmarnir Chapter 8