Esekíel Chapter 38

For English

Read Esekíel Chapter 38 Online

Read Esekíel Chapter 38 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Esekíel in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Esekíel and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Esekíel 38

Kafli 38

1. Orð Drottins kom til mín, svohljóðandi:

2. "Mannsson, snú þér gegn Góg í Magóglandi, höfðingja yfir Rós, Mesek og Túbal, spá gegn honum

3. og seg: Svo segir Drottinn Guð: Ég skal finna þig, Góg höfðingi yfir Rós, Mesek og Túbal,

4. og ég skal setja króka í kjálka þína og leiða þig út, ásamt öllu herliði þínu, hestum og riddurum, öllum með alvæpni, mikinn manngrúa, með skjöld og törgu, alla með sverð í höndum.

5. Persar, Blálendingar og Pútmenn eru í för með þeim, allir með törgu og hjálm,

6. Gómer og allir herflokkar hans, Tógarma-lýður, hin ysta norðurþjóð, og allir herflokkar hans – margar þjóðir eru í för með þér.

7. Bú þig út og ver viðbúinn, þú og allar hersveitirnar, sem safnast hafa til þín, og ver þú yfirmaður þeirra.

8. Eftir langan tíma munt þú útboðsskipun hljóta. Á síðustu árunum munt þú koma inn í það land, sem aftur er unnið undan sverðinu, til þjóðar, sem safnað hefir verið saman frá mörgum þjóðum á Ísraels fjöll, sem stöðuglega hafa í eyði legið, já, frá þjóðunum var hún flutt, og nú búa allir öruggir.

9. Þá munt þú brjótast fram sem þrumuveður, koma sem óveðursský til þess að hylja landið, þú og allir herflokkar þínir og margar þjóðir með þér.

10. Svo segir Drottinn Guð: Á þeim degi munu illar hugsanir koma upp í hjarta þínu og þú munt hafa illar fyrirætlanir með höndum

11. og segja: ,Ég vil fara í móti bændabýlalandi, ráða á friðsama menn, sem búa óhultir, þeir búa allir múrveggjalausir og hafa hvorki slagbranda né hlið,'

12. til þess að fara með rán og rifs, til þess að leggja hönd þína á borgarrústir, sem aftur eru byggðar orðnar, og á þjóð, sem saman söfnuð er frá heiðingjunum, sem aflar sér búfjár og fjármuna, á menn, sem búa á nafla jarðarinnar.

13. Seba og Dedan og verslunarmenn frá Tarsis og kaupmenn hennar segja við þig: ,Kemur þú til þess að ræna? Hefir þú dregið saman liðsveitir þínar til þess að rupla, til þess að hafa á burt silfur og gull, flytja burt búfé og fjármuni, til þess að afla mikils herfangs?'

14. Fyrir því spá þú, mannsson, og seg við Góg: Svo segir Drottinn Guð: Munt þú ekki á þeim degi, er lýður minn Ísrael býr óhultur, leggja af stað

15. og koma frá stöðvum þínum, lengst úr norðri, þú og margar þjóðir með þér, allir ríðandi hestum, mikill liðssafnaður, fjölmennur her,

16. og fara í móti lýð mínum Ísrael eins og óveðursský til þess að hylja landið? Á hinum síðustu dögum mun ég leiða þig móti landi mínu, til þess að þjóðirnar læri að þekkja mig, þegar ég auglýsi heilagleik minn á þér, Góg, fyrir augum þeirra.

17. Svo segir Drottinn Guð: Ert þú sá, er ég talaði um í fyrri daga fyrir munn þjóna minna, spámanna Ísraels, er spáðu í þá daga árum saman, að ég mundi leiða þig móti þeim?

18. En þann dag, daginn sem Góg fer móti Ísraelslandi, – segir Drottinn Guð – mun reiðin blossa í nösum mér.

19. Í ákefð minni, í minni brennandi heift, tala ég það: Vissulega, á þeim degi skal mikill jarðskjálfti verða á Ísraelslandi.

20. Þá skulu fiskar sjávarins skjálfa fyrir mér og fuglar himinsins, dýr merkurinnar og öll skriðkvikindi, sem skríða á jörðinni, og allir menn, sem eru á jörðinni, og fjöllin skulu kollvarpast og hamrarnir hrynja og hver múrveggur til jarðar falla.

21. Og á öllum fjöllum mínum vil ég kalla á sverðin í móti honum – segir Drottinn Guð. Eins sverð skal vera í móti öðrum.

22. Og ég vil ganga í dóm við hann með drepsótt og blóðsúthelling, með dynjandi steypiregni og haglsteinum. Eldi og brennisteini vil ég rigna láta yfir hann og yfir hersveitir hans og yfir margar þjóðir, sem með honum eru.

23. Og ég vil auglýsa mig dýrlegan og heilagan og gjöra mig kunnan í augsýn margra þjóða, til þess að þær viðurkenni, að ég er Drottinn.

About Esekíel Chapter 38

Read Esekíel Chapter 38 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Esekíel in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Esekíel
Chapter: 38
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Esekíel. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Esekíel Chapter 38 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Esekíel Chapter 38?

Esekíel Chapter 38 is part of the Book of Esekíel in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Esekíel Chapter 38 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Esekiel

  1. Esekíel Chapter 31
  2. Esekíel Chapter 1
  3. Esekíel Chapter 15
  4. Esekíel Chapter 7
  5. Esekíel Chapter 3
  6. Esekíel Chapter 2
  7. Esekíel Chapter 19

Explore More from Gamla Testamentið

  1. 1 Samúelsbók Chapter 15
  2. Esekíel Chapter 2
  3. Jeremía Chapter 44
  4. Jesaja Chapter 2
  5. Daníel Chapter 9
  6. 2 Kroníkubók Chapter 23
  7. Jobsbók Chapter 25

Related Chapters & Readings

  1. 2 Kroníkubók Chapter 13
  2. Esekíel Chapter 12
  3. Sálmarnir Chapter 120
  4. Jeremía Chapter 9
  5. Jósúabók Chapter 11
  6. 1 Konungabók Chapter 11
  7. 2 Kroníkubók Chapter 12
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *