Read Esekíel Chapter 11 Online
Read Esekíel Chapter 11 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Esekíel in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Esekíel and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
Esekíel 11
Kafli 11
1. Og andinn hóf mig upp og flutti mig að austurhliði musteris Drottins, sem horfir mót austri. Þar stóðu fyrir dyrum hliðsins tuttugu og fimm menn, og á meðal þeirra sá ég Jaasanja Assúrsson og Pelatja Benajason, foringja lýðsins.
2. Þá sagði hann við mig: "Mannsson, það eru þessir menn, sem hafa illt í huga og ráða mönnum óheilt í þessari borg.
3. Þeir segja: ,Hafa ekki húsin nýlega verið endurreist? Borgin er potturinn, en vér erum kjötið.'
4. Spá þú þess vegna móti þeim, spá þú, mannsson!"
5. Þá kom andi Drottins yfir mig og sagði við mig: "Seg þú: Svo segir Drottinn: Svo segið þér, Ísraelsmenn, og ég þekki hugrenningar yðar.
6. Marga menn yðar hafið þér drepið í þessari borg og þér hafið fyllt stræti hennar vegnum mönnum.
7. Fyrir því segir Drottinn Guð svo: Þeir menn, sem þér hafið lagt að velli í borginni, þeir eru kjötið og borgin er potturinn. En þér munuð fluttir verða burt úr henni.
8. Við sverðið eruð þér hræddir, og sverðið skal ég láta yfir yður koma, segir Drottinn Guð.
9. Og ég skal færa yður burt úr borginni og selja yður útlendum mönnum í hendur og framkvæma dóma meðal yðar.
10. Fyrir sverði skuluð þér falla, í Ísraelslandi skal ég dæma yður, og þér skuluð viðurkenna, að ég er Drottinn.
11. Borgin skal ekki verða yður að potti og þér skuluð ekki verða kjöt í henni, í Ísraelslandi skal ég dæma yður.
12. Þá skuluð þér viðurkenna, að ég er Drottinn. En mínum boðorðum hafið þér ekki hlýtt og mína setninga hafið þér ekki haldið, heldur hafið þér breytt eftir setningum heiðnu þjóðanna, sem umhverfis yður eru."
13. Meðan ég spáði þannig, féll Pelatja Benajason dauður niður. Þá féll ég fram á ásjónu mína, kallaði upp hárri röddu og sagði: "Æ, Drottinn Guð, ætlar þú að gjöreyða öllum eftirleifum Ísraels?"
14. Orð Drottins kom til mín, svohljóðandi:
15. "Mannsson, um bræður þína, bræður þína, þá menn, er með þér voru herleiddir, og gjörvallan Ísraels lýð, segja Jerúsalembúar: ,Þeir eru langt í burtu frá Drottni, oss er landið gefið til eignar!'
16. Fyrir því skalt þú segja: Svo segir Drottinn Guð: Já, ég hefi rekið þá langt burt til heiðinna þjóða og dreift þeim út um löndin, og ég varð þeim skamma hríð að helgidómi í löndum þeim, sem þeir eru komnir til.
17. Fyrir því skalt þú segja: Svo segir Drottinn Guð: Ég vil safna yður saman frá þjóðunum og stefna yður saman frá löndunum, þangað sem yður var dreift, og gefa yður Ísraelsland.
18. Þangað munu þeir komast og útrýma þaðan öllum viðurstyggðum þess og öllum svívirðingum þess.
19. Og ég mun gefa þeim nýtt hjarta og leggja þeim nýjan anda í brjóst. Ég mun taka steinhjartað úr líkama þeirra og gefa þeim hjarta af holdi,
20. til þess að þeir hlýði boðorðum mínum og varðveiti setninga mína og breyti eftir þeim. Og þá skulu þeir vera mín þjóð og ég skal vera þeirra Guð.
21. En þessir – hjarta þeirra eltir viðurstyggðir þeirra og andstyggðir. Ég skal láta athæfi þeirra koma þeim í koll, segir Drottinn Guð."
22. Nú hófu kerúbarnir vængi sína og hjólin færðust til samtímis þeim, en dýrð Ísraels Guðs var uppi yfir þeim.
23. Og dýrð Drottins hóf sig upp frá borginni og staðnæmdist á fjallinu, sem er fyrir austan borgina.
24. Og andinn hóf mig upp og flutti mig í sýninni, fyrir Guðs anda, til hinna herleiddu í Kaldealandi. Og sýnin, sem ég hafði séð, leið upp frá mér.
25. Því næst flutti ég hinum herleiddu öll orð Drottins, þau er hann hafði birt mér.
About Esekíel Chapter 11
Read Esekíel Chapter 11 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Esekíel in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: Esekíel
Chapter: 11
Testament: Old Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Esekíel. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading Esekíel Chapter 11 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is Esekíel Chapter 11?
Esekíel Chapter 11 is part of the Book of Esekíel in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete Esekíel Chapter 11 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from Esekiel
- Esekíel Chapter 31
- Esekíel Chapter 15
- Esekíel Chapter 1
- Esekíel Chapter 48
- Esekíel Chapter 19
- Esekíel Chapter 7
- Esekíel Chapter 2
Explore More from Gamla Testamentið
- 2 Samúelsbók Chapter 3
- 2 Kroníkubók Chapter 13
- Hósea Chapter 6
- Hósea Chapter 14
- Sálmarnir Chapter 20
- Jesaja Chapter 17
- 2 Mósebók Chapter 20