3 Mósebók Chapter 6

For English

Read 3 Mósebók Chapter 6 Online

Read 3 Mósebók Chapter 6 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 3 Mósebók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of 3 Mósebók and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

3 Mósebók 6

Kafli 6

1. Drottinn talaði við Móse og sagði:

2. "Nú syndgar einhver og sýnir sviksemi gegn Drottni og þrætir við náunga sinn fyrir það, sem honum hefir verið trúað fyrir, eða honum hefir verið í hendur selt, eða hann hefir rænt, eða hann hefir haft með ofríki af náunga sínum,

3. eða hann hefir fundið eitthvað, sem týnst hefir, og þrætir fyrir það, eða hann með meinsæri synjar fyrir einhvern þann verknað, er menn fremja sér til syndar, –

4. þegar hann syndgar þannig og verður sekur, þá skal hann skila því aftur, sem hann hefir rænt eða með ofríki haft af öðrum eða honum hefir verið trúað fyrir, eða hinu týnda, sem hann hefir fundið,

5. eða hverju því, er hann hefir synjað fyrir með meinsæri, og skal hann bæta það fullu verði og gjalda fimmtungi meira. Skal hann greiða það eiganda á þeim degi, er hann færir sektarfórn sína.

6. En í bætur Drottni til handa skal hann færa prestinum hrút gallalausan úr hjörðinni, eftir þínu mati, til sektarfórnar.

7. Og presturinn skal friðþægja fyrir hann frammi fyrir Drottni, og honum mun fyrirgefið verða, – hvað sem menn fremja sér til sektar."

8. Drottinn talaði við Móse og sagði:

9. "Bjóð Aroni og sonum hans á þessa leið: Þessi eru ákvæðin um brennifórnina: Brennifórnin skal vera á eldstæði altarisins alla nóttina til morguns, og skal altariseldinum haldið lifandi með því.

10. Og presturinn skal færa sig í línklæði sín og draga línbrækur yfir hold sitt, taka síðan burt öskuna eftir brennifórnina, er eldurinn hefir eytt á altarinu, og steypa henni niður við hlið altarisins.

11. Þá skal hann færa sig úr klæðum sínum og fara í önnur klæði og bera öskuna út fyrir herbúðirnar á hreinan stað.

12. Og eldinum á altarinu skal haldið lifandi með því. Hann skal eigi slokkna. Og presturinn skal á hverjum morgni leggja við að eldinum, og hann skal raða brennifórninni ofan á hann og brenna mörinn úr heillafórnunum á honum.

13. Eldurinn skal sífellt brenna á altarinu og aldrei slokkna.

14. Þessi eru ákvæðin um matfórnina: Synir Arons skulu fram bera hana fyrir Drottin, að altarinu.

15. Og hann skal taka af því hnefafylli sína, af fínamjöli matfórnarinnar og olíunni, og alla reykelsiskvoðuna, sem er á matfórninni, og brenna á altarinu til þægilegs ilms, sem ilmhluta hennar fyrir Drottin.

16. En það, sem eftir er af henni, skulu Aron og synir hans eta. Ósýrt skal það etið á helgum stað, í forgarði samfundatjaldsins skulu þeir eta það.

17. Eigi má baka það með súrdeigi. Ég gef þeim það í þeirra hluta af eldfórnum mínum. Það er háheilagt, eins og syndafórnin og sektarfórnin.

18. Allt karlkyn meðal Arons niðja má eta það, frá kyni til kyns ber yður það af eldfórnum Drottins um aldur og ævi. Hver sem snertir það skal vera heilagur."

19. Drottinn talaði við Móse og sagði:

20. "Þessi er fórnargjöf Arons og sona hans, sem þeir skulu færa Drottni á smurningardegi sínum: tíundi partur úr efu af fínu mjöli í stöðuga matfórn, helmingurinn af því að morgni og helmingurinn að kveldi.

21. Skal tilreiða hana á pönnu með olíu. Þú skalt fram bera hana samanhrærða. Þú skalt brjóta hana í stykki og fórna henni til þægilegs ilms fyrir Drottin.

22. Og presturinn, sá af sonum hans, sem smurður er í hans stað, skal tilreiða hana. Er það ævarandi lögmál Drottins, öll skal hún brennd.

23. Allar matfórnir presta skulu vera alfórnir. Þær má ekki eta."

24. Drottinn talaði við Móse og sagði:

25. "Mæl til Arons og sona hans og seg: Þessi eru ákvæðin um syndafórnina: Á þeim stað, sem brennifórnunum er slátrað, skal syndafórninni slátrað, frammi fyrir Drottni. Hún er háheilög.

26. Presturinn, sem fram ber syndafórnina, skal eta hana, á helgum stað skal hún etin, í forgarði samfundatjaldsins.

27. Hver sá, er snertir kjöt hennar, skal vera heilagur. Og þegar eitthvað af blóðinu spýtist á klæðin, þá skalt þú þvo það, sem spýtst hefir á, á helgum stað.

28. Og leirkerið, sem hún hefir verið soðin í, skal brjóta, en hafi hún verið soðin í eirkeri, þá skal fægja það og skola í vatni.

29. Allt karlkyn meðal prestanna má eta hana. Hún er háheilög.

30. En enga syndafórn má eta, hafi nokkuð af blóði hennar verið borið inn í samfundatjaldið til friðþægingar í helgidóminum, heldur skal hún brennd í eldi.

About 3 Mósebók Chapter 6

Read 3 Mósebók Chapter 6 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 3 Mósebók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: 3 Mósebók
Chapter: 6
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading 3 Mósebók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading 3 Mósebók Chapter 6 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is 3 Mósebók Chapter 6?

3 Mósebók Chapter 6 is part of the Book of 3 Mósebók in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete 3 Mósebók Chapter 6 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from 3 Mosebok

  1. 3 Mósebók Chapter 22
  2. 3 Mósebók Chapter 10
  3. 3 Mósebók Chapter 15
  4. 3 Mósebók Chapter 24
  5. 3 Mósebók Chapter 7
  6. 3 Mósebók Chapter 5
  7. 3 Mósebók Chapter 4

Explore More from Gamla Testamentið

  1. Jesaja Chapter 60
  2. Sálmarnir Chapter 66
  3. Sálmarnir Chapter 150
  4. Sakaría Chapter 4
  5. 4 Mósebók Chapter 34
  6. Jesaja Chapter 53
  7. Dómarabókin Chapter 9

Related Chapters & Readings

  1. 2 Kroníkubók Chapter 6
  2. 1 Tímóteusarbréf Chapter 6
  3. 2 Kroníkubók Chapter 33
  4. Sálmarnir Chapter 94
  5. Jeremía Chapter 43
  6. Esekíel Chapter 2
  7. Orðskviðirnir Chapter 15
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *