2 Mósebók Chapter 3

For English

Read 2 Mósebók Chapter 3 Online

Read 2 Mósebók Chapter 3 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 2 Mósebók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of 2 Mósebók and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

2 Mósebók 3

Kafli 3

1. En Móse gætti sauða Jetró tengdaföður síns, prests í Midíanslandi. Og hann hélt fénu vestur yfir eyðimörkina og kom til Guðs fjalls, til Hóreb.

2. Þá birtist honum engill Drottins í eldsloga, sem lagði út af þyrnirunna nokkrum. Og er hann gætti að, sá hann, að þyrnirunninn stóð í ljósum loga, en brann ekki.

3. Þá sagði Móse: "Ég vil ganga nær og sjá þessa miklu sýn, hvað til þess kemur, að þyrnirunninn brennur ekki."

4. En er Drottinn sá, að hann vék þangað til að skoða þetta, þá kallaði Guð til hans úr þyrnirunnanum og sagði: "Móse, Móse!" Hann svaraði: "Hér er ég."

5. Guð sagði: "Gakk ekki hingað! Drag skó þína af fótum þér, því að sá staður, er þú stendur á, er heilög jörð."

6. Því næst mælti hann: "Ég er Guð föður þíns, Guð Abrahams, Guð Ísaks og Guð Jakobs." Þá byrgði Móse andlit sitt, því að hann þorði ekki að líta upp á Guð.

7. Drottinn sagði: "Ég hefi sannlega séð ánauð þjóðar minnar í Egyptalandi og heyrt hversu hún kveinar undan þeim, sem þrælka hana; ég veit, hversu bágt hún á.

8. Ég er ofan farinn til að frelsa hana af hendi Egypta og til að leiða hana úr þessu landi og til þess lands, sem er gott og víðlent, til þess lands, sem flýtur í mjólk og hunangi, á stöðvar Kanaaníta, Hetíta, Amoríta, Peresíta, Hevíta og Jebúsíta.

9. Nú með því að kvein Ísraelsmanna er komið til mín, og ég auk þess hefi séð, hversu harðlega Egyptar þjaka þeim,

10. þá far þú nú. Ég vil senda þig til Faraós, og þú skalt leiða þjóð mína, Ísraelsmenn, út af Egyptalandi."

11. En Móse sagði við Guð: "Hver er ég, að ég fari til fundar við Faraó og að ég leiði Ísraelsmenn út af Egyptalandi?"

12. Þá sagði hann: "Sannlega mun ég vera með þér. Og það skalt þú til marks hafa, að ég hefi sent þig, að þá er þú hefir leitt fólkið út af Egyptalandi, munuð þér þjóna Guði á þessu fjalli."

13. Móse sagði við Guð: "En þegar ég kem til Ísraelsmanna og segi við þá: ,Guð feðra yðar sendi mig til yðar,' og þeir segja við mig: ,Hvert er nafn hans?' hverju skal ég þá svara þeim?"

14. Þá sagði Guð við Móse: "Ég er sá, sem ég er." Og hann sagði: "Svo skalt þú segja Ísraelsmönnum: ,Ég er' sendi mig til yðar."

15. Guð sagði enn fremur við Móse: "Svo skalt þú segja Ísraelsmönnum: ,Drottinn, Guð feðra yðar, Guð Abrahams, Guð Ísaks og Guð Jakobs sendi mig til yðar.' Þetta er nafn mitt um aldur, og þetta er heiti mitt frá kyni til kyns.

16. Far nú og safna saman öldungum Ísraels og mæl við þá: ,Drottinn, Guð feðra yðar birtist mér, Guð Abrahams, Ísaks og Jakobs, og sagði: Ég hefi vitjað yðar og séð, hversu með yður hefir verið farið í Egyptalandi.

17. Og ég hefi sagt: Ég vil leiða yður úr ánauð Egyptalands inn í land Kanaaníta, Hetíta, Amoríta, Peresíta, Hevíta og Jebúsíta, í það land, sem flýtur í mjólk og hunangi.'

18. Þeir munu skipast við orð þín og skaltu þá ganga með öldungum Ísraels fyrir Egyptalandskonung, og skuluð þér segja við hann: ,Drottinn, Guð Hebrea, hefir komið til móts við oss. Leyf oss því nú að fara þrjár dagleiðir á eyðimörkina, að vér færum fórnir Drottni, Guði vorum.'

19. Veit ég þó, að Egyptalandskonungur mun eigi leyfa yður burtförina, og jafnvel ekki þótt hart sé á honum tekið.

20. En ég vil útrétta hönd mína og ljósta Egyptaland með öllum undrum mínum, sem ég mun fremja þar, og þá mun hann láta yður fara.

21. Og ég skal láta þessa þjóð öðlast hylli Egypta, svo að þá er þér farið, skuluð þér eigi tómhentir burt fara,

22. heldur skal hver kona biðja grannkonu sína og sambýliskonu um silfurgripi og gullgripi og klæði, og það skuluð þér láta sonu yðar og dætur bera, og þannig skuluð þér ræna Egypta."

About 2 Mósebók Chapter 3

Read 2 Mósebók Chapter 3 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 2 Mósebók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: 2 Mósebók
Chapter: 3
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading 2 Mósebók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading 2 Mósebók Chapter 3 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is 2 Mósebók Chapter 3?

2 Mósebók Chapter 3 is part of the Book of 2 Mósebók in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete 2 Mósebók Chapter 3 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from 2 Mosebok

  1. 2 Mósebók Chapter 15
  2. 2 Mósebók Chapter 13
  3. 2 Mósebók Chapter 35
  4. 2 Mósebók Chapter 36
  5. 2 Mósebók Chapter 12
  6. 2 Mósebók Chapter 9
  7. 2 Mósebók Chapter 8

Explore More from Gamla Testamentið

  1. Sakaría Chapter 13
  2. Sálmarnir Chapter 5
  3. Sálmarnir Chapter 46
  4. 5 Mósebók Chapter 29
  5. Esekíel Chapter 3
  6. Sálmarnir Chapter 141
  7. 2 Mósebók Chapter 24

Related Chapters & Readings

  1. Jesaja Chapter 35
  2. 4 Mósebók Chapter 33
  3. Jeremía Chapter 50
  4. Jobsbók Chapter 21
  5. 2 Kroníkubók Chapter 2
  6. 1 Konungabók Chapter 20
  7. Esrabók Chapter 5
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *