1 Samúelsbók Chapter 8

For English

Read 1 Samúelsbók Chapter 8 Online

Read 1 Samúelsbók Chapter 8 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 1 Samúelsbók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of 1 Samúelsbók and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

1 Samúelsbók 8

Kafli 8

1. Er Samúel var orðinn gamall, setti hann sonu sína dómara yfir Ísrael.

2. Frumgetinn sonur hans hét Jóel, en annar sonur hans Abía. Þeir dæmdu í Beerseba.

3. En synir hans fetuðu ekki í fótspor hans, heldur hneigðust þeir til ágirndar og þágu mútur og hölluðu réttinum.

4. Þá söfnuðust allir öldungar Ísraels saman og fóru á fund Samúels í Rama

5. og sögðu við hann: "Sjá, þú ert nú orðinn gamall og synir þínir feta ekki í fótspor þín. Set oss því konung til að dæma oss, eins og er hjá öllum öðrum þjóðum."

6. En Samúel mislíkaði það, að þeir sögðu: "Gef oss konung til þess að dæma oss!" Og Samúel bað til Drottins.

7. Drottinn sagði við Samúel: "Lát þú að orðum lýðsins í öllu því, sem þeir biðja þig um, því að þeir hafa ekki hafnað þér, heldur hafa þeir hafnað mér, að ég skuli ekki lengur vera konungur yfir þeim.

8. Svona hafa þeir ávallt breytt frá þeim degi, er ég leiddi þá út af Egyptalandi, allt fram á þennan dag. Þeir hafa yfirgefið mig og þjónað öðrum guðum. Öldungis á sama hátt fara þeir nú og með þig.

9. Lát því nú að orðum þeirra. Þó skalt þú vara þá alvarlega við, og segja þeim háttu konungsins, sem ríkja á yfir þeim."

10. Þá sagði Samúel lýðnum, sem heimti af honum konung, öll orð Drottins

11. og mælti: "Þessi mun verða háttur konungsins, sem yfir yður á að ríkja: Sonu yðar mun hann taka og setja þá við vagn sinn og á hesta sína, og þeir munu hlaupa fyrir vagni hans,

12. og hann mun skipa þá höfuðsmenn yfir þúsund og höfuðsmenn yfir fimmtíu, og setja þá til að plægja akurland sitt og skera upp korn sitt og gjöra hernaðartygi sín og ökutygi.

13. Og dætur yðar mun hann taka og láta þær búa til smyrsl, elda og baka.

14. Og bestu lendur yðar, víngarða og olífugarða mun hann taka og gefa þjónum sínum,

15. og af sáðlöndum yðar og víngörðum mun hann taka tíund og gefa hana geldingum sínum og þjónum sínum.

16. Og þræla yðar og ambáttir og hina bestu uxa yðar og asna yðar mun hann taka og hafa til sinna verka.

17. Af sauðfénaði yðar mun hann taka tíund, en sjálfir munuð þér verða þrælar hans.

18. Þá munuð þér hrópa undan konungi yðar, er þér þá hafið kjörið yður, en þá mun Drottinn ekki svara yður."

19. En fólkið vildi ekki hlýða fortölum Samúels og sagði: "Nei, konungur skal yfir oss vera,

20. svo að vér séum eins og allar aðrar þjóðir, og konungur vor skal dæma oss og vera fyrirliði vor og heyja bardaga vora."

21. Samúel hlýddi á öll ummæli lýðsins og tjáði þau fyrir Drottni.

22. En Drottinn sagði við Samúel: "Lát þú að orðum þeirra og set yfir þá konung." Þá sagði Samúel við Ísraelsmenn: "Farið burt, hver til síns heimkynnis."

About 1 Samúelsbók Chapter 8

Read 1 Samúelsbók Chapter 8 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 1 Samúelsbók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: 1 Samúelsbók
Chapter: 8
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading 1 Samúelsbók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading 1 Samúelsbók Chapter 8 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is 1 Samúelsbók Chapter 8?

1 Samúelsbók Chapter 8 is part of the Book of 1 Samúelsbók in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete 1 Samúelsbók Chapter 8 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from 1 Samuelsbok

  1. 1 Samúelsbók Chapter 25
  2. 1 Samúelsbók Chapter 23
  3. 1 Samúelsbók Chapter 29
  4. 1 Samúelsbók Chapter 20
  5. 1 Samúelsbók Chapter 19
  6. 1 Samúelsbók Chapter 7
  7. 1 Samúelsbók Chapter 5

Explore More from Gamla Testamentið

  1. Sálmarnir Chapter 43
  2. 2 Kroníkubók Chapter 17
  3. 2 Mósebók Chapter 36
  4. 5 Mósebók Chapter 28
  5. Sálmarnir Chapter 39
  6. Dómarabókin Chapter 5
  7. 2 Kroníkubók Chapter 20

Related Chapters & Readings

  1. Esekíel Chapter 20
  2. Esekíel Chapter 12
  3. Rutarbók Chapter 3
  4. 2 Samúelsbók Chapter 1
  5. Esekíel Chapter 32
  6. Amos Chapter 3
  7. Sálmarnir Chapter 32
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *