Read 1 Mósebók Chapter 23 Online
Read 1 Mósebók Chapter 23 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 1 Mósebók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of 1 Mósebók and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
1 Mósebók 23
Kafli 23
1. Dagar Söru voru hundrað tuttugu og sjö ár, það var aldur Söru.
2. Og Sara dó í Kirjat Arba (það er Hebron) í Kanaanlandi. Og Abraham fór til að harma Söru og gráta hana.
3. Síðan gekk hann burt frá líkinu og kom að máli við Hetíta og sagði:
4. "Ég er aðkomandi og útlendingur meðal yðar. Látið mig fá legstað til eignar hjá yður, að ég megi koma líkinu frá mér og jarða það."
5. Þá svöruðu Hetítar Abraham og sögðu:
6. "Heyr oss fyrir hvern mun, herra minn. Þú ert Guðs höfðingi vor á meðal. Jarða þú líkið í hinum besta af legstöðum vorum. Enginn meðal vor skal meina þér legstað sinn, að þú megir jarða líkið."
7. Þá stóð Abraham upp og hneigði sig fyrir landslýðnum, fyrir Hetítum,
8. og mælti við þá: "Ef það er yðar vilji, að ég megi jarða líkið og koma því frá mér, þá heyrið mig og biðjið fyrir mig Efron Sóarsson,
9. að hann láti mig fá Makpelahelli, sem hann á og er yst í landeign hans. Hann láti mig fá hann fyrir fullt verð til grafreits meðal yðar."
10. En Efron sat þar meðal Hetíta. Þá svaraði Hetítinn Efron Abraham, í viðurvist Hetíta, frammi fyrir öllum þeim, sem gengu út og inn um borgarhlið hans, og mælti:
11. "Nei, herra minn, heyr mig! Landið gef ég þér, og hellinn, sem í því er, hann gef ég þér líka. Í augsýn samlanda minna gef ég þér hann. Jarða þú þar líkið."
12. Þá hneigði Abraham sig fyrir landslýðnum,
13. mælti því næst til Efrons í viðurvist landslýðsins á þessa leið: "Heyr nú, gef gaum að máli mínu! Ég greiði fé fyrir landið. Tak þú við því af mér, að ég megi jarða líkið þar."
14. Þá svaraði Efron Abraham og mælti:
15. "Herra minn, gef fyrir hvern mun gaum að máli mínu! Jörð, sem er fjögur hundruð silfursikla virði, hvað er það okkar í milli? Jarða þú líkið."
16. Og Abraham lét að orðum Efrons, og Abraham vó Efron silfrið, sem hann hafði til tekið í viðurvist Hetíta, fjögur hundruð sikla í gangsilfri.
17. Þannig var landeign Efrons, sem er hjá Makpela gegnt Mamre, landeignin og hellirinn, sem í henni var, og öll trén, er í landeigninni voru, innan takmarka hennar hringinn í kring,
18. fest Abraham til eignar, í viðurvist Hetíta, frammi fyrir öllum, sem út og inn gengu um borgarhlið hans.
19. Eftir það jarðaði Abraham Söru konu sína í helli Makpelalands gegnt Mamre (það er Hebron) í Kanaanlandi.
20. Þannig fékk Abraham landið og hellinn, sem í því var, hjá Hetítum til eignar fyrir grafreit.
About 1 Mósebók Chapter 23
Read 1 Mósebók Chapter 23 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 1 Mósebók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: 1 Mósebók
Chapter: 23
Testament: Old Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading 1 Mósebók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
- 📱 Hindi Android Bible App
- 📱 Hindi Christian Songs from waytochurch
- 📖 Read on Malayalam Christian Songs – madely
Continue Reading the Bible
Continue reading 1 Mósebók Chapter 23 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is 1 Mósebók Chapter 23?
1 Mósebók Chapter 23 is part of the Book of 1 Mósebók in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete 1 Mósebók Chapter 23 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from 1 Mosebok
- 1 Mósebók Chapter 18
- 1 Mósebók Chapter 4
- 1 Mósebók Chapter 8
- 1 Mósebók Chapter 7
- 1 Mósebók Chapter 3
- 1 Mósebók Chapter 1
- 1 Mósebók Chapter 28
Explore More from Gamla Testamentið
- Sálmarnir Chapter 130
- 2 Mósebók Chapter 8
- 3 Mósebók Chapter 7
- 2 Kroníkubók Chapter 19
- 1 Kroníkubók Chapter 20
- 1 Konungabók Chapter 14
- Esekíel Chapter 35