Galatabréfið Chapter 5

For English

Read Galatabréfið Chapter 5 Online

Read Galatabréfið Chapter 5 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Galatabréfið in the New Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Galatabréfið and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Galatabréfið 5

Kafli 5

1. Til frelsis frelsaði Kristur oss. Standið því stöðugir og látið ekki aftur leggja á yður ánauðarok.

2. Takið eftir því, sem ég, Páll, segi yður: Ef þér látið umskerast, þá gagnar Kristur yður ekkert.

3. Og enn vitna ég fyrir hverjum manni, sem lætur umskerast: Hann er skyldur til að halda allt lögmálið.

4. Þér eruð orðnir viðskila við Krist, þér sem ætlið að réttlætast með lögmáli. Þér eruð fallnir úr náðinni.

5. En vér væntum í andanum að öðlast af trúnni réttlætinguna, sem er von vor.

6. Í Kristi Jesú er ekkert komið undir umskurn né yfirhúð, heldur undir trú, sem starfar í kærleika.

7. Þér hlupuð vel. Hver hefur hindrað yður í að hlýða sannleikanum?

8. Þær fortölur voru ekki frá honum, sem kallaði yður.

9. Lítið súrdeig sýrir allt deigið.

10. Ég hef það traust til yðar í Drottni, að þér verðið sama sinnis og ég. Sá sem truflar yður mun bera sinn dóm, hver sem hann svo er.

11. En hvað mig snertir, bræður, ef ég er enn þá að prédika umskurn, hví er þá enn verið að ofsækja mig? Þá væri hneyksli krossins tekið burt.

12. Vel mættu þeir, sem koma yður í uppnám, aflima sig.

13. Þér voruð, bræður, kallaðir til frelsis. Notið aðeins ekki frelsið til færis fyrir holdið, heldur þjónið hver öðrum í kærleika.

14. Allt lögmálið er uppfyllt með þessu eina boðorði: "Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig."

15. En ef þér bítist og etið hver annan upp, þá gætið þess, að þér tortímist ekki hver fyrir öðrum.

16. En ég segi: Lifið í andanum, og þá fullnægið þér alls ekki girnd holdsins.

17. Holdið girnist gegn andanum, og andinn gegn holdinu. Þau standa hvort gegn öðru, til þess að þér gjörið ekki það, sem þér viljið.

18. En ef þér leiðist af andanum, þá eruð þér ekki undir lögmáli.

19. Holdsins verk eru augljós: Frillulífi, óhreinleiki, saurlífi,

20. skurðgoðadýrkun, fjölkynngi, fjandskapur, deilur, metingur, reiði, eigingirni, tvídrægni, flokkadráttur,

21. öfund, ofdrykkja, svall og annað þessu líkt. Og það segi ég yður fyrir, eins og ég hef áður sagt, að þeir, sem slíkt gjöra, munu ekki erfa Guðs ríki.

22. En ávöxtur andans er: Kærleiki, gleði, friður, langlyndi, gæska, góðvild, trúmennska,

23. hógværð og bindindi. Gegn slíku er lögmálið ekki.

24. En þeir, sem tilheyra Kristi Jesú, hafa krossfest holdið með ástríðum þess og girndum.

25. Fyrst andinn er líf vort skulum vér lifa í andanum!

26. Verum ekki hégómagjarnir, svo að vér áreitum hver annan og öfundum hver annan.

About Galatabréfið Chapter 5

Read Galatabréfið Chapter 5 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Galatabréfið in the New Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Galatabréfið
Chapter: 5
Testament: New Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Galatabréfið. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Galatabréfið Chapter 5 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Galatabréfið Chapter 5?

Galatabréfið Chapter 5 is part of the Book of Galatabréfið in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Galatabréfið Chapter 5 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from galatabrefid

  1. Galatabréfið Chapter 1
  2. Galatabréfið Chapter 6
  3. Galatabréfið Chapter 4
  4. Galatabréfið Chapter 2
  5. Galatabréfið Chapter 3

Explore More from Nýja Testamentið

  1. Opinberunarbókin Chapter 13
  2. Galatabréfið Chapter 4
  3. 1 Tímóteusarbréf Chapter 4
  4. Matteus Chapter 26
  5. 1 Jóhannesarbréf Chapter 2
  6. Matteus Chapter 10
  7. Matteus Chapter 27

Related Chapters & Readings

  1. 2 Mósebók Chapter 6
  2. Sálmarnir Chapter 135
  3. 4 Mósebók Chapter 15
  4. Sálmarnir Chapter 14
  5. 2 Konungabók Chapter 11
  6. Sálmarnir Chapter 111
  7. Daníel Chapter 9
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *