Read Amos Chapter 7 Online
Read Amos Chapter 7 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Amos in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Amos and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
Amos 7
Kafli 7
1. Drottinn Guð lét þessa sýn bera fyrir mig: Það voru komnar engisprettulirfur, þá er háin tók til að spretta eftir konungsslátt.
2. En er þær höfðu gjöretið grasið af jörðinni, sagði ég: "Drottinn Guð, æ fyrirgef! Hversu má Jakob standast? Hann er svo vesall!"
3. Þá iðraði Drottin þessa. "Það skal ekki verða!" sagði Drottinn.
4. Drottinn Guð lét þessa sýn bera fyrir mig: Drottinn Guð kom til þess að hegna með eldi, og hann svalg hið mikla djúp og eyddi landið.
5. Þá sagði ég: "Æ, Drottinn Guð, lát af! Hversu má Jakob standast? Hann er svo vesall!"
6. Þá iðraði Drottin þessa. "Þetta skal ekki heldur verða!" sagði Drottinn.
7. Hann lét þessa sýn bera fyrir mig: Sjá, Drottinn stóð uppi á lóðréttum múrvegg og hélt á lóði.
8. Og Drottinn sagði við mig: "Hvað sér þú, Amos?" Ég svaraði: "Lóð." Þá sagði Drottinn: "Sjá, ég mun lóð nota mitt á meðal lýðs míns Ísraels, ég vil eigi lengur umbera hann.
9. Hæðir Ísaks skulu í eyði lagðar verða og helgidómar Ísraels eyddir verða, og ég vil rísa gegn Jeróbóams ætt með reiddu sverði."
10. Amasía prestur í Betel sendi boð til Jeróbóams Ísraelskonungs og lét segja: "Amos kveikir uppreisn gegn þér mitt í Ísraelsríki. Landið fær eigi þolað öll orð hans.
11. Því að svo hefir Amos sagt: ,Jeróbóam mun fyrir sverði falla og Ísrael mun herleiddur verða burt úr landi sínu.'"
12. Síðan sagði Amasía við Amos: "Haf þig á burt, vitranamaður, flý til Júdalands! Afla þér þar viðurværis og spá þú þar!
13. En í Betel mátt þú eigi framar koma fram sem spámaður, því að hér er konunglegur helgidómur og ríkismusteri."
14. Þá svaraði Amos og sagði við Amasía: "Ég er enginn spámaður, og ég er ekki af spámannaflokki, heldur er ég hjarðmaður og rækta mórber.
15. En Drottinn tók mig frá hjarðmennskunni og sagði við mig: ,Far þú og spá þú hjá lýð mínum Ísrael.'
16. Og heyr því orð Drottins: Þú segir: ,Þú mátt eigi spá gegn Ísrael né láta orð þín streyma yfir Ísaks niðja.'
17. Fyrir því segir Drottinn svo: ,Konan þín skal verða skækja hér í borginni, og synir þínir og dætur skulu fyrir sverði falla. Jörð þinni skal sundur skipt verða með mælivað, og þú sjálfur skalt deyja í óhreinu landi. Og Ísraelsmenn skulu fara herleiddir af landi sínu.'"
About Amos Chapter 7
Read Amos Chapter 7 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Amos in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: Amos
Chapter: 7
Testament: Old Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Amos. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading Amos Chapter 7 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is Amos Chapter 7?
Amos Chapter 7 is part of the Book of Amos in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete Amos Chapter 7 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from Amos
Explore More from Gamla Testamentið
- 2 Kroníkubók Chapter 2
- 1 Konungabók Chapter 13
- Sálmarnir Chapter 74
- 2 Kroníkubók Chapter 13
- Esterarbók Chapter 10
- Jeremía Chapter 23
- 1 Samúelsbók Chapter 3