Sakaría Chapter 1

For English

Read Sakaría Chapter 1 Online

Read Sakaría Chapter 1 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Sakaría in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of Sakaría and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

Sakaría 1

Kafli 1

1. Á áttunda mánuði annars ríkisárs Daríusar kom orð Drottins til Sakaría spámanns Berekíasonar, Iddósonar, svo hljóðandi:

2. Drottinn var stórreiður feðrum yðar.

3. Seg því við þá: Svo segir Drottinn allsherjar: Snúið yður til mín – segir Drottinn allsherjar – þá mun ég snúa mér til yðar – segir Drottinn allsherjar.

4. Verið ekki eins og feður yðar, sem hinir fyrri spámenn áminntu með svofelldum orðum: "Svo segir Drottinn allsherjar: Snúið yður frá yðar vondu breytni og frá yðar vondu verkum!" En þeir hlýddu ekki og gáfu engan gaum að mér – segir Drottinn.

5. Feður yðar – hvar eru þeir? Og spámennirnir – geta þeir lifað eilíflega?

6. En orð mín og ályktanir, þau er ég bauð þjónum mínum, spámönnunum, að kunngjöra, hafa þau ekki náð feðrum yðar, svo að þeir sneru við og sögðu: "Eins og Drottinn allsherjar hafði ásett sér að gjöra við oss eftir breytni vorri og verkum vorum, svo hefir hann við oss gjört"?

7. Á tuttugasta og fjórða degi hins ellefta mánaðar, það er mánaðarins sebat, á öðru ríkisári Daríusar, kom orð Drottins til Sakaría spámanns Berekíasonar, Iddósonar, svo hljóðandi:

8. Ég sá sýn á náttarþeli: mann ríðandi á rauðum hesti, og hafði hann staðnæmst meðal mýrtustrjánna, sem eru í dalverpinu. Að baki honum voru rauðir, jarpir og hvítir hestar.

9. Og er ég spurði: "Hverjir eru þessir, herra minn?" svaraði engillinn mér, sá er við mig talaði: "Ég skal sýna þér, hverjir þeir eru."

10. Þá tók maðurinn, sem staðnæmst hafði meðal mýrtustrjánna, til máls og sagði: "Þessir eru þeir, sem Drottinn hefir sent til þess að fara um jörðina."

11. Þá svöruðu þeir engli Drottins, er staðnæmst hafði meðal mýrtustrjánna, og sögðu: "Vér höfum farið um jörðina, og sjá, öll jörðin er í ró og kyrrð."

12. Þá svaraði engill Drottins og sagði: "Drottinn allsherjar, hversu lengi á því fram að fara, að þú miskunnir þig ekki yfir Jerúsalem og Júdaborgir, er þú hefir nú reiður verið í sjötíu ár?"

13. Þá svaraði Drottinn englinum, er við mig talaði, blíðum orðum og huggunarríkum,

14. og engillinn sem við mig talaði, sagði við mig: "Kunngjör og seg: Svo segir Drottinn allsherjar: Ég brenn af mikilli vandlæting vegna Jerúsalem og Síonar

15. og ég er stórreiður hinum andvaralausu heiðingjum, sem juku á bölið, þá er ég var lítið eitt reiður.

16. Fyrir því segir Drottinn svo: Ég sný mér aftur að Jerúsalem með miskunnsemi. Hús mitt skal verða endurreist í henni – segir Drottinn allsherjar – og mælivaður skal þaninn verða yfir Jerúsalem.

17. Kunngjör enn fremur og seg: Svo segir Drottinn allsherjar: Enn skulu borgir mínar fljóta í gæðum, og enn mun Drottinn hugga Síon og enn útvelja Jerúsalem."

18. (2:1) Og ég hóf upp augu mín og sá, hvar fjögur horn voru.

19. (2:2) Þá spurði ég engilinn, sem við mig talaði: "Hvað merkja þessi?" Hann svaraði mér: "Þetta eru hornin, sem tvístrað hafa Júda, Ísrael og Jerúsalem."

20. (2:3) Því næst lét Drottinn mig sjá fjóra smiði,

21. (2:4) og er ég spurði: "Hvað ætla þessir að gjöra?" svaraði hann á þessa leið: "Þetta eru hornin, sem tvístruðu Júda svo, að enginn bar höfuð hátt, en þessir eru komnir til þess að skelfa þau, til þess að varpa niður hornum þeirra þjóða, er hófu horn gegn Júdalandi til þess að tvístra því."

About Sakaría Chapter 1

Read Sakaría Chapter 1 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of Sakaría in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: Sakaría
Chapter: 1
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading Sakaría. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading Sakaría Chapter 1 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is Sakaría Chapter 1?

Sakaría Chapter 1 is part of the Book of Sakaría in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete Sakaría Chapter 1 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from Gamla Testamentið

  1. Míka Chapter 1
  2. Míka Chapter 3
  3. Míka Chapter 2
  4. Míka Chapter 7
  5. Míka Chapter 5
  6. Míka Chapter 4
  7. Míka Chapter 6

Explore More from sakaria

  1. Sakaría Chapter 2
  2. Sakaria Chapter 3
  3. Sakaria Chapter 13
  4. Sakaria Chapter 1
  5. Sakaria Chapter 7
  6. Sakaria Chapter 10
  7. Sakaría Chapter 7

Related Chapters & Readings

  1. 1 Kroníkubók Chapter 18
  2. Daníel Chapter 3
  3. 3 Mósebók Chapter 19
  4. Sálmarnir Chapter 22
  5. Sálmarnir Chapter 144
  6. Rómverjar Chapter 13
  7. Sálmarnir Chapter 36
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *