5 Mósebók Chapter 10

For English

Read 5 Mósebók Chapter 10 Online

Read 5 Mósebók Chapter 10 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 5 Mósebók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of 5 Mósebók and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

5 Mósebók 10

Kafli 10

1. Í það sama sinn sagði Drottinn við mig: "Högg þér tvær töflur af steini, eins og hinar fyrri voru, og kom til mín upp á fjallið. Þú skalt og gjöra þér örk af tré.

2. Ég ætla að rita á töflurnar þau orð, sem stóðu á hinum fyrri töflunum, er þú braust í sundur, og skalt þú síðan leggja þær í örkina."

3. Ég gjörði þá örk af akasíuviði og hjó tvær töflur af steini eins og hinar fyrri, gekk því næst upp á fjallið með báðar töflurnar í hendi mér.

4. Þá ritaði Drottinn á töflurnar með sama letri og áður tíu boðorðin, þau er hann hafði talað til yðar á fjallinu út úr eldinum, daginn sem þér voruð þar saman komnir. Síðan fékk hann mér þær.

5. Þá sneri ég á leið og gekk ofan af fjallinu og lagði töflurnar í örkina, er ég hafði gjört, og þar voru þær geymdar, eins og Drottinn hafði fyrir mig lagt.

6. (Ísraelsmenn fóru frá Beerót Bene Jaakan til Mósera. Þar dó Aron og var jarðaður þar, og Eleasar sonur hans varð prestur í hans stað.

7. Þaðan fóru þeir til Gúdgóda, og frá Gúdgóda til Jotbata, þar sem gnægð er vatnslækja.

8. Þá skildi Drottinn ættkvísl Leví frá til þess að bera sáttmálsörk Drottins, til þess að standa frammi fyrir Drottni og þjóna honum og til að blessa í hans nafni, og er svo enn í dag.

9. Fyrir því fékk Leví eigi hlut né óðal með bræðrum sínum. Drottinn er óðal hans, eins og Drottinn Guð þinn hefir heitið honum.)

10. En ég dvaldi á fjallinu fjörutíu daga og fjörutíu nætur, eins og hið fyrra sinnið, og Drottinn bænheyrði mig einnig í þetta skiptið: Drottinn vildi ekki tortíma þér.

11. Og Drottinn sagði við mig: "Tak þig upp og hald af stað, til þess að þú megir fara fyrir lýðnum, er hann leggur upp, svo að þeir komist inn í og fái til eignar land það, sem ég sór feðrum þeirra að gefa þeim."

12. Og nú, Ísrael, hvers krefst Drottinn Guð þinn af þér nema þess, að þú óttist Drottin Guð þinn og gangir því ávallt á hans vegum, og að þú elskir hann og að þú þjónir Drottni Guði þínum af öllu hjarta þínu og af allri sálu þinni

13. með því að halda skipanir hans og lög, er ég legg fyrir þig í dag, og þér er fyrir bestu?

14. Sjá, Drottni Guði þínum heyrir himinninn og himnanna himnar, jörðin og allt, sem á henni er,

15. og þó hneigðist Drottinn að feðrum þínum einum, svo að hann elskaði þá, og hann útvaldi yður, niðja þeirra, eftir þá af öllum þjóðum, og er svo enn í dag.

16. Umskerið því yfirhúð hjarta yðar og verið ekki lengur harðsvíraðir.

17. Því að Drottinn Guð yðar, hann er Guð guðanna og Drottinn drottnanna, hinn mikli, voldugi og óttalegi Guð, sem eigi gjörir sér mannamun og þiggur eigi mútur.

18. Hann rekur réttar munaðarleysingjans og ekkjunnar og elskar útlendinginn, svo að hann gefur honum fæði og klæði.

19. Elskið því útlendinginn, því að þér voruð sjálfir útlendingar í Egyptalandi.

20. Drottin Guð þinn skalt þú óttast, hann skalt þú dýrka, við hann skalt þú halda þér fast og við nafn hans skalt þú sverja.

21. Hann er þinn lofstír og hann er þinn Guð, sá er gjört hefir fyrir þig þessa miklu og óttalegu hluti, sem augu þín hafa séð.

22. Sjötíu að tölu voru feður þínir, þá er þeir fóru til Egyptalands, en nú hefir Drottinn Guð þinn gjört þig að fjölda til sem stjörnur himins.

About 5 Mósebók Chapter 10

Read 5 Mósebók Chapter 10 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 5 Mósebók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: 5 Mósebók
Chapter: 10
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading 5 Mósebók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading 5 Mósebók Chapter 10 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is 5 Mósebók Chapter 10?

5 Mósebók Chapter 10 is part of the Book of 5 Mósebók in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete 5 Mósebók Chapter 10 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from 5 Mosebok

  1. 5 Mósebók Chapter 27
  2. 5 Mósebók Chapter 21
  3. 5 Mósebók Chapter 7
  4. 5 Mósebók Chapter 34
  5. 5 Mósebók Chapter 31
  6. 5 Mósebók Chapter 24
  7. 5 Mósebók Chapter 15

Explore More from Gamla Testamentið

  1. 2 Samúelsbók Chapter 22
  2. Jósúabók Chapter 13
  3. 2 Mósebók Chapter 27
  4. 1 Konungabók Chapter 4
  5. Jesaja Chapter 58
  6. Jeremía Chapter 2
  7. 3 Mósebók Chapter 11

Related Chapters & Readings

  1. Sálmarnir Chapter 127
  2. Esekíel Chapter 45
  3. 1 Mósebók Chapter 50
  4. Sálmarnir Chapter 110
  5. Esekíel Chapter 9
  6. Jobsbók Chapter 36
  7. Sálmarnir Chapter 148
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *