2 Samúelsbók Chapter 12

For English

Read 2 Samúelsbók Chapter 12 Online

Read 2 Samúelsbók Chapter 12 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 2 Samúelsbók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of 2 Samúelsbók and the Holy Bible online.

Choose a Chapter

2 Samúelsbók 12

Kafli 12

1. Drottinn sendi Natan til Davíðs, og Natan kom til hans og sagði við hann: "Tveir menn voru í sömu borg. Annar var ríkur, hinn fátækur.

2. Hinn ríki átti fjölda sauða og nauta,

3. en hinn fátæki átti ekki nema eitt gimbrarlamb, sem hann hafði keypt og alið. Það óx upp hjá honum og með börnum hans, það át af mat hans og drakk af bikar hans og svaf við brjóst hans og var eins og dóttir hans.

4. Þá kom gestur til ríka mannsins, og hann tímdi ekki að taka neinn af sauðum sínum eða nautum til þess að matreiða fyrir ferðamanninn, sem til hans var kominn, heldur tók gimbrarlamb fátæka mannsins og matbjó það fyrir manninn, sem kominn var til hans."

5. Þá reiddist Davíð manninum ákaflega og sagði við Natan: "Svo sannarlega sem Drottinn lifir: Sá maður, sem slíkt hefir aðhafst, er dauðasekur,

6. og lambið skal hann borga sjöfaldlega, fyrst hann gjörði slíkt og hafði enga meðaumkun."

7. En Natan sagði við Davíð: "Þú ert maðurinn! Svo segir Drottinn, Ísraels Guð: Ég hefi smurt þig til konungs yfir Ísrael, og ég hefi frelsað þig af hendi Sáls,

8. og ég gaf þér hús herra þíns og lagði konur herra þíns upp að brjósti þér, og ég hefi fengið þér Ísraels hús og Júda – og hefði það verið of lítið, mundi ég hafa bætt einhverju við þig.

9. Hví hefir þú fyrirlitið orð Drottins með því að aðhafast það, sem honum mislíkar? Úría Hetíta hefir þú fellt með sverði. Konu hans hefir þú tekið þér fyrir konu, en sjálfan hann hefir þú myrt með sverði Ammóníta.

10. Fyrir því skal sverðið aldrei víkja burt frá húsi þínu, sakir þess að þú fyrirleist mig og tókst konu Úría Hetíta þér fyrir konu.

11. Svo segir Drottinn: Sjá, ég læt ólán koma yfir þig frá húsi þínu og tek konur þínar fyrir augunum á þér og gef þær öðrum manni, svo að hann hvíli hjá konum þínum að sólinni ásjáandi.

12. Þú hefir gjört þetta með launung, en ég mun framkvæma þetta í augsýn alls Ísraels og í augsýn sólarinnar."

13. Þá sagði Davíð við Natan: "Ég hefi syndgað móti Drottni." Natan sagði við Davíð: "Drottinn hefir og fyrirgefið þér synd þína. Þú munt ekki deyja.

14. En sakir þess, að þú hefir smánað Drottin með athæfi þínu, þá skal sá sonur, sem þér er fæddur, vissulega deyja."

15. Síðan fór Natan heim til sín. Drottinn sló barnið, sem kona Úría hafði fætt Davíð, svo að það varð sjúkt.

16. Og Davíð leitaði Guðs vegna sveinsins og fastaði, og er hann kom heim, lagðist hann til svefns á gólfinu um nóttina.

17. Þá gengu elstu mennirnir í húsi hans til hans til þess að fá hann til að rísa upp af gólfinu, en hann vildi það ekki og neytti ekki matar með þeim.

18. En á sjöunda degi dó barnið. Og þjónar Davíðs þorðu ekki að segja honum, að barnið væri dáið, því að þeir hugsuðu með sér: "Sjá, meðan barnið lifði, töluðum vér við hann, en hann ansaði oss ekki. Hvernig ættum vér þá nú að segja við hann: ,Barnið er dáið!' Hann kynni að fremja voðaverk."

19. En Davíð sá, að þjónar hans voru að hvísla hver að öðrum, og skildi hann þá, að barnið væri dáið. Og Davíð sagði við þjóna sína: "Er barnið dáið?" og þeir sögðu: "Já, það er dáið."

20. Þá stóð Davíð upp af gólfinu, laugaðist og smurði sig og hafði klæðaskipti. Síðan gekk hann í hús Drottins og baðst fyrir og fór því næst heim til sín og bað um mat. Var honum þá borinn matur, og hann neytti.

21. Þá sögðu þjónar hans við hann: "Hvað er þetta, sem þú hefir gjört? Meðan barnið lifði, fastaðir þú og grést vegna þess, en þegar barnið var dáið, stóðst þú upp og mataðist?"

22. Hann svaraði: "Meðan barnið var á lífi, fastaði ég og grét, því að ég hugsaði: ,Hver veit nema Drottinn miskunni mér, og barnið fái að lifa?'

23. En fyrst það er nú dáið, hvers vegna ætti ég þá að fasta? Mun ég geta látið það hverfa aftur? Ég fer til þess, en það kemur eigi aftur til mín."

24. Davíð huggaði Batsebu, konu sína, og hann gekk inn til hennar og lagðist með henni, og hún ól son. Og hann nefndi hann Salómon. Drottinn elskaði hann

25. og lét Natan spámann flytja þau boð, að hann skyldi heita Jedídjah vegna Drottins.

26. Jóab herjaði á Rabba, borg Ammóníta, og vann lágborgina.

27. Og hann gjörði menn til Davíðs og sagði: "Ég hefi herjað á Rabba og þegar unnið lágborgina.

28. Safna nú saman því sem eftir er af liðinu og sest um borgina og vinn hana, svo að ég vinni ekki borgina og hún verði ekki kennd við mig."

29. Þá safnaði Davíð saman öllu liðinu og fór til Rabba og herjaði á hana og vann hana.

30. Hann tók kórónu Milkóms af höfði honum. Hún vó talentu gulls, og í henni var dýrindis steinn. Davíð setti hana á höfuð sér og flutti mjög mikið herfang burt úr borginni.

31. Hann flutti og burt fólkið, sem þar var, og setti það við sagirnar, járnfleygana og járnaxirnar og lét það vinna að tígulsteinagjörð. Svo fór hann með allar borgir Ammóníta. Síðan fór Davíð ásamt öllu liðinu aftur heim til Jerúsalem.

About 2 Samúelsbók Chapter 12

Read 2 Samúelsbók Chapter 12 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 2 Samúelsbók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.

Book Information

Book: 2 Samúelsbók
Chapter: 12
Testament: Old Testament

How to Read this Chapter

Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading 2 Samúelsbók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.

https://www.youtube.com/watch?v=rzsT_Q3KLzE

More Resources

Continue Reading the Bible

Continue reading 2 Samúelsbók Chapter 12 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.

Frequently Asked Questions

What is 2 Samúelsbók Chapter 12?

2 Samúelsbók Chapter 12 is part of the Book of 2 Samúelsbók in the Holy Bible.

Can I read this chapter online?

Yes. You can read the complete 2 Samúelsbók Chapter 12 online for free with easy chapter navigation.

More Chapters from 2 Samuelsbok

  1. 2 Samúelsbók Chapter 11
  2. 2 Samúelsbók Chapter 5
  3. 2 Samúelsbók Chapter 21
  4. 2 Samúelsbók Chapter 20
  5. 2 Samúelsbók Chapter 13
  6. 2 Samúelsbók Chapter 3
  7. 2 Samúelsbók Chapter 22

Explore More from Gamla Testamentið

  1. 4 Mósebók Chapter 1
  2. Esekíel Chapter 14
  3. 5 Mósebók Chapter 21
  4. Daníel Chapter 12
  5. 2 Mósebók Chapter 6
  6. Sálmarnir Chapter 55
  7. Jobsbók Chapter 21

Related Chapters & Readings

  1. 2 Samúelsbók Chapter 4
  2. Rómverjar Chapter 4
  3. 1 Mósebók Chapter 4
  4. Jónas Chapter 4
  5. 4 Mósebók Chapter 15
  6. 1 Samúelsbók Chapter 30
  7. Dómarabókin Chapter 16
Share Your Love

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *