Read 2 Mósebók Chapter 5 Online
Read 2 Mósebók Chapter 5 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 2 Mósebók in the Old Testament. Browse every verse with easy chapter navigation, continue to the next chapter, or explore the complete Book of 2 Mósebók and the Holy Bible online.
Choose a Chapter
2 Mósebók 5
Kafli 5
1. Eftir það gengu þeir Móse og Aron á fund Faraós og sögðu: "Svo segir Drottinn, Guð Ísraelsmanna: ,Gef fólki mínu fararleyfi, að það megi halda mér hátíð í eyðimörkinni.'"
2. En Faraó sagði: "Hver er Drottinn, að ég skuli hlýða honum til þess að leyfa Ísrael að fara? Ég þekki ekki Drottin, og Ísrael leyfi ég eigi heldur að fara."
3. Þeir sögðu: "Guð Hebrea hefir komið til móts við oss. Leyf oss að fara þriggja daga leið út í eyðimörkina til að færa fórnir Drottni, Guði vorum, að hann láti eigi yfir oss koma drepsótt eða sverð."
4. En Egyptalandskonungur sagði við þá: "Hví viljið þið, Móse og Aron, taka fólkið úr vinnunni? Farið til erfiðis yðar!"
5. Og Faraó sagði: "Nú, þegar fólkið er orðið svo margt í landinu, þá viljið þið láta það hætta að erfiða!"
6. Sama dag bauð Faraó verkstjórum þeim, er settir voru yfir fólkið, og tilsjónarmönnum þess og sagði:
7. "Upp frá þessu skuluð þér eigi fá fólkinu hálmstrá til að gjöra tigulsteina við, eins og hingað til. Þeir skulu sjálfir fara og safna sér stráum,
8. en þó skuluð þér setja þeim fyrir að gjöra jafnmarga tigulsteina og þeir hafa gjört hingað til, og minnkið ekki af við þá, því að þeir eru latir. Þess vegna kalla þeir og segja: ,Vér viljum fara og færa fórnir Guði vorum.'
9. Það verður að þyngja vinnuna á fólkinu, svo að það hafi nóg að starfa og hlýði ekki á lygifortölur."
10. Þá gengu verkstjórar fólksins og tilsjónarmenn þess út og mæltu þannig til fólksins: "Svo segir Faraó: ,Ég læt eigi fá yður nein hálmstrá.
11. Farið sjálfir og fáið yður strá, hvar sem þér finnið, en þó skal alls ekkert minnka vinnu yðar.'"
12. Þá fór fólkið víðsvegar um allt Egyptaland að leita sér hálmleggja til að hafa í stað stráa.
13. En verkstjórarnir ráku eftir þeim og sögðu: "Ljúkið dag hvern við yðar ákveðna dagsverk, eins og meðan þér höfðuð stráin."
14. Og tilsjónarmenn Ísraelsmanna, sem verkstjórar Faraós höfðu sett yfir þá, voru barðir og sagt við þá: "Hví hafið þér eigi lokið við yðar ákveðna tigulgerðarverk, hvorki í gær né í dag, eins og áður fyrr?"
15. Tilsjónarmenn Ísraelsmanna gengu þá fyrir Faraó, báru sig upp við hann og sögðu: "Hví fer þú svo með þjóna þína?
16. Þjónum þínum eru engin strá fengin, og þó er sagt við oss: ,Gjörið tigulsteina.' Og sjá, þjónar þínir eru barðir og á þitt fólk sök á þessu."
17. En hann sagði: "Þér eruð latir og nennið engu! Þess vegna segið þér: ,Látum oss fara og færa Drottni fórnir.'
18. Farið nú og erfiðið! Og engin strá skal fá yður, en þó skuluð þér inna af hendi hina ákveðnu tigulsteina."
19. Þá sáu tilsjónarmenn Ísraelsmanna í hvert óefni komið var fyrir þeim, þegar sagt var við þá: "Þér skuluð engu færri tigulsteina gjöra, hinu ákveðna dagsverki skal aflokið hvern dag!"
20. Þegar þeir komu út frá Faraó, mættu þeir þeim Móse og Aroni, sem stóðu þar og biðu þeirra.
21. Og þeir sögðu við þá: "Drottinn líti á ykkur og dæmi, þar eð þið hafið gjört oss illa þokkaða hjá Faraó og þjónum hans og fengið þeim sverð í hendur til að drepa oss með."
22. Þá sneri Móse sér aftur til Drottins og sagði: "Drottinn, hví gjörir þú svo illa við þetta fólk? Hví hefir þú þá sent mig?
23. Því síðan ég gekk fyrir Faraó til að tala í þínu nafni, hefir hann misþyrmt þessum lýð, og þú hefir þó alls ekki frelsað lýð þinn."
About 2 Mósebók Chapter 5
Read 2 Mósebók Chapter 5 online from the Holy Bible. This chapter is part of the Book of 2 Mósebók in the Old Testament. Continue reading with the chapter navigation above or explore the complete book.
Book Information
Book: 2 Mósebók
Chapter: 5
Testament: Old Testament
How to Read this Chapter
Use the Previous and Next Chapter buttons to continue reading 2 Mósebók. You can also adjust the font size for comfortable reading and browse other books of the Bible using the navigation links.
More Resources
Continue Reading the Bible
Continue reading 2 Mósebók Chapter 5 and explore every book, chapter and verse of the Holy Bible. Use the navigation links above and below to move through the Scriptures with ease.
Frequently Asked Questions
What is 2 Mósebók Chapter 5?
2 Mósebók Chapter 5 is part of the Book of 2 Mósebók in the Holy Bible.
Can I read this chapter online?
Yes. You can read the complete 2 Mósebók Chapter 5 online for free with easy chapter navigation.
More Chapters from 2 Mosebok
- 2 Mósebók Chapter 13
- 2 Mósebók Chapter 15
- 2 Mósebók Chapter 9
- 2 Mósebók Chapter 8
- 2 Mósebók Chapter 7
- 2 Mósebók Chapter 2
- 2 Mósebók Chapter 23
Explore More from Gamla Testamentið
- 5 Mósebók Chapter 29
- 2 Konungabók Chapter 23
- Sálmarnir Chapter 107
- 5 Mósebók Chapter 3
- Sálmarnir Chapter 3
- Jesaja Chapter 3
- Sakaría Chapter 4